Innherji

Úr­eltar for­sendur sagðar hafa leitt til stór­fellds van­mats á íbúðaþörf

Hörður Ægisson skrifar
Flestir Íslendingar selja fasteignir sínar áður en þeir kaupa nýjar. Mynd/ Vilhelm.
Flestir Íslendingar selja fasteignir sínar áður en þeir kaupa nýjar. Mynd/ Vilhelm.

Forsendur skipulagsyfirvalda á höfuðborgarsvæðinu um þörf fyrir nýjar íbúðir eru byggðar á úreltum forsendum um fólksfjölgun og stærð heimila, að sögn framkvæmdastjóra þróunarfélags á fasteignamarkaði, með þeim afleiðingum að eftirspurnin hefur verið stórlega vanmetin. Útlit er fyrir að þurfi að byggja ríflega tvöfalt fleiri íbúðir en gert var ráð fyrir þegar vaxtarmörk höfuðborgarsvæðisins voru ákveðin.

Í ítarlegri grein Sigurðar Stefánssonar, framkvæmdastjóra Aflvaka þróunarfélags sem kemur að fyrirhugaðri uppbyggingu í Gunnarshólma í Kópavogi, sem birtist á Innherja í morgun gagnrýnir hann harðlega að skipulagsyfirvöld hafi ekki tekið nægilegt tillit til lýðfræðilegra breytinga, einkum fækkunar einstaklinga á hverju heimili og ört vaxandi fjölda eldra fólks.

Að mati Sigurðar hafa þessar skekkjur í forsendum skipulagsáætlana átt stóran þátt í viðvarandi lóða- og íbúðaskorti, auk þess að stuðla að hækkun fasteignaverðs og verðbólgu. Í svæðisskipulagi höfuðborgarsvæðisins, sem var samþykkt árið 2015 og gildir til 2040, var áætlað að byggja þyrfti um 32 þúsund íbúðir til að mæta fjölgun íbúa um 70 þúsund. Í grein Sigurðar er hins vegar bent á að uppfærðar mannfjöldaspár geri nú ráð fyrir um 110 þúsund íbúa fjölgun á sama tímabili.

Þegar jafnframt er tekið tillit til þess að heimili verða sífellt fámennari telur hann að þörfin sé í raun um 66 þúsund íbúðir, eða rúmlega tvöföld sú sem upphaflega var miðað við.

Í nýjustu þróunaráætlun höfuðborgarsvæðisins frá 2024 er miðað við að hver ný íbúð rúmi að jafnaði 2,46 íbúa. Sigurður nefnir að þetta samræmist illa langtímaþróun á Íslandi, en frá 1970 til 2025 fjölgaði landsmönnum um 1,67 fyrir hverja nýja íbúð. Sé miðað við þá þróun verður reiknuð íbúðaþörf um 47 prósentum meiri en forsendur þróunaráætlunarinnar gefa til kynna.

Þá vekur hann jafnframt athygli á ósamræmi milli áætlana sveitarfélaganna sjálfra. Í húsnæðisáætlunum þeirra fyrir árið 2026 er samanlagt gert ráð fyrir um 49.400 nýjum íbúum á næstu tíu árum og byggingu 26 þúsund íbúða. Það jafngildir aðeins 1,9 íbúum á hverja nýja íbúð. Þrátt fyrir þetta sé enn miðað við mun hærra hlutfall þegar metið er hvort nægilegt byggingarland sé innan skilgreindra vaxtarmarka höfuðborgarsvæðisins.

Nær níu af hverjum tíu nýjum íbúðum yfir 80 fermetrar

Framkvæmdastjóri Aflvaka, félag sem meðal annars fjárfestarnir Andri Sveinsson og Birgir Már Ragnarsson standa að baki og áformar uppbyggingu fimm þúsund íbúða lífgæðakjarna fyrir 60 ára og eldri, telur jafnframt að skipulagsforsendur hafi leitt til þess að byggðar séu of margar stórar íbúðir á sama tíma og eftirspurn færist í auknum mæli yfir í minni íbúðir.

