

Besta deild karla
Leikirnir

Umfjöllun og viðtal: KR - Fylkir 2-0 | KR upp að hlið FH og Stjörnunnar
KR tók á móti Fylki á Meistaravöllum í 21. umferð Bestu deildar karla nú í dag þar sem KR vann góðan 2-0 sigur eftir að hafa spilað nær allan seinni hálfleikinn einum færri.

Umfjöllun og viðtal: Keflavík - Fram 0-0 | Markalaust í botnslag suður með sjó
Keflavík tók á móti Fram í botnbaráttuslag 21. umferðar Bestu deildar karla. Leiknum lauk með 0-0 jafntefli, en bæði lið skoruðu mörk sem voru dæmd ógild.

Blikar létu bíða eftir sér í Víkinni
Lið Breiðabliks lét heldur betur bíða eftir sér fyrir leik liðsins gegn Víkingi í Bestu deildinni sem á að hefjast nú klukkan 19:15. Hálftíma fyrir leik hafði ekkert sést til liðs Breiðabliks í Víkinni.

Leik Breiðabliks og Víkings í kvöld verður ekki frestað
Knattspyrnusamband Íslands hefur staðfest fyrri ákvörðun sína um að leik Breiðabliks og Víkings sem fram fer í kvöld verði ekki frestað. Breiðablik hafði óskað eftir því að KSÍ myndi endurskoða ákvörðun sína um að fresta ekki en sú ákvörðun stendur.

Breiðablik óskar eftir því að KSÍ endurskoði ákvörðun sína varðandi frestun leiks á morgun
Breiðablik hefur óskað eftir því við KSÍ að sambandið endurskoði þá ákvörðun sína að synja Blikum um frestun á leik liðsins gegn Víkingi í Bestu deildinni sem á að fara fram á morgun.

Umfjöllun og viðtöl: KA - Stjarnan 2-1 | Dramatíkin allsráðandi á Akureyri
KA vann dramatískan 2-1 heimasigur á Stjörnunni þegar liðin mættust á Akureyri í dag. Stjarnan misnotaði víti í stöðunni 1-1 og einum færri tókst KA að knýja fram sigur.

Umfjöllun, viðtöl og myndir: FH - Valur 3-2 | Gyrðir hetja FH-inga
Eftir að hafa verið undir í hálfleik sneru FH-ingar taflinu við og unnu Val 3-2. Gyrðir Hrafn Guðbrandsson kom inn á í hálfleik og breytti leiknum þar sem hann skoraði tvö mörk.

„Erum með töframann á bekknum sem kom inn á og var stórkostlegur“
Björn Daníel Sverrisson, fyrirliði FH, var afar ánægður með 3-2 sigur gegn Val á heimavelli.

„Ég vil helst spila 11 á móti 11“
„Þetta var alvöru leikur og alvöru spenna. Ég er gríðarlega ánægður með strákana,“ sagði Hallgrímur Jónasson þjálfari KA eftir dramatískan sigur á Stjörnunni á Akureyri í dag. Lokastaða 2-1.

Valsmenn kæra Víkinga vegna afskipta Arnars
Valur hefur lagt fram kæru til aga- og úrskurðanefndar KSÍ þar sem þess er krafist að Víkingar hljóti refsingu vegna afskipta Arnars Gunnlaugssonar þjálfara í leik gegn Val þar sem hann var í leikbanni.

Samskipti Arnars við bekkinn ekki brot þrátt fyrir leikbann
Aga- og úrskurðarnefnd Knattspyrnusambands Íslands hefur ákveðið að samskipti Arnars Gunnlaugssonar, þjálfara Víkings í Bestu deild karla, við varamannabekk sinn í leik gegn Val þar sem hann sætti leikbanni ekki vera brot á reglum sambandsins.

Kári hefur komið ferskur inn og með mikla fagmennsku
Framkvæmdastjóri knattspyrnudeildar Víkings hrósar Kára Árnasyni fyrir starf hans síðustu ár en Kári hætti að spila og fór að stjórna málum á bak við tjöldin hjá félaginu.

Klara biður aganefnd KSÍ að skoða afskipti Arnars
Klara Bjartmarz, framkvæmdastjóri KSÍ hefur óskað eftir því við aga- og úrskurðarnefnd sambandsins að hún taki til skoðunar afskipti Arnars Gunnlaugssonar, þjálfara Víkings Reykjavíkur, af leik liðsins við Val í Bestu deild karla á dögunum.

„Ég er búinn að vinna þetta allt“
Það var mikilvægt fyrir nýjasta íslenska atvinnumanninn Loga Tómasson að pakka golfsettinu er hann hélt út til Noregs hvar hann samdi við Strömsgodset í vikunni. Hann segir erfitt að yfirgefa Víking en er spenntur fyrir komandi tímum.

Valsmenn íhuga að kæra „fjarstýringu“ Arnars
Valur íhugar að kæra afskipti Arnars Gunnlaugssonar, þjálfara Víkings, af leik liðanna í Bestu deild karla á sunnudaginn.

