Alþingi og ríkisstjórn brugðust "Ekki verður annað séð en að bæði Alþingi og ríkisstjórn hafi skort burði og þor til þess að setja fjármálakerfinu skynsamleg mörk,“ segir í skýrslu rannsóknarnefndar Alþingis. Innlent 13. apríl 2010 06:00
FME í fjársvelti og óx allt of hægt Forstjóri Fjármálaeftirlitsins óskaði ekki eftir auknum fjárveitingum og nýtti ekki þær valdheimildir sem eftirlitið bjó yfir í aðdraganda bankahrunsins, að mati rannsóknarnefndar Alþingis. Hann sýndi af sér vanrækslu að mati nefndarinnar. Eftirlitið treysti of mikið á gölluð álagspróf og lét hjá leggjast að gera lögreglu viðvart um lögbrot. Innlent 13. apríl 2010 06:00
Feluleikir í Glitni Stjórn Glitnis faldi 270 milljóna króna vanmetna launaskuldbindingu gagnvart Bjarna Ármannssyni í ársuppgjöri bankans árið 2008. Hafði stjórnin haft veður af því að Vilhjálmur Bjarnason, formaður Félags fjárfesta, ætlaði að grennslast fyrir um þessa greiðslu og hugsanlega höfða skaðabótamál í kjölfar fundarins. Til að koma í veg fyrir að greiðslan yrði rædd á fundinum var hún færð yfir á næsta ár. Í tölvupósti sagði stjórnandi: Innlent 13. apríl 2010 06:00
Voru ekki vakandi fyrir hættumerkjum Fjölmiðlar brugðust hlutverki sínu í aðdraganda bankahrunsins, er niðurstaða skýrslu vinnuhóps um siðferði og starfshætti. Langtum fleiri jákvæðar en neikvæðar fréttir birtust af fjármálafyrirtækjum á tímabilinu 2006 til 2008 og flestar byggðar á gögnum frá fyrirtækjunum. Ekki fékkst staðfesting á áhrifum eigenda á umfjöllun fjölmiðla. Innlent 13. apríl 2010 06:00
Inngrip hefðu getað kostað málaferli Geir H. Haarde, fyrrverandi forsætisráðherra, segir skýrsluna sýna að vöxtur bankanna hafi valdið hruninu. Ekki hafi verið hægt að bjarga þeim árið 2008. Innlent 13. apríl 2010 06:00
Eignarýrnunin sást ekki í reikningum bankanna Gæði útlánasafns bankanna voru byrjuð að rýrna að minnsta kosti tólf mánuðum fyrir fall þeirra og gerði allt fram að fallinu, þótt ekki sæist þess stað í reikningsskilum bankanna. Þetta er meðal niðurstaðna rannsóknarnefndar Alþingis í kafla skýrslu hennar um ytri endurskoðun. Viðskipti innlent 13. apríl 2010 05:00
Ekki brugðist við mikilli hættu Ekki var brugðist við ábendingum um að áhætta vegna lausafjárskorts og fjármögnun bankanna væri orðin of mikil vorið 2008. Þetta kemur fram í skýrslu rannsóknarnefndar Alþingis vegna bankahrunsins. Innlent 13. apríl 2010 04:00
Hunsaði boð breska Seðlabankans Davíð Oddsson seðlabankastjóri lét hjá líða að svara boði seðlabankastjóra Bretlands um aðstoð við að minnka íslenska bankakerfið hálfu ári fyrir fall þess. Viðskipti innlent 13. apríl 2010 04:00
Hörð gagnrýni á þjóðnýtingu Glitnis Seðlabanki og ráðherrar brutu stjórnsýslulög, eigin verklagsreglur, óskráðar meginreglur og jafnvel stjórnarskrá þegar ákveðið var að bregðast við ósk Glitnis um lán til þrautavara með þjóðnýtingu. Seðlabankinn hafði ekki forsendur til að meta hvort sú leið sem hann gerði tillögu um væri forsvaranleg. Innlent 13. apríl 2010 03:45
Lánuðu milljarða til kaupa á Högum Tvö félög Bónusfjölskyldunnar, Baugur Group og Gaumur, voru komin í fjárhagsvanda snemma árs 2008 og lá fyrir að Baugur gæti ekki staðið við skuldbindingar sínar í mars 2008 án fjárhagsaðstoðar. Þá var eigið fé Gaums neikvætt. Viðskipti innlent 13. apríl 2010 03:30
Skýrslan er úttekt en ekki dómur Björgvin G. Sigurðsson, fyrrverandi viðskiptaráðherra, er einn þriggja stjórnmálamanna sem rannsóknarnefndin telur hafa sýnt af sér vanrækslu í starfi. Innlent 13. apríl 2010 03:00
Samson átti endurfjármögnun vísa Félög tengd eigendum Landsbankans áttu endurfjármögnun vísa í Peningabréfum ISK, en svo nefndist fjárfestingarsjóður Landsvaka sem aftur var í eigu Landsbankans. Þetta er meðal þess sem lesa má úr kafla rannsóknarnefndar Alþingis um verðbréfa- og fjárfestingarsjóði. Innlent 13. apríl 2010 01:45
1,3 milljarðar í rekstur Sigurðar Rekstrarkostnaður við skrifstofu Sigurðar Einarsson, stjórnarformanns Kaupþings, í London, nam 1.311,5 milljónum króna á fjögurra ára tímabili, frá 2005 til 2008. Auk Sigurðar var einn starfsmaður á skrifstofunni fyrri hluta tímabilsins og tveir þann síðari. Viðskipti innlent 13. apríl 2010 01:00
Litu ekki á málið fyrr en 2007 Starfsmaður Fjármálaeftirlitsins komst að því árið 2004 að hvorki Kaupþing né Landsbankinn hefðu tengt saman stórar lánveitingar bankanna til Baugs Group með réttum hætti. Hann lét stjórnendur Fjármálaeftirlitsins vita af niðurstöðum sínum. Innlent 13. apríl 2010 01:00
Kosningaloforð Framsóknar ein dýrkeyptustu hagstjórnarmistökin Kosningaloforð Framsóknarflokksins fyrir kosningarnar 2003 um 90 prósent íbúðarlán eru talin ein stærstu hagstjórnarmistök ríkisins samkvæmt skýrslu Rannsóknarnefndarinnar. Innlent 12. apríl 2010 23:05
Ingibjörg Sólrún: Hafði ekki forsendur til að draga orð sérfræðinga í efa Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, fyrrverandi utanríkisráðherra, segist ekki hafa haft neinar forsendur til þess að draga greiningar sérfróðra manna og eftirlitsaðila um varnir efnahagskerfisins í efa. Innlent 12. apríl 2010 21:02
Eigendur bankanna misnotuðu þá Rannsóknarnefndin telur að eigendur allra stóru bankanna þriggja og Straums-Burðaráss hafi fengið óeðlilega mikinn aðgang að lánsfé hjá þessum bönkum í krafti eignarhalds síns. Stærstu skuldarar allra bankana voru eigendur þeirra eða tengdir aðilar. Viðskipti innlent 12. apríl 2010 21:00
Bretar vildu „refsa" íslenskum stjórnvöldum Íslensk stjórnvöld hefðu átt að útskýra neyðarlögin betur fyrir breskum og hollenskum stjórnvöldum strax við lokun markaða þann 6. október 2008. Þetta er mat rannsóknarnefndar Alþingis sem telur það gagnrýnisvert hversu lítið íslensk stjórnvöld aðhöfðust til að róa þarlenda ráðamenn. Innlent 12. apríl 2010 20:57
Jónas Fr.: Ég skilaði betri stofnun en ég tók við Jónas Fr. Jónsson, fyrrverandi forstjóri Fjármálaeftirlitsins (FME) segist hafa skilað betri stofnun en hann tók við. Hann segir FME hafa verið alvarlega fjársvelt en stórbatnað í sinni stjórnartíð. Þetta kom fram í viðtali við Jónas á RÚV. Innlent 12. apríl 2010 20:50
SMS ISG: Gerdu svo Má ad Sedlabankastjora i stad DO Í smáskilaboðum sem Ingibjörg Sólrún Gísladóttir sendi Geir H. Haarde 2. október 2008, miðvikudaginn eftir þjóðnýtingu Glitnis, kemur fram að hún vildi að Már Guðmundsson yrði gerður að seðlabankastjóra í stað Davíðs Oddssonar. Ingibjörg var stödd í New York í læknismeðferð þegar hún sendi skilaboðin. Innlent 12. apríl 2010 20:44