Samkvæmt úttekt sem hann vísar til voru 900 nýlegar íbúðir auglýstar til sölu á höfuðborgarsvæðinu í byrjun október. Þar af voru 775 íbúðir, eða um 86 prósent, að minnsta kosti 80 fermetrar að stærð. Svipaða mynd megi sjá í yfirstandandi uppbyggingu. Af tæplega 3.500 íbúðum í byggingu, samkvæmt stærðarflokkun Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar, eru um 70 prósent 80 fermetrar eða stærri. Á sama tíma fjölgar einmenningsheimilum og heimilum án barna hratt. Samkvæmt spá þróunarfélafgsins Aflvaka verða níu af hverjum tíu nýjum heimilum sem bætast við á næstu fimmtán árum án barna.

Sigurður segir að þessi þróun hafi ekki verið nægilega höfð til hliðsjónar við skipulagningu nýrra íbúðahverfa. Afleiðingin geti orðið sú að stórar og dýrar nýbyggingar seljist hægt á meðan áfram verði skortur á minni íbúðum.

Skipulagsyfirvöld horfi framhjá öldrun þjóðarinnar

Þá gagnrýnir hann sérstaklega að í sex af sjö húsnæðisáætlunum sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu frá 2025 sé gert ráð fyrir óbreyttri hlutfallslegri aldurssamsetningu íbúa næsta áratuginn. Þetta sé þvert á mannfjöldaspár Hagstofunnar um mikla fjölgun eldra fólks. Sigurður bendir á að um 60 prósent heimila fólks 65 ára og eldra séu einmenningsheimili. Fjölgun þessa aldurshóps kalli því á hlutfallslega fleiri íbúðir en fjölgun yngri aldurshópa.

Hann telur brýnt að endurskoða forsendur svæðisskipulagsins og auka sveigjanleika sveitarfélaga til að skipuleggja ný byggingarsvæði utan núverandi vaxtarmarka. „Skekkja í skipulagi dagsins í dag verður að óseldum íbúðum og skorti eftir fimm til tíu ár,“ segir í greininni.

Sigurður varar við því að áframhaldandi mistök í húsnæðisáætlunum geti reynst kostnaðarsöm, bæði fyrir heimilin og byggingarfyrirtæki sem fjárfesta á grundvelli þeirra. „Reikninginn greiða heimilin, í skorti, hærra verði og meiri verðbólgu,“ segir hann og bendir jafnframt á að fjármagn byggingaraðila geti setið fast í óseldum eignum.


Tengdar fréttir

Ósamræmi og skekkjur í for­sendum skipu­lags­yfir­valda dýru verði keyptar

Ósamræmi og skekkjur í forsendum skipulags á höfuðborgarsvæðinu eru dýru verði keyptar. Á sama tíma og skortur er á íbúðarhúsnæði standa nýjar íbúðir sem svara ekki þörf auðar og fasteignaverð er í hæstu hæðum. Það er kominn tími til að skipulagsyfirvöld lesi og skilji gögn sem móta þörfina í framtíð fyrir húsnæði og híbýli fólks.

Gjöld og byggingarréttur geta kostað 445 þúsund á hvern fer­metra íbúðar

Sveitarfélögin, einkum á höfuðborgarsvæðinu, geta lagt verulega af mörkum til að draga úr verðbólgu til lengri tíma með auknu framboði byggingarlands, lægri kostnaði við byggingarrétt og hraðari skipulagsferlum. Reiknidæmi fyrir uppbyggingu í Reykjavík sýnir að byggingarréttur, gjöld, samningskvaðir og fjármagnskostnaður geta saman numið um 445 þúsund krónum á hvern sölufermetra íbúðar áður en kostnaður við bygginguna sjálfa kemur til.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×