Logi genginn í raðir Strømsgodset
Knattspyrnumaðurinn Logi Tómasson er genginn í raðir Strømsgodset frá uppeldisfélagi sínu Víkingi.

KR missir fjóra leikmenn í bann
Aga- og úrskurðarnefnd KSÍ úrskurðaði í dag sex leikmenn í bann í Bsetu-deild karla í knattspyrnu.

Frammistaða Frederiks veki upp spurningar: „Eins og honum liði ekki vel“
Frammistaða Frederik Schram, markvarðar Vals, í leik liðsins gegn toppliði Víkings Reykjavíkur á dögunum var til umræðu í uppgjörsþætti Bestu deildarinnar, Stúkunni í gær.

Heyrðu samskipti dómara þegar upp úr sauð á Framvellinum: „Þetta er rautt!“
Í Stúkunni, uppgjörsþætti Bestu deildar karla í gærkvöldi, var dregin fram ansi athyglisverð upptaka af samskiptum dómara í leik Fram og ÍBV í 5.umferð deildarinnar.

Sjáðu Emil Atla skjóta niður KR-inga
Stjörnumenn fögnuðu fimm hundraðasta leik Daníels Laxdal í gær með flottum 3-1 sigri á KR-ingum í Garðabænum. Öll mörkin úr leiknum eru nú aðgengileg á Vísi.

Puttarnir í klessu og ráðlagt að hvíla
Sindri Kristinn Ólafsson, markvörður FH, mun mögulega ekki spila næsta leik liðsins eftir að lenda í árekstri og meiðast á fingrum í leiknum gegn HK í Bestu deild karla í knattspyrnu á sunnudag.

Umfjöllun, viðtöl og myndir: Stjarnan - KR 3-1 | Emil Atla með þrennu í tímamótaleik Daníels Laxdal
Stjörnumenn unnu KR nokkuð sannfærandi í kvöld í 20. umferð Bestu deildar karla í Garðabænum í kvöld. Daníel Laxdal var maður kvöldsins fyrirfram en Emil Atlason stal þrumunni með þrennu. Mjög fagmannleg frammistaða hjá Stjörnunni sem taka völdin í kapphlaupinu um fjórða sætið í deildinni.

Daníel Laxdal: Það tók bara smá tíma að koma á „Jöllaball“
„Mjög sáttur með sigurinn í kvöld“, sagði 500 leikja maðurinn Daníel Laxdal við Stöð 2 Sport eftir sigur Stjörnumanna gegn KR. Leikurinn var í 20. umferð Bestu deildar karla og skipti gríðarlega miklu máli í baráttunni um fjórða sætið. Daníel steig ekki feilspor í varnarlínunni hjá heimamönnum og stýrði liðinu til sigurs.

Segir enga formlega beiðni hafa komið frá Breiðabliki
Haraldur Haraldsson, framkvæmdastjóri Víkings, segir enga formlega beiðni hafa komið frá Íslandsmeisturum Breiðabliks um að færa leik liðanna og spila hann í komandi landsleikjahléi.

Fimm hundraðasti meistaraflokksleikur Daníels í kvöld
Daníel Laxdal spilar í kvöld meistaraflokksleik númer fimm hundruð fyrir Stjörnuna en hann er langleikjahæsti leikmaður félagsins.

„Gerum tilkall í að vera eitt af sterkustu liðum sögunnar“
Arnar Gunnlaugsson, þjálfari Víkings Reykjavíkur segir sitt lið gera tilkall til þess að vera metið sem eitt af bestu liðum Íslandssögunnar. Víkingar eru búnir að stinga af á toppi Bestu deildarinnar og settu í gær nýtt stigamet í efstu deild karla.

Sjáðu sigurmörk Fylkismanna, Blika og Framara og öll hin mörkin í Bestu í gær
Fimm leikir fóru fram í Bestu deild karla í fótbolta í gær og nú má sjá öll mörkin úr leikjunum hér inn á Vísi.

Sjáðu mörkin þegar að Víkingar skráðu sig á spjöld sögunnar
Víkingur Reykjavík skráði sig á spjöld sögunnar í gær með sigri sínum á Val í toppslag 20. umferðar Bestu deildar karla í gærkvöldi. Sigurinn sá til þess að liðið hefur slegið stigametið í efstu deild.

Umfjöllun og viðtöl: HK - FH 2-2 | Anton Søjberg skoraði tvö í jafntefli
HK og FH gerðu jafntefli í fjögurra marka leik. FH komst yfir í fyrri hálfleik og var með forystuna í 50 mínútur en þá jafnaði Anton Søjberg og fylgdi því eftir með öðru marki þegar þrjár mínútur voru eftir af venjulegum leiktíma. Gyrðir Hrafn Guðbrandsson tryggði síðan FH stig að lokum.

„Ég skora alltaf á Hlíðarenda“
Logi Tómasson skoraði eitt marka Víkings þegar liðið bar sigurorð af Val í toppslag Bestu deildar karla í fótbolta á Origo-vellinum að Hlíðarenda í kvöld. Logi er mögulega að spila sinn síðasta leik fyrir Víking í bili en hann er á leið til Strömsgodset í Noregi.