Hvað fær Ísland fyrir fiskeldi? Kristinn H. Gunnarsson skrifar 12. október 2026 13:00 Það eru ekki nema rétt um 10 ár síðan laxeldi í sjókvíuum hér við land varð að atvinnugrein sem munar um. Aðstæður eru góðar, vaxtarmöguleikar miklir og laxeldið er arðvænlegt. Í dag er Ísland 6. mesta framleiðsluland í heimi.með um 50 þúsund tonna framleiðslu í fyrra. Í ár stefnir í að útflutningsverðmæti verði um 70 milljarðar króna. Framleiðslumöguleikarnir, að meðtöldu landeldi eru taldir vera um 400 þúsund tonn árlega. Þúsund störf Við fiskeldið, sem er nánast eingöngu laxeldi, starfa liðlega 1.000 manns. Það eru beinu störfin. Ætla má að óbeinu störfin séu jafnmörg. Launagreiðslur eru samkvæmt tölum Hagstofunnar 8,4 milljarðar króna á fyrstu átta mánuðum ársins. Það gerir liðlega einn milljarður króna á mánuði. Viðsnúningur á Vestfjörðum Laxeldið er lang umfangsmest á Vestfjörðum enn sem komið. Þar eru stærstu fyrirtækin, þar hefur verið gríðarleg erlend fjárfesting og þar eru störfin flest. Síðustu sex árin hefur fólki fjölgað á Vestfjörðum meira en fjölgunin hefur verið á landsvísu. Það er mikill viðsnúningur frá þrjátíu ára tímabili á undan þegar fólki fækkað um 35% á Vestfjörðum á sama tíma og landsmönnum fjölgaði um 25-30%. Vestfirðir eru loksins í sókn, þeir eru loksins hluti af landsþróuninni. En það vantar um 6.000 manns sem væru búsettir hér ef íbúaþróun hefði fylgt landsþróuninni. Áttföldun möguleg Það er mögulegt með góðu móti að áttafalda umsvifin í fiskeldinu. Það er mat opinberra aðila og byggt á því að spilla ekki umhverfinu. Útflutningstekjur gætu verið 450 – 500 milljarðar króna á hverju ári. Þessi nýju verðmæti sem sköpuð verða munu standa undir bættum lífskjörum almennings á komandi árum. Leiðin er að nýta auðlindir landsins til þess að skapa verðmæti og ný störf. Áframhaldandi uppbygging Áframhaldandi uppbygging fiskeldis er nauðsynleg. Til þess þarf bætt lagaumhverfi sem hvetur til aukinnar fjárfestingar og framleiðslu. Það er ekki spurning hvort þurfi aukna verðmætaframleiðslu heldur hitt að án hennar munu lífskjör almennings staðna og síðan versna. Einkafyrirtæki og erlendir fjárfestar hafa á fáum árum byggt upp nýjan öflugan atvinnuveg á landinu. Innlend stjórnvöld þurfa að fylgja því eftir og styðja við áframhaldandi uppbyggingu. Ísland fær bætt lífskjör almennings fyrir fiskeldi. Höfundur er ritstjóri. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Kristinn H. Gunnarsson Fiskeldi Mest lesið Eineltið byrjar kannski við eldhúsborðið! Birta Róbertsdóttir Skoðun Þegar veikindaleyfi verður að fríi Gunnar Ármannsson Skoðun Icelandair undir verndarvæng ríkisins Kjartan Björgvinsson Skoðun Ég hata þessa manneskju út af lífinu! Hermann Stefánsson Skoðun Hvað kostar samfélag? Orri Jónsson Skoðun Hvaða skilaboð erum við að senda framtíðarkennurum? Eyrún Ósk Hjartardóttir Skoðun Forsætisráðherra endurskrifar söguna og snýr staðreyndum á hvolf Pétur Óskarsson Skoðun Útsæði á diskinn minn! Guðmundur Finnbogason Skoðun Draumsýn menntamála Álfhildur Leifsdóttir ,Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir Skoðun Er norræna módelið refsilaust fyrir seljendur vændis á Íslandi? Ari Logn,Renata Arnórsdóttir,Brynhildur Ragnarsdóttir,Guðný Þorsteinsdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Ert þú gervigreindarsóði? Marín Jónsdóttir skrifar Skoðun Smjörklípa Þorgerðar Hjörvar Sigurðsson skrifar Skoðun Þegar undantekningarnar verða að stefnu Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Foreldraupplifun Sólný Pálsdóttir skrifar Skoðun Til varnar tímanum Eva Harðardóttir,Katrín Ólína Pétursdóttir skrifar Skoðun Forsætisráðherra endurskrifar söguna og snýr staðreyndum á hvolf Pétur Óskarsson skrifar Skoðun Það á að vera gott að eldast á Íslandi Ólafur Þór Gunnarsson,Regína Ásvaldsdóttir skrifar Skoðun Hver reiknar raunverulegan kostnað hagræðingar? Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Einkunnakvarði er ekki námsmat! Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar Skoðun Áframhaldandi skilningsleysi nýliða Kristín Helga Schiöth skrifar Skoðun Gervigreindin getur séð allt. En hver getur séð það sem hún sér? Júlíus Einar Júlíusson skrifar Skoðun Er að eignast barn samfélagsleg busun? Stefnir Húni Kristjánsson skrifar Skoðun Jöfn laun eiga ekki að ráðast af tilviljun Kolbrún Halldórsdóttir skrifar Skoðun Bannað að plata Ágúst Elvar Bjarnason skrifar Skoðun Kvennaknattspyrnan á Íslandi – á meðan Evrópa sækir fram stöndum við í stað Ólafur Thorarensen skrifar Skoðun Látum Loftbrúna vera Sindri S. Kristjánsson skrifar Skoðun Öryggi í umferð framtíðarinnar Jón Gunnar Jónsson skrifar Skoðun „Við“ skiptaráð Dofri Hermannsson skrifar Skoðun Bláskógaskatturinn hefur áhrif víða Sveinn Ægir Birgisson skrifar Skoðun Skrýtnir útreikningar og fjármálalæsi Ásgeir Daníelsson skrifar Skoðun Er mynstrið þitt nægilega djúpt? Ágúst Mogensen skrifar Skoðun Geimvera lendir á Íslandi Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Tvískinnungur ættjarðarástar Gunnlaugur Stefánsson skrifar Skoðun Íslenska Z-kynslóðin hefur hægt um sig Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Ég hata þessa manneskju út af lífinu! Hermann Stefánsson skrifar Skoðun Bandaríkin kjósa – en hver hefur eftirlit með forsetanum? Baldur Johnsen skrifar Skoðun Er norræna módelið refsilaust fyrir seljendur vændis á Íslandi? Ari Logn,Renata Arnórsdóttir,Brynhildur Ragnarsdóttir,Guðný Þorsteinsdóttir skrifar Skoðun Icelandair undir verndarvæng ríkisins Kjartan Björgvinsson skrifar Skoðun Útsæði á diskinn minn! Guðmundur Finnbogason skrifar Skoðun Heimili á hjólum er líka heimili Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir skrifar Sjá meira
Það eru ekki nema rétt um 10 ár síðan laxeldi í sjókvíuum hér við land varð að atvinnugrein sem munar um. Aðstæður eru góðar, vaxtarmöguleikar miklir og laxeldið er arðvænlegt. Í dag er Ísland 6. mesta framleiðsluland í heimi.með um 50 þúsund tonna framleiðslu í fyrra. Í ár stefnir í að útflutningsverðmæti verði um 70 milljarðar króna. Framleiðