Lífið

„Ég ætla alla­vega að deyja á Ís­landi“

Dóra Júlía Agnarsdóttir skrifar
Leikkonan Eyrún Björk er að gera spennandi hluti í leikhúsheiminum í Danmörku. Hún ræddi við blaðamann um líf sitt og list.
Leikkonan Eyrún Björk er að gera spennandi hluti í leikhúsheiminum í Danmörku. Hún ræddi við blaðamann um líf sitt og list. Aðsend

„Þetta var ekki planið, en þetta er samt allt sem ég óskaði mér og meira til,“ segir hin 27 ára gamla Eyrún Björk Jakobsdóttir. Eyrún starfar sem leikkona í Danmörku en skaust upphaflega upp á stjörnuhimininn árið 2018 í hlutverki sínu sem Stella í Lof mér að falla.

Eyrún flutti út fyrir sex árum og býr með kærastanum sínum Oskari, sem er líka leikari. Mikið vatn hefur runnið til sjávar síðan Eyrún tókst á við sitt fyrsta hlutverk og er hún meðal annars í fullum undirbúningi að æfa veigamikil hlutverk fyrir leikhúsið úti í vetur. 

Þar á meðal fer Eyrún með hlutverk gervigreindarinnar Eliu í verkinu Replika, þar sem hún leikur á móti Söru Hjort Ditlevsen, sem fólk gæti þekkt úr sjónvarpsþáttunum rita. 

Eyrún, til vinstri, fer með hlutverk gervigreindar í verkinu Replika.Rita Blue Biza

Sýningin fékk fimm stjörnur hjá danska sviðslistamiðlinum ISCENE. Um frammistöðu Eyrúnar var skrifað: „Hún leikur svo sannfærandi að ég þarf stundum að minna mig á að hún sé raunveruleg manneskja úr holdi og blóði.“

Eyrún ræddi við blaðamann um líf sitt erlendis og ævintýrin sem fram undan eru.

Hvað varð til þess að þú fluttir út og hvar býrðu?

Ég bý í Kaupmannahöfn en flutti til Danmerkur árið 2020 til að fara í lýðháskóla. Ég ætlaði að ferðast það sumar en Covid setti strik í reikninginn. Mig langaði að komast aðeins frá Íslandi og upplifa eitthvað nýtt.

Systir mín, sem lærði leikstjórn í Danska kvikmyndaskólanum, benti mér á European Film College í Ebeltoft á Jótlandi. Þar býr maður á heimavist í eitt ár og lærir kvikmyndagerð. Ég hafði byrjað að leika árið 2017, þegar ég lék Stellu í Lof mér að falla, en mig langaði líka að prófa aðrar hliðar kvikmyndagerðar.

Ég sótti reyndar líka um í gullsmíði í Tækniskólanum, því ég hafði unnið hjá Jens gullsmiði og hafði mikinn áhuga á því. Ég komst inn á báða staði en valdi lýðháskólann. Þannig að ég pakkaði í tösku og hélt að ég væri bara að flytja út í eitt ár.

Eyrún ætlaði upphaflega að flytja út í eitt ár og nú eru sex ár liðin. Isabella Maria Hale

Hvað ertu að gera þar?

Ég er sjálfstætt starfandi leikkona hérna. Beint eftir lýðháskólann komst ég inn í Den Danske Scenekunstskole, ríkisrekna sviðslistaskólann í Kaupmannahöfn, og útskrifaðist með BA-gráðu árið 2024. Árið sem ég komst inn sóttu sirka þúsund manns um leiklistarnámið, en aðeins 21 pláss var í boði á þremur stöðum í landinu. Við vorum sjö í árganginum í Kaupmannahöfn.

Eyrún var í hópi 21 af rúmlega 1000 sem komst inn í leiklistarskólann. Það var mikil gleði hjá henni á útskriftardaginn. Aðsend

Hvernig er daglegt líf og hversdagsleikinn úti hjá þér?

Það er mjög fjölbreytt. Ég get verið að ferðast með leiksýningu, talsetja eða æfa fyrir nýja sýningu. Í mars var ég til dæmis að leika í ungmennasýningunni Fra Ungdommen i Gentofte á morgnana og The Maids eftir Jean Genet á kvöldin. 

Það er frekar sadómasókískt verk, skemmtileg blanda. Inn á milli fer ég í ræktina, söngtíma og taltíma. Og stundum hef ég ekkert betra að gera en að horfa á þrjár bíómyndir á einum degi.