Össur: Ég hélt að þetta væri valdarán Davíðs Oddssonar „[...] ég er enn á lífi í pólitík af því að ég er svolítið „paranoid“ í nasavængjunum, ég taldi sem sagt að þetta væri valdarán Davíðs Oddssonar [...],“ sagði Össur Skarphéðinsson við skýrslutöku hjá Rannsóknarnefnd Alþings um tillögu Davíðs um þjóðstjórn. Davíð viðraði hugmyndina á ríkisstjórnarfundi 30. september 2008. Innlent 12. apríl 2010 20:23
Geir: Við vorum gabbaðir Ég sé mest eftir því að hafa verið aðili sem tók þátt í því að leyfa bönkunum að stækka svona mikið, sagði Geir H. Haarde, fyrrverandi forsætisráðherra. Innlent 12. apríl 2010 19:43
Davíð Oddsson hótaði Tryggva Þór Bankastjórar Seðlabankans sýndu af sér verulega vanrækslu og viðhöfðu ótæk vinnubrögð við þjóðnýtingu Glitnis, að mati rannsóknarnefndarinnar. Davíð Oddsson seðlabankastjóri hótaði efnahagsráðgjafa ríkisstjórnarinnar, kvaðst skyldu persónulega sjá til þess að Tryggva yrði ólíft á Íslandi það sem eftir væri - ef honum tækist ekki að sannfæra Geir Haarde um þjóðnýtingu Glitnis. Innlent 12. apríl 2010 19:15
Óþekktur bankamaður varaði Davíð Oddsson við Í skýrslu Davíðs Oddssonar, formanns bankastjórnar Seðlabankans, fyrir rannsóknarnefnd Alþingis kom fram að um mitt sumar árið 2008 hefði leitað til hans maður, sem hann vildi ekki nafngreina, sem vann í einum af stóru bönkunum. Innlent 12. apríl 2010 19:11
Rannsóknarnefndin sat fyrir svörum á Stöð 2 Meðlimir Rannsóknarnefndar Alþingis sátu fyrir svörum í kvöldfréttum Stöðvar 2 í kvöld. Kristján Már Unnarsson ræddi við þau Pál Hreinsson, Tryggva Gunnarsson og Sigríði Benediktsdóttur um efni skýrslunnar sem þau skiluðu af sér í dag. Innlent 12. apríl 2010 19:09
Gervimaður útlönd þáði töluverðar arðgreiðslur Gervimaður útlönd er meðal þeirra sem mest fengu í arðgreiðslur frá íslenskum fyrirtækjum síðstu árin fyrir hrun eftir því sem segir í Rannsóknarskýrslu Alþingis. Viðskipti innlent 12. apríl 2010 18:48
Kaupþingsmenn: Höfðu ekki efni á lystisnekkju Fjárhagsvandræði hrjáðu Kaupþingsmenn í febrúar 2008. Til að bæta stöðu sína varpar Magnús Guðmundsson fram þeirri hugmynd í tölvupósti að leigja út lystisnekkju þeirra til þriðja aðila. Pósturinn birtist í rannsóknarskýrslunni. Innlent 12. apríl 2010 18:21
Bombur dagsins - fleyg orð úr skýrslunni Mörg fleyg ummæli hafa komið fram í fjölmiðlum í dag í kjölfar birtingar rannsóknarskýrslu Alþingis. Skýrslutökur veita persónulega innsýn inn í hugarheim aðalleikara hrunsins, sem spara ekki stóru orðin þegar kemur að þeim sjálfum eða öðrum. Vísir.is tók saman ummæli dagsins. Innlent 12. apríl 2010 17:16
Samson átti endurfjármögnun vísa í sjóðum Landsbankans Félög tengd eigendum Landsbankans áttu endurfjármögnun vísa í Peningabréfum ISK, en svo nefndist fjárfestingasjóður Landsvaka sem aftur var í eigu Landsbankans. Þetta er meðal þess sem lesa má úr kafla rannsóknarnefndar Alþingis um verðbréfa- og fjárfestingasjóði. Viðskipti innlent 12. apríl 2010 16:48
Skelfing og óðagot í stjórnkerfinu Athygli vekur við lestur skýrslu Rannsóknarnefndar Alþingis hversu mikil skelfing og óðagot ríkti bæði í stjórnkerfinu og hjá fjármálastofnunum þegar menn gerðu sér grein fyrir því að bankakerfið var að hrynja. Innlent 12. apríl 2010 16:40