Smjörklípa Þorgerðar Hjörvar Sigurðsson skrifar 3. nóvember 2026 19:33 Mikil umræða hefur eðlilega skapast um ummæli Heimis Más Péturssonar, framkvæmdastjóra þingflokks Flokks fólksins, þar sem hann hvatti forseta Frakklands til að beita kjarnorkuvopnum gegn Rússum, með öllum þeim milljónum dauðsfalla sem af því myndu leiða. Þegar Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, utanríkisráðherra, var spurð um málið greip hún til aðferðar sem iðulega er kölluð „smjörklípa“. Þar víkur viðkomandi sér undan gagnrýni með því að beina ásökunum að einhverjum öðrum, sem veldur því að athygli og umræða beinast þangað frekar en að upprunalega málefninu. Það er því ákveðin kaldhæðni fólgin í því að Þorgerður fylgdi því eftir með að ásaka aðra um að beita smjörklípunni… Smjörklípa Þorgerðar fólst í því að ásaka Ólaf Ragnar Grímsson, fyrrverandi forseta Íslands, um að standa með Rússum í árásarstríði þeirra gegn Úkraínu. Það virðist vera vegna þess eins að Ólafur er þeirrar skoðunar, eins og flestir þeir sem aðhyllast raunhyggjupólitík umfram tilfinningapólitík, að stækkun NATO til austurs hafi verið ögrun í garð Rússlands og að legið hafi fyrir að slíkt myndi knýja fram átök við Rússland. Meðal skoðanabræðra Ólafs má til dæmis nefna John Mearsheimer, einn fremsta stjórnmálafræðing nútímans, og hagfræðinginn Jeffrey Sachs, sem er sömuleiðis einn þeirra fremstu á sínu sviði. Höfum það á hreinu að vel er hægt að viðurkenna að útbreiðsla NATO til austurs hafi leitt til innrásar Rússlands án þess að í því felist réttlæting á árásinni. Þetta snýst um raunhyggju. Þetta snýst um að skilja að þjóðarleiðtogar eru ekki alltaf sammála um hvað sé rétt og að horfa þurfi til raunverulegra afleiðinga ákvarðana frekar en að heimta að andstæðingar okkar láti einfaldlega undan, viðurkenni að við höfum rétt fyrir okkur og bregðist ekki við. Tvö þemu má greina í þessu. Annars vegar er það sú venja Þorgerðar og ríkisstjórnar Kristrúnar Frostadóttur að taka tilfinningarök fram yfir rök raunhyggjunnar. Hins vegar er það tilhneiging Þorgerðar til að grafa undan trúverðugleika fólks með því að strámanna það í stað þess að takast á við rök viðkomandi. Þetta er ein af birtingarmyndum þess popúlisma sem einkennir Þorgerði og pólitík hennar. Þetta eigum við að fordæma. Við eigum að geta verið ósammála án þess að eigna fólki skoðanir eða ásetning sem það hefur ekki. Það er sérstaklega mikilvægt að stjórnmálamenn tileinki sér þessa afstöðu, því annars er aukin skautun óhjákvæmileg afleiðing. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Mest lesið Eineltið byrjar kannski við eldhúsborðið! Birta Róbertsdóttir Skoðun Þegar veikindaleyfi verður að fríi Gunnar Ármannsson Skoðun Icelandair undir verndarvæng ríkisins Kjartan Björgvinsson Skoðun Ég hata þessa manneskju út af lífinu! Hermann Stefánsson Skoðun Hvað kostar samfélag? Orri Jónsson Skoðun Hvaða skilaboð erum við að senda framtíðarkennurum? Eyrún Ósk Hjartardóttir Skoðun Forsætisráðherra endurskrifar söguna og snýr staðreyndum á hvolf Pétur Óskarsson Skoðun Útsæði á diskinn minn! Guðmundur Finnbogason Skoðun Draumsýn menntamála Álfhildur Leifsdóttir ,Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir Skoðun Er norræna módelið refsilaust fyrir seljendur vændis á Íslandi? Ari Logn,Renata Arnórsdóttir,Brynhildur Ragnarsdóttir,Guðný Þorsteinsdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Ert þú gervigreindarsóði? Marín Jónsdóttir skrifar Skoðun Smjörklípa Þorgerðar Hjörvar Sigurðsson skrifar Skoðun Þegar undantekningarnar verða að stefnu Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Foreldraupplifun Sólný Pálsdóttir skrifar Skoðun Til varnar tímanum Eva Harðardóttir,Katrín Ólína Pétursdóttir skrifar Skoðun Forsætisráðherra endurskrifar söguna og snýr staðreyndum á hvolf Pétur Óskarsson skrifar Skoðun Það á að vera gott að eldast á Íslandi Ólafur Þór Gunnarsson,Regína Ásvaldsdóttir skrifar Skoðun Hver reiknar raunverulegan kostnað hagræðingar? Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Einkunnakvarði er ekki námsmat! Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar Skoðun Áframhaldandi skilningsleysi nýliða Kristín Helga Schiöth skrifar Skoðun Gervigreindin getur séð allt. En hver getur séð það sem hún sér? Júlíus Einar Júlíusson skrifar Skoðun Er að eignast barn samfélagsleg busun? Stefnir Húni Kristjánsson skrifar Skoðun Jöfn laun eiga ekki að ráðast af tilviljun Kolbrún Halldórsdóttir skrifar Skoðun Bannað að plata Ágúst Elvar Bjarnason skrifar Skoðun Kvennaknattspyrnan á Íslandi – á meðan Evrópa sækir fram stöndum við í stað Ólafur Thorarensen skrifar Skoðun Látum Loftbrúna vera Sindri S. Kristjánsson skrifar Skoðun Öryggi í umferð framtíðarinnar Jón Gunnar Jónsson skrifar Skoðun „Við“ skiptaráð Dofri Hermannsson skrifar Skoðun Bláskógaskatturinn hefur áhrif víða Sveinn Ægir Birgisson skrifar Skoðun Skrýtnir útreikningar og fjármálalæsi Ásgeir Daníelsson skrifar Skoðun Er mynstrið þitt nægilega djúpt? Ágúst Mogensen skrifar Skoðun Geimvera lendir á Íslandi Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Tvískinnungur ættjarðarástar Gunnlaugur Stefánsson skrifar Skoðun Íslenska Z-kynslóðin hefur hægt um sig Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Ég hata þessa manneskju út af lífinu! Hermann Stefánsson skrifar Skoðun Bandaríkin kjósa – en hver hefur eftirlit með forsetanum? Baldur Johnsen skrifar Skoðun Er norræna módelið refsilaust fyrir seljendur vændis á Íslandi? Ari Logn,Renata Arnórsdóttir,Brynhildur Ragnarsdóttir,Guðný Þorsteinsdóttir skrifar Skoðun Icelandair undir verndarvæng ríkisins Kjartan Björgvinsson skrifar Skoðun Útsæði á diskinn minn! Guðmundur Finnbogason skrifar Skoðun Heimili á hjólum er líka heimili Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir skrifar Sjá meira
Mikil umræða hefur eðlilega skapast um ummæli Heimis Más Péturssonar, framkvæmdastjóra þingflokks Flokks fólksins, þar sem hann hvatti forseta Frakklands til að beita kjarnorkuvopnum gegn Rússum, með öllum þeim milljónum dauðsfalla sem af því myndu leiða. Þegar Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, utanríkisráðherra, var spurð um málið greip hún til aðferðar sem iðulega er kölluð „smjörklípa“. Þar víkur viðkomandi sér undan gagnrýni með því að beina ásökunum að einhverjum öðrum, sem veldur því að athygli og umræða beinast þangað frekar en að upprunalega málefninu. Það er því ákveðin kaldhæðni fólgin í því að Þorgerður fylgdi því eftir með að ásaka aðra um að beita smjörklípunni… Smjörklípa Þorgerðar fólst í því að ásaka Ólaf Ragnar Grímsson, fyrrverandi forseta Íslands, um að standa með Rússum í árásarstríði þeirra gegn Úkraínu. Það virðist vera vegna þess eins að Ólafur er þeirrar skoðunar, eins og flestir þeir sem aðhyllast raunhyggjupólitík umfram tilfinningapólitík, að stækkun NATO til austurs hafi verið ögrun í garð Rússlands og að legið hafi fyrir að slíkt myndi knýja fram átök við Rússland. Meðal skoðanabræðra Ólafs má til dæmis nefna John Mearsheimer, einn fremsta stjórnmálafræðing nútímans, og hagfræðinginn Jeffrey Sachs, sem er sömuleiðis einn þeirra fremstu á sínu sviði. Höfum það á hreinu að vel er hægt að viðurkenna að útbreiðsla NATO til austurs hafi leitt til innrásar Rússlands án þess að í því felist réttlæting á árásinni. Þetta snýst um raunhyggju. Þetta snýst um að skilja að þjóðarleiðtogar eru ekki alltaf sammála um hvað sé rétt og að horfa þurfi til raunverulegra afleiðinga ákvarðana frekar en að heimta að andstæðingar okkar láti einfaldlega undan, viðurkenni að við höfum rétt fyrir okkur og bregðist ekki við. Tvö þemu má greina í þessu. Annars vegar er það sú venja Þorgerðar og ríkisstjórnar Kristrúnar Frostadóttur að taka tilfinningarök fram yfir rök raunhyggjunnar. Hins vegar er það tilhneiging Þorgerðar til að grafa undan trúverðugleika fólks með því að strámanna það í stað þess að takast á við rök viðkomandi. Þetta er ein af birtingarmyndum þess popúlisma sem einkennir Þorgerði og pólitík hennar. Þetta eigum við að fordæma. Við eigum að geta verið ósammála án þess að eigna fólki skoðanir eða ásetning sem það hefur ekki. Það er sérstaklega mikilvægt að stjórnmálamenn tileinki sér þessa afstöðu, því annars er aukin skautun óhjákvæmileg afleiðing.
Er norræna módelið refsilaust fyrir seljendur vændis á Íslandi? Ari Logn,Renata Arnórsdóttir,Brynhildur Ragnarsdóttir,Guðný Þorsteinsdóttir Skoðun
Skoðun Gervigreindin getur séð allt. En hver getur séð það sem hún sér? Júlíus Einar Júlíusson skrifar
Skoðun Kvennaknattspyrnan á Íslandi – á meðan Evrópa sækir fram stöndum við í stað Ólafur Thorarensen skrifar
Skoðun Er norræna módelið refsilaust fyrir seljendur vændis á Íslandi? Ari Logn,Renata Arnórsdóttir,Brynhildur Ragnarsdóttir,Guðný Þorsteinsdóttir skrifar
Er norræna módelið refsilaust fyrir seljendur vændis á Íslandi? Ari Logn,Renata Arnórsdóttir,Brynhildur Ragnarsdóttir,Guðný Þorsteinsdóttir Skoðun