Eyrún í hlutverki sínu í verkinu The Maids. Stundum horfir hún á þrjár bíómyndir á einum degi og það er einfaldlega eins og heimalærdómur.Magnus Hove

Hvað er skemmtilegast við lífið úti?

Ég elska hversdagsleikann. Að labba beint út á götu í líf og fjör, hoppa upp á hjólið og geta hjólað um allan bæ. Svo er það auðvitað fólkið. Systir mín býr rétt hjá, svo ég get bara hoppað til hennar í heimsókn.

Ég hef eignast frábæra vini í gegnum lýðháskólann, leiklistarskólann og vinnuna hérna. Ég kynntist líka kærastanum mínum á fyrsta ári í leiklistarskólanum. Hann er líka leikari hérna og er að gera það þrusugott.

Eyrun býr úti með kærasta sínum Oskari.Aðsend

En mest krefjandi?

Tungumálið hefur verið mjög krefjandi. Mér tókst einhvern veginn að komast inn í leiklistarskólann með grunnskóladönsku. Ég gerði bara eins og hinir krakkarnir í inntökuprófunum. Ég var auðvitað búin að undirbúa textana mína á dönsku en var með ofboðslega þykkan hreim.

Fyrstu önnina skildi ég satt að segja lítið. Það var aðallega kennt á dönsku en líka aðeins á sænsku og norsku, þannig að ég var alveg rugluð. Eftir svona þrjá mánuði small eitthvað og ég byrjaði bæði að skilja og tjá mig á dönsku. Ég gæti samt í rauninni alveg tekið fyrstu önnina aftur.

Í skólanum fengum við öll einkatíma í talkennslu einu sinni í viku, þar sem unnið var með röddina og leiktexta. Ég fékk líka taltíma utan skólans til að vinna sérstaklega með dönskuna og hreiminn.

Talkennarinn minn þar hefur fylgt mér síðan á fyrsta ári og ég fæ enn hjálp frá henni. Hún verður 94 ára í ár, algjör meistari.

En að kunna tungumálið og að upplifa að maður tilheyri er ekki alveg það sama. Ég tala reiprennandi dönsku í dag en upplifi mig samt alltaf sem útlending.

Hvaða hverfi er í uppáhaldi og af hverju?

Húsnæðismarkaðurinn hérna er ekkert grín. Ég hef haft sjö heimilisföng á sex árum, svo ég hef ágætan samanburð á hverfunum. Akkúrat núna bý ég í Indre By, rétt hjá vötnunum, og elska það. Ég get rölt um vötnin eða skotist í Ørstedsparken og það er stutt í allar áttir.

Eyrún býr í Indre By og elskar það. Myndin er tekin af hundinum Mads og vinkonum Eyrúnar Miru og Ursulu á fallegum vetrardegi.Aðsend

Uppáhalds kaffihús og veitingastaður úti?

Baka d’Busk er ótrúlega skemmtilegur veitingastaður þegar mig langar að fara aðeins fínna út að borða. Ég hef farið þangað nokkrum sinnum í julefrokost með vinkonum mínum. Ég mæli með að biðja um kjallaraherbergið. Leo’s Pizza á Vesterbro er svo solid kostur. Rosalegt bolognese og tiramisu.

Uppáhalds kaffihúsið mitt er Sonny á Frederiksberg. Það er snilld að sitja þar úti í sólinni. Svo elska ég líka Café Dyrehaven á Vesterbro, geggjaður bröns.

Hvernig er draumadagur fyrir þig úti?

Ég er eiginlega að eiga draumadaginn minn þegar ég svara þessu. Ég vaknaði klukkan átta, gerði mér geggjaðan kaffibolla og morgunmat og borðaði uppi í rúmi á meðan ég horfði á eina krefjandi kvikmynd. Best er að horfa á þær á morgnana meðan athyglin er í lagi. 

Svo er ég að passa hund bestu vinkonu minnar þannig að við fórum í göngutúr um vötnin og keyptum snúð í Torvehallerne. Síðan hef ég verið heima að undirbúa það sem er fram undan. Núna ætla ég í ræktina og svo hoppa ég yfir til systur minnar í mat. Fullkomið.

Hversdagsleikinn er ansi góður hjá Eyrúnu. Hér er hún ásamt Eddu Sól vinkonu sinni á Hróaskeldu í Danmörku.Aðsend

Hefurðu fundið fyrir heimþrá?

