Skattahækkanir sem beinast gegn Suðurlandi Ásta Stefánsdóttir skrifar 20. október 2026 20:02 Skattaárátta ríkisstjórnarinnar bitnar illa á Suðurkjördæmi. Boðaður er sérstakur skattur á ferðamannastaði í Bláskógabyggð, sem mun hafa áhrif langt út fyrir sveitarfélagið. Auk þess stendur til að hækka virðisaukaskatt á baðlón, sem eru langflest á Suðurlandi og eru burðarásinn í uppbyggingu þar á síðustu árum. Þá er ótalin hækkun á kílómetragjaldi sem kemur verst niður á landsbyggðinni. Sveitarstjórnarfólk í uppsveitum Árnessýslu hefur undanfarna daga rætt við ráðamenn. Frasinn „við heyrum hvað þið eruð að segja“ glymur í eyrum, en tilfinningin eftir þessa fundi er að ekki sé tekið mark á þeim rökum sem færð eru fram gegn þessum ótrúlegu áformum. Ráðuneytin vinna ekki saman, enginn hefur heildarmyndina, heldur veltist hver um í sínu sílói og hlustar á bergmál eigin raddar. Einnig heyrist að „þetta hafi alltaf staðið til“ og ekki átt að koma neinum á óvart. Það stenst ekki, ríkisstjórnin tók sérstaklega fram að ekki stæði til að hækka skatta á ferðaþjónustuna. Bláskógabyggðarskatturinn er eitthvað sem enginn ætti að hafa haft hugmyndaflug til að leggja fram og á ekkert skylt við hugleiðingar um almennt komugjald eða auðlindagjald. Að ráðast á þrjá ferðamannastaði í einu og sama sveitarfélaginu er alger firra. Slíkt felur í sér stórfellda röskun á samkeppnisstöðu fyrirtækja. Í stað þess að nýta hugmyndir Samtaka ferðaþjónustunnar um að stækka kökuna og vinna að því að ferðamenn stoppi lengur á landinu þá virðist stefnt að því að mylja kökuna niður, engum til hagsbóta. Sumir álíta að það sé heppni að Suðurland sé vinsæll áfangastaður ferðamanna. Það er misskilningur, uppbyggingin á rætur hjá dugmiklu fólki, sem hefur tekið áhættu og haft kjark til að byggja upp og þróa hágæða þjónustu, flest í fjölskyldufyrirtækjum sem hafa byrjað sem litlir sprotar en vaxið og dafnað. Suðurland horfir fram á ástand sem jafna má til hamfara. Einstaklingar hafa lagt mikið undir fjárhagslega við uppbyggingu, sveitarfélög hafa lagt sitt af mörkum til að taka við íbúafjölgun sem hefur fylgt vexti ferðaþjónustunnar, lagt götur, sótt heitt og kalt vatn í iður jarðar, endurbætt íþróttamannvirki og stækkað leik- og grunnskóla. Allt til að bæta og auka lífsgæði og allt stendur þetta höllum fæti ef ráðast á í aðgerðir þær sem ríkisstjórnin boðar; aðgerðir sem raska samkeppni og er ekki hægt að túlka öðruvísi en sem árás á ferðaþjónustu á afmörkuðu svæði. Ég skora á þingmenn Suðurkjördæmis að láta til sín taka og koma í veg fyrir þessa fordæmalausu, ósanngjörnu og óskiljanlegu aðför að kjördæminu. Höfundur er sveitarstjóri Bláskógabyggðar. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Bláskógabyggð Rekstur hins opinbera Ferðaþjónusta Mest lesið Kynslóðin sem mátti aldrei sýna tilfinningar getur ekki lengur sofið Sigríður Svanborgardóttir Skoðun Að nota börn til að næra sitt eigið egó Helga Snædal Skoðun Gott bú stendur undir sér Róbert Ragnarsson Skoðun Hvar er karlmannadagurinn? Íris Erlingsdóttir Skoðun 75 milljóna rangfærsla í samþykktum ársreikningi Krabbameinsfélags Íslands Einar Páll Svavarsson Skoðun Hamfarir í hversdagslegum kringumstæðum Sanna Magdalena Mörtudóttir Skoðun Hver pantaði börn með þessu ADHD? Jóna Kristín Gunnarsdóttir Skoðun Fæðingarorlof fyrir ömmu og afa? Magnea Gná Jóhannsdóttir Skoðun Mikilvægt er að draga lærdóm af smáíbúðamálinu i Hafnarfirði Árni Rúnar Þorvaldsson Skoðun Af þreyttasta frumvarpi íslenskrar þingsögu Árni Guðmundsson Skoðun Skoðun Skoðun Innleiðing nýs einkunnakerfis – Sjaldan verður flýtiverk til fagnaðar skrifar Skoðun Af morðingjum og mannkostum Svala Magnea Ásdísardóttir skrifar Skoðun Skattahækkanir sem beinast gegn Suðurlandi Ásta Stefánsdóttir skrifar Skoðun Hvar er karlmannadagurinn? Íris Erlingsdóttir skrifar Skoðun Ekki orð um heimsins lengstu biðlista… Vilhjálmur Hjálmarsson skrifar Skoðun 75 milljóna rangfærsla í samþykktum ársreikningi Krabbameinsfélags Íslands Einar Páll Svavarsson skrifar Skoðun Virkari eigandi og ný nálgun í stjórn Norðurorku Berglind Ósk Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Hækkun matarverðs lífeyrisþega á undan innri úttekt Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Tengslarof ríkistjórnarinna við atvinnulíf og samfélög á landsbyggðinni Sonja Lind E. Eyglóardóttir skrifar Skoðun Hver pantaði börn með þessu ADHD? Jóna Kristín Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Sniglar á götunni Kristján Logason skrifar Skoðun Kynslóðin sem mátti aldrei sýna tilfinningar getur ekki lengur sofið Sigríður Svanborgardóttir skrifar Skoðun Skipulagið grefur undan séreignarstefnunni – brött brekka fyrir fyrstu kaupendur Sigurður Stefánsson skrifar Skoðun Myrkraverk í Afríku Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Skaðabætur frá síðustu öld Hópur lögmanna skrifar Skoðun Að nota börn til að næra sitt eigið egó Helga Snædal skrifar Skoðun Veitingageiranum var hent undir vagninn Einar Bárðarson skrifar Skoðun Ætlum við að fækka bílum eða bara ökumönnum með sjálfkeyrandi bílum? Kristín Hrefna Halldórsdóttir skrifar Skoðun Úr öskunni í eldinn Ingveldur Anna Sigurðardóttir skrifar Skoðun Hamfarir í hversdagslegum kringumstæðum Sanna Magdalena Mörtudóttir skrifar Skoðun Heimilin eiga ekki alltaf að borga brúsann Alexander M. Árnason skrifar Skoðun Fleiri krónur taldar – fáar nýjar Daði Freyr Ólafsson skrifar Skoðun „The Concert of Three“. Samráð stórveldanna þriggja – ný leið til heimsfriðar? Aðalsteinn Júlíus Magnússon skrifar Skoðun Mikilvægt er að draga lærdóm af smáíbúðamálinu i Hafnarfirði Árni Rúnar Þorvaldsson skrifar Skoðun Farsælt ferðalag fólks og fisks Heiðrún Lind Marteinsdóttir skrifar Skoðun Orkan í ólgusjó efnahagsmála Tinna Traustadóttir skrifar Skoðun Fæðingarorlof fyrir ömmu og afa? Magnea Gná Jóhannsdóttir skrifar Skoðun Gott bú stendur undir sér Róbert Ragnarsson skrifar Skoðun Loksins get ég notið þess að vera heima Ingibjörg Dóra Scheving Bjarnadóttir skrifar Skoðun Þegar samþykki virðist verða að ábyrgð brotaþola Herdís Ósk Sveinbjörnsdóttir skrifar Sjá meira
Skattaárátta ríkisstjórnarinnar bitnar illa á Suðurkjördæmi. Boðaður er sérstakur skattur á ferðamannastaði í Bláskógabyggð, sem mun hafa áhrif langt út fyrir sveitarfélagið. Auk þess stendur til að hækka virðisaukaskatt á baðlón, sem eru langflest á Suðurlandi og eru burðarásinn í uppbyggingu þar á síðustu árum. Þá er ótalin hækkun á kílómetragjaldi sem kemur verst niður á landsbyggðinni. Sveitarstjórnarfólk í uppsveitum Árnessýslu hefur undanfarna daga rætt við ráðamenn. Frasinn „við heyrum hvað þið eruð að segja“ glymur í eyrum, en tilfinningin eftir þessa fundi er að ekki sé tekið mark á þeim rökum sem færð eru fram gegn þessum ótrúlegu áformum. Ráðuneytin vinna ekki saman, enginn hefur heildarmyndina, heldur veltist hver um í sínu sílói og hlustar á bergmál eigin raddar. Einnig heyrist að „þetta hafi alltaf staðið til“ og ekki átt að koma neinum á óvart. Það stenst ekki, ríkisstjórnin tók sérstaklega fram að ekki stæði til að hækka skatta á ferðaþjónustuna. Bláskógabyggðarskatturinn er eitthvað sem enginn ætti að hafa haft hugmyndaflug til að leggja fram og á ekkert skylt við hugleiðingar um almennt komugjald eða auðlindagjald. Að ráðast á þrjá ferðamannastaði í einu og sama sveitarfélaginu er alger firra. Slíkt felur í sér stórfellda röskun á samkeppnisstöðu fyrirtækja. Í stað þess að nýta hugmyndir Samtaka ferðaþjónustunnar um að stækka kökuna og vinna að því að ferðamenn stoppi lengur á landinu þá virðist stefnt að því að mylja kökuna niður, engum til hagsbóta. Sumir álíta að það sé heppni að Suðurland sé vinsæll áfangastaður ferðamanna. Það er misskilningur, uppbyggingin á rætur hjá dugmiklu fólki, sem hefur tekið áhættu og haft kjark til að byggja upp og þróa hágæða þjónustu, flest í fjölskyldufyrirtækjum sem hafa byrjað sem litlir sprotar en vaxið og dafnað. Suðurland horfir fram á ástand sem jafna má til hamfara. Einstaklingar hafa lagt mikið undir fjárhagslega við uppbyggingu, sveitarfélög hafa lagt sitt af mörkum til að taka við íbúafjölgun sem hefur fylgt vexti ferðaþjónustunnar, lagt götur, sótt heitt og kalt vatn í iður jarðar, endurbætt íþróttamannvirki og stækkað leik- og grunnskóla. Allt til að bæta og auka lífsgæði og allt stendur þetta höllum fæti ef ráðast á í aðgerðir þær sem ríkisstjórnin boðar; aðgerðir sem raska samkeppni og er ekki hægt að túlka öðruvísi en sem árás á ferðaþjónustu á afmörkuðu svæði. Ég skora á þingmenn Suðurkjördæmis að láta til sín taka og koma í veg fyrir þessa fordæmalausu, ósanngjörnu og óskiljanlegu aðför að kjördæminu. Höfundur er sveitarstjóri Bláskógabyggðar.
Kynslóðin sem mátti aldrei sýna tilfinningar getur ekki lengur sofið Sigríður Svanborgardóttir Skoðun
75 milljóna rangfærsla í samþykktum ársreikningi Krabbameinsfélags Íslands Einar Páll Svavarsson Skoðun
Skoðun 75 milljóna rangfærsla í samþykktum ársreikningi Krabbameinsfélags Íslands Einar Páll Svavarsson skrifar
Skoðun Tengslarof ríkistjórnarinna við atvinnulíf og samfélög á landsbyggðinni Sonja Lind E. Eyglóardóttir skrifar
Skoðun Kynslóðin sem mátti aldrei sýna tilfinningar getur ekki lengur sofið Sigríður Svanborgardóttir skrifar
Skoðun Skipulagið grefur undan séreignarstefnunni – brött brekka fyrir fyrstu kaupendur Sigurður Stefánsson skrifar
Skoðun Ætlum við að fækka bílum eða bara ökumönnum með sjálfkeyrandi bílum? Kristín Hrefna Halldórsdóttir skrifar
Skoðun „The Concert of Three“. Samráð stórveldanna þriggja – ný leið til heimsfriðar? Aðalsteinn Júlíus Magnússon skrifar
Skoðun Mikilvægt er að draga lærdóm af smáíbúðamálinu i Hafnarfirði Árni Rúnar Þorvaldsson skrifar
Kynslóðin sem mátti aldrei sýna tilfinningar getur ekki lengur sofið Sigríður Svanborgardóttir Skoðun
75 milljóna rangfærsla í samþykktum ársreikningi Krabbameinsfélags Íslands Einar Páll Svavarsson Skoðun