Innherji

Kynna vaxtar­plan sem gæti skilað 300 milljarða viðsnúningi í af­komu ríkis­sjóðs

Hörður Ægisson skrifar
Jón Sigurðsson, forstjóri Stoða. Þegar áhrif aukins hagvaxtar, sölu ríkiseigna, lægri fjármagnskostnaðar og útgjaldaaðhalds eru tekin saman áætlar fjárfestingafélagið að afkoma ríkissjóðs gæti batnað um samtals 283 milljarða króna árið 2031.
Jón Sigurðsson, forstjóri Stoða. Þegar áhrif aukins hagvaxtar, sölu ríkiseigna, lægri fjármagnskostnaðar og útgjaldaaðhalds eru tekin saman áætlar fjárfestingafélagið að afkoma ríkissjóðs gæti batnað um samtals 283 milljarða króna árið 2031.

Með markvissum aðgerðum til að efla fimm helstu útflutningsgreinar landsins, sölu ríkiseigna og auknu aðhaldi í opinberum útgjöldum væri hægt að auka hagvöxt um nær helming frá núverandi spám og bæta afkomu ríkissjóðs um hátt í 300 milljarða króna á næstu fimm árum, samkvæmt tillögum sem forstjóri Stoða hefur kynnt hluthöfum. Telur hann að með slíkum aðgerðum mætti jafnframt lækka skuldir ríkissjóðs um helming og draga verulega úr vaxtakostnaði hins opinbera.


Tengdar fréttir

Ísland í þeirri sjaldgæfu stöðu að geta í raun ákveðið hvaða hagvöxt við viljum

Forstjóri eins stærsta fjárfestingafélags landsins brýnir stjórnvöld til að taka forystu í að breyta umræðu um efnahagsmál og rekstur fyrirtækja og segir tal um „ofsagróða“ á villigötum heldur hafi þvert móti arðsemi og samkeppnisstaða fyrirtækja „átt undir högg að sækja,“ einkum vegna aukinnar gjaldtöku hins opinbera, hárra launa og hás vaxtastigs. Hann segir að vegna tækifæranna sem felast í auðlindum landsins þá sé Ísland í þeirri sjaldgæfu stöðu meðal þjóða að geta í raun ákveðið hvaða hagvöxt við viljum hafa næstu árin.

Sala á hlutum í fimm ríkis­félögum gæti lækkað vaxta­gjöld um yfir 50 milljarða

Andvirði sölu á eignarhlutum ríkisins í fimm fyrirtækjum, meðal annars öll hlutabréf í Landsbankanum og tæplega helmingshlutur í Landsvirkjun, gæti þýtt að hægt yrði að greiða niður skuldir ríkissjóðs um liðlega þúsund milljarða og um leið lækka árlegan vaxtakostnað um nærri helming, að sögn forstjóra eins umsvifamesta fjárfestingafélags landsins.

Áform um að vaxa út úr vandanum sögð bjartsýn eða í „versta falli hrein tálsýn“

Fyrirætlanir stjórnvalda um að hægt verði að ná tökum á ríkisrekstrinum með því að vaxa út úr vandanum eru „í besta falli bjartsýnar og í versta falli hrein tálsýn“, að mati greinenda Acro verðbréfa, en ófjármögnuð útgjaldaloforð hafa nú þegar valdið hækkun fjármagnskostnaðar á markaði. Án eignasölu verður nokkur bið á skuldalækkun ríkissjóðs og því er þeim varnarorðum beint að ríkisstjórninni að boðaður halli á lánsfjárjöfnuði næstu árin, sem er í sögulegu samhengi umtalsverður, gæti hæglega orðið jafnvel enn meiri.

Telja að hallinn geti orðið yfir fjörutíu milljarðar þrátt fyrir fyrir­heit um af­gang

Útlit er fyrir að afkoma ríkissjóðs á árinu 2027 verði umtalsvert lakari en lagt er upp með í nýju fjárlagafrumvarpi, að mati greinenda Acro, sem telja líklegustu sviðsmyndina vera halli upp á 43 milljarða. Forsendur frumvarpsins eru sagðar of bjartsýnar, „svo ekki sé fastar að orði kveðið“, miðað við hægari efnahagsumsvif og án frekari aðgerða sé erfitt að sjá hvernig markmið um fimm milljarða afgang geti gengið eftir.