Já, mjög oft. Sérstaklega þegar ég er nýbúin að vera heima á Íslandi. Það er alltaf svo erfitt að kveðja. Mér finnst erfitt að velja landið mitt sífellt frá, að velja að sakna og missa af hversdeginum með vinum mínum og fjölskyldu. 

Ég hélt að þetta yrði léttara með árunum en mér finnst það verða erfiðara með hverri heimsókn. 

Þannig að núna er ég bara búin að sætta mig við að vera týpan sem grenjar í Leifsstöð. Það er allt í lagi.

Hvað er fram undan?

Í byrjun nóvember byrja ég að æfa mitt fyrsta aðalhlutverk á sviði í leikhúsinu Mungo Park. Við setjum upp Þrjár systur eftir Anton Tsjekhov í nýrri færeyskri leikgerð eftir skáldið Beini Bergsson, sem var tilnefndur til bókmenntaverðlauna Norðurlandaráðs árið 2022. Sagan gerist í færeysku þorpi og systurnar dreymir um Kaupmannahöfn í stað Moskvu. Frumsýningin verður 22. janúar 2027.

Svo hlakka ég til að leika gervigreindina Eliu aftur í Replika, sem kemur í leikhúsið Aveny-T í Kaupmannahöfn í maí 2027. Við erum nýbúnar að sýna verkið í leikhúsinu Exit Stage í Viborg. Þetta er tvíleikur eftir Söru Hjort Ditlevsen, sem leikur á móti mér og fólk gæti þekkt úr sjónvarpsþáttunum Rita. Verkið er ástarsaga með hryllingsívafi sem byrjar með ókeypis prufuáskrift.

Sýningin fékk fimm stjörnur hjá danska sviðslistamiðlinum ISCENE. Um frammistöðu mína stóð, í íslenskri þýðingu: „Hún leikur svo sannfærandi að ég þarf stundum að minna mig á að hún sé raunveruleg manneskja úr holdi og blóði.“

Svo er fleira fram undan, en það er náttúrulega allt svo mikið leyndarmál í þessum bransa. Það verður bara efni í aðra frétt.
Eyrún hefur slegið í gegn sem gervigreindin Elia í verkinu Replika.Marjun Danielsen

Hvað hefur komið þér mest á óvart við lífið úti?

Bara allt. Þetta var ekki planið, en þetta er samt allt sem ég óskaði mér og meira til.

Hefurðu lent í einhverju steiktu eða fyndnu úti?

Í vor sá ég á Instagram að leikstjóri sem ég kannaðist við í gegnum Danska kvikmyndaskólann væri að leita að leikkonu til að fara með sér og tökukonu til Mexíkó. Þær voru að þróa sína fyrstu mynd í fullri lengd og ætluðu að taka upp prufuefni til að geta sótt um styrki fyrir hana. Ég svaraði story-inu án þess að hugsa mig mikið um og allt í einu var ég á leið til Mexíkó í tvær vikur.

Ekkert okkar hafði komið til Mexíkó áður, þannig að við vorum að leita að tökustöðum um leið og við tókum upp. Við hlógum mikið að því hvað þetta var kaótískt, en þetta var samt geggjaður máti að vinna á. Það gerast svo skemmtilegir hlutir þegar maður hefur ekki tíma til að stoppa og ofhugsa hverja listræna ákvörðun.

Við byrjuðum í Mexíkóborg og fórum svo til Oaxaca, þar sem okkur tókst líka að fá leikkonu frá Mexíkó til liðs við okkur. 

Svo fundum við einhvern gæja til að leiðsegja okkur einn daginn. Hann klessti bílinn okkar, svo við létum einn dag duga.
Gerda og Sarah samstarfskonur Eyrúnar í Mexíkóferðinni ævintýraríku.Aðsend

Sérðu fyrir þér að búa alltaf úti eða kallar Ísland á þig?

Ég ætla allavega að deyja á Íslandi.

Hvað stendur upp úr frá lífinu úti hingað til?

Það er erfitt að velja eitt, en ætli það sé ekki að útskrifast úr leiklistarskólanum árið 2024. Á öðru ári fékk ég heiðursstyrk fyrir framúrskarandi árangur í náminu. Að geta síðan starfað sem leikkona hérna er eitthvað sem ég er mjög stolt af.

Eyrún er stolt af því að geta starfað sem leikkona úti. Hér er plakat fyrir væntanlega verkefið Daimon sem hófst í Mexíkó. Gerda Falk





Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.