ICE dregur saman seglin í Minneapolis Bandaríkjastjórn hefur ákveðið að binda enda á aðgerðir Innflytjenda- og tollastofnunar Bandaríkjanna (ICE) í Minnesota. Þúsundir voru handteknir og tveir bandarískir ríkisborgarar voru skotnir til bana í aðgerðunum, sem stóðu yfir í tvo mánuði. Erlent 12.2.2026 22:41
Jákvæð skref hafi verið tekin í vinnuhópi um málefni Grænlands Utanríkisráðherra sótti í dag fund varnarmálaráðherra NATO-ríkjanna sem haldinn var í Brussel. Ráðherra Bandaríkjanna mætti ekki á fundinn en Þorgerður Katrín segir að engu að síður hafi jákvæð skref verið tekin í vinnuhópi Danmerkur, Grænlands og Bandaríjkanna um málefni Grænlands. Innlent 12.2.2026 18:47
Lofaði öllu fögru í von um sendiherraembættið Billy Long, sendiherraefni Bandaríkjaforseta á Íslandi, flutti í dag vitnisburð fyrir utanríkismálanefnd öldungadeildar Bandaríkjanna. Samþykki nefndin tilnefninguna er Long einu skrefi nær embætti sendiherra Bandaríkjanna á Íslandi. Erlent 12.2.2026 18:34
Gallup hættir að mæla ánægju með Bandaríkjaforseta eftir níutíu ára samfellda sögu Erlent 12.2.2026 07:43
Bud Cort látinn eftir langvinn veikindi Leikarinn Bud Cort er látinn 77 ára að aldri. Cort var þekktastur fyrir hlutverk sitt í gamanmyndinni Harold and Maude. Samkvæmt Variety lést Cort í Connecticut eftir langvinn veikindi. Lífið 11. febrúar 2026 22:50
Mikilvægi Íslands eykst með nýrri aðgerð NATO á norðurslóðum Atlantshafsbandalagið hefur formlega hleypt af stokkunum verkefninu Vörður norðurslóða (e. Arctic sentry) sem er ætlað að auka eftirlit og umsvif hersveita og efla viðbragðsgetu bandalagsins í norðri. Utanríkisráðherra er mætt til Brussel og segir að Íslendingar muni finna fyrir hinu aukna umfangi. Innlent 11. febrúar 2026 20:20
James Van Der Beek látinn Leikarinn James Van Der Beek, stjarna Dawson's Creek og sex barna faðir, er látinn 48 ára að aldri eftir baráttu við krabbamein. Leikarinn, sem er þekktastur fyrir hlutverk sín í Dawson's Creek og Varsity Blues, lést eftir baráttu við ristil- og endaþarmskrabbamein á þriðja stigi. Lífið 11. febrúar 2026 19:47
Leitarheimild byggði á löngu afsönnuðum ásökunum um svindl Útsendarar Alríkislögreglu Bandaríkjanna (FBI) studdust við gamlar og í mörgum tilfellum löngu afsannaðar ásakanir um kosningasvindl í Georgíu í kosningunum 2020 þegar húsleit var nýverið gerð hjá kjörstjórn Fulton-sýslu. Rætur rannsóknarinnar má rekja til embættismanns í Hvíta húsi Donalds Trump sem hefur áður reynt að hjálpa forsetanum að snúa úrslitum kosninganna 2020, þegar Trump tapaði fyrir Joe Biden. Erlent 11. febrúar 2026 16:02
Opna aftur á flugumferð í El Paso eftir drónaflug frá Mexíkó Flugumferðarstjórn Bandaríkjanna (FAA) hefur tilkynnt að aftur sé búið að opna fyrir flugumferð til og frá alþjóðaflugvellinum í El Paso í Texas. Lokað var fyrir flugumferð um svæðið í nótt og það án útskýringa og átti lokunin að standa yfir í tíu daga. Erlent 11. febrúar 2026 14:08
Íri í haldi ICE óttast um líf sitt Hinn írski Seamus Culleton hefur setið í fangageymslu Innflytjenda- og tollastofnunar Bandaríkjanna (ICE) í nærri því fimm mánuði og segist óttast um líf sitt. Hann var handtekinn fyrir að vera lengur í Bandaríkjunum en níutíu daga vegabréfsáritun sem hann fékk árið 2009 heimilaði honum en hann er giftur bandarískri konu, með vinnuleyfi í Bandaríkjunum og rekur verktakafyrirtæki í Boston. Erlent 11. febrúar 2026 11:13
Múmían rís í fjórða sinn Hollywood-stjörnurnar Brendan Fraser og Rachel Weisz munu snúa aftur í fjórðu myndinni í Múmíu-myndaröðinni. Sú fyrsta kom út 1999, varð gríðarvinsæl og gat af sér tvær framhaldsmyndir. Bíó og sjónvarp 11. febrúar 2026 10:47
Rifust um Trump áður en faðir skaut dóttur sína til bana Lucy Harrison, 23 ára bresk kona frá Warrington í Cheshire, var skotin til bana þann 10. janúar í fyrra þegar hún var í heimsókn hjá föður sínum í Prosper, nærri Dallas í Texas í Bandaríkjunum. Faðir Harrison er sagður hafa skotið dóttur sína í bringuna með þeim afleiðingum að hún lést, eftir að feðginin hafi átt í rifrildi um Donald Trump Bandaríkjaforseta. Erlent 11. febrúar 2026 10:13
Loka flugvelli El Paso skyndilega og án útskýringa Flugumferðarstjórn Bandaríkjanna (FAA) lokaði í nótt fyrir flugumferð til og frá alþjóðaflugvellinum í El Paso í Texas og nærliggjandi svæðum. Enginn má fljúga þangað í að minnsta kosti tíu daga og engin ástæða hefur verið gefin upp, önnur en sú að þetta sé vegna „sérstakra öryggisástæðna“. Erlent 11. febrúar 2026 10:02
Frestar tónleikum heilsunnar vegna Bandaríska söngkonan Demi Lovato hefur frestað tónleikaferðalagi sínu vegna heilsufarsástæðna. Söngkonan segist með ákvörðun sinni vera að setja heilsu sína í forgang en tæp tíu ár eru frá því söngkonan var nær dauða en lífi eftir að hafa tekið of stóran skammt af fíkniefnum. Lífið 11. febrúar 2026 09:39
Hætta að skilgreina gróðurhúsalofttegundir sem skaðlegar Ríkisstjórn Bandaríkjanna ætlar að kippa stoðunum undan loftslagsaðgerðum og reglum með því að hætta að skilgreina gróðurhúsalofttegundir sem skaðlegar mönnum í vikunni. Fastlega má þó gera ráð fyrir að dómstólar eigi lokaorðið um það. Erlent 11. febrúar 2026 09:21
Einn í yfirheyrslu og ráðist í húsleit í tengslum við hvarf Nancy Guthrie Lögreglan í Arizona handtók í nótt einstakling og færði til yfirheyrslu vegna hvarfsins á hinni áttatíu og fjögurra ára gömlu Nancy Guthrie sem vakið hefur gríðarlega athygli vestanhafs og víðar. Erlent 11. febrúar 2026 08:33
Norðmenn geti ekki útilokað innrás Rússa Eirik Kristoffersen, yfirmaður norska hersins, segist ekki geta útilokað þann möguleika að Rússar muni freista þess að ná undir sig landi í eigu Noregs og Finnlands til að tryggja hernaðarinnviði sína á Kólaskaga. Erlent 11. febrúar 2026 07:54
Nafngreindi sex mögulega samverkamenn Epstein á þinginu Ro Khanna, fulltrúadeildarþingmaður Demókrataflokksins, nafngreindi sex mögulega samverkamenn Jeffrey Epstein á þingfundi í gær, eftir að hann og Thomas Massie, þingmaður Repúblikanaflokksins, fengu að sjá hluta Epstein-skjalanna óritskoðuð í dómsmálaráðuneytinu. Erlent 11. febrúar 2026 06:29
Trump hafi vitað meira en hann viðurkenndi: „Allir vita hvað hann hefur verið að gera“ Nýútgefin skjöl varpa ljósi á það að Donald Trump Bandaríkjaforseti hefur vitað lengur af kynferðisbrotum Jeffrey Epsteins en hann hefur viðurkennt. Í raun virðist hann hafa vitað um brot Epsteins frá því áður en fyrsta rannsókn hófst árið 2006. Erlent 10. febrúar 2026 22:02
FBI birtir myndir af grímuklæddum manni við heimili Guthrie Bandaríska alríkislögreglan (FBI) hefur birt myndir af grímuklæddum einstaklingi í tengslum við leit þeirra að móður fréttaþulunnar Savannah Guthrie. Í tilkynningu með myndunum kemur fram að yfirvöld reyni nú að bera kennsl á einstaklinginn, sem þau segja hafa verið vopnaðan. Erlent 10. febrúar 2026 18:47
Nýtt samkomulag eða nýtt vopnakapphlaup? Donald Trump, forseti Bandaríkjanna, og meðlimir ríkisstjórnar hans eru að skoða hvort virkja eigi fleiri kjarnorkuvopn og íhuga mögulega tilraunasprengingu. Þetta hafa embættismenn Trumps gert ljóst á undanförnum dögum, síðan síðasti kjarnorkuvopnasamningurinn milli Bandaríkjanna og Rússlands rann sitt skeið í síðustu viku. Erlent 10. febrúar 2026 10:53
Fundu sex nöfn mögulegra samverkamanna Epstein á tveimur tímum Fulltrúadeildarþingmennirnir Thomas Massie, Repúblikani, og Ro Khanna, Demókrati, fóru saman í gær og fengu að sjá Epstein-skjölin óritskoðuð. Þeir segja að á tveimur klukkustundum hafi þeir fundið að minnsta kosti sex nöfn manna sem kunna að hafa brotið af sér. Erlent 10. febrúar 2026 08:23
Auglýsingarnar súrari og skrýtnari en húmorinn í fyrirrúmi Ofurskálin virðist festa sig betur í sessi sem íþrótta- og menningarviðburður hér á landi með hverju árinu sem líður. Almannatengill segir auglýsingarnar í kringum viðburðinn, sem verði súrari með hverju árinu, geta sagt okkur ýmislegt um tíðarandann hverju sinni. Viðskipti erlent 10. febrúar 2026 07:46
Hótar að koma í veg fyrir opnun brúar milli Windsor og Detroit Donald Trump Bandaríkjaforseti hefur hótað því að koma í veg fyrir opnun nýrrar brúar á milli Bandaríkjanna og Kanada, nema að „Bandaríkin fái bætt allt sem við höfum gefið þeim, og það sem meira er, að Kanada komi fram við Bandaríkin af þeirri sanngirni og með þeirri virðingu sem við verðskuldum“, eins og hann orðaði það. Erlent 10. febrúar 2026 07:24
Neitaði að svara spurningum á grundvelli fimmta viðaukans Ghislaine Maxwell, samverkakona Jeffrey Epstein, neitaði að svara spurningum þingnefndar fulltrúadeildar Bandaríkjaþings í gær. Erlent 10. febrúar 2026 06:48