Hundrað milljarða ferðaþjónusturisi verður til sam­hliða skráningu á markað

Stjórnendur Bláa lónsins og Arctic Adventures stefna að sameiningu fyrirtækjanna, sem myndi búa til risa í íslenskri ferðaþjónustu með hlutafjárvirði upp á samtals yfir hundrað milljarða, samhliða áformum um skráningu á markað síðla hausts þar sem ætlunin er að sækja mögulega meira en tíu milljarða. Miðað við fyrirhuguð skiptihlutföll í samrunanum þá munu Stoðir, stór eigandi í báðum félögum, verða annar umsvifamesti hluthafinn með nærri fimmtán prósenta hlut.

Óttast „harða lendingu“ með efna­hags­sam­drætti og veru­legu at­vinnu­leysi

Skýr merki eru komin fram um að hagkerfið sé að kólna mun hraðar en flestar hagspár hafa gert ráð fyrir og hætta er á að áfram dragi úr hagvexti á næsta ári samhliða verulega auknu atvinnuleysi, að mati greinenda Acro. Þeir óttast að þrálát verðbólga og háar verðbólguvæntingar komi í veg fyrir að Seðlabankinn geti brugðist við versnandi efnahagsástandi með vaxtalækkunum og að niðurstaðan verði „hörð lending“.

Sam­runanum ætlað að renna fleiri stoðum undir Bláa lónið utan Svarts­engis

Fyrirhugaður samruni Bláa Lónsins og Arctic Adventures á meðal annars að renna styrkari stoðum undir áform um skráningu ferðaþjónusturisans í Kauphöll og draga úr rekstraráhættu sem tengist jarðhræringum í Svartsengi. Stjórnendur félaganna telja „nauðsynlegt“ að ná fram meiri stærðarhagkvæmni í íslenskri ferðaþjónustu.

Stoðir selja í Arion banka fyrir meira en hálfan milljarð

Langsamlega stærsti einkafjárfestirinn í Arion minnkaði lítillega um stöðuna sína í liðnum mánuði þegar fjárfestingafélagið Stoðir stóð að sölu á bréfum í bankanum fyrir nærri sex hundruð milljónir króna.

Ís­lenskir bankar „allt of litlir“ og sér engar hindranir í vegi sam­runa Kviku og Arion

Einn stærsti hluthafi Arion og Kviku vonast til að boðuð sameining bankanna „gangi hratt og vel fyrir sig“ og sér ekki hvaða fyrirstaða ætti að vera fyrir samrunanum út frá samkeppnislegum sjónarmiðum enda sé mikil samkeppni á öllum sviðum innlendrar bankaþjónustu. Forstjóri Stoða er sem fyrr afar gagnrýninn á vaxtastefnu Seðlabankans, sem hann segir að sé komin í „algjöra sjálfheldu“, og að hátt vaxtastig er farið að valda verðhækkunum á nýbyggingum.

„Á rangri leið“ með háa raun­vexti sem feli í sér til­færslu fjár­muna milli kynslóða

Áframhaldandi áhersla Seðlabankans á að viðhalda yfir þriggja prósenta raunvaxtaaðhaldi samhliða litlum sem engum hagvexti sýnir svo „ekki verður um villst“ að bankinn er á „fullkomlega rangri leið“, að mati forstjóra eins umsvifamesta fjárfestingafélags landsins, sem kallar eftir umræðu um hvað sé meðal annars eðlilegt raunvaxtastig og verðbólgumarkmið fyrir hagkerfið. Hann segir hið háa vaxtastig ekki vera neitt annað en tilfærsla á fjármunum milli kynslóða þar sem þeir sem eldri eru njóta ávinningsins í formi hærri ávöxtunar á innlán og ellilífeyri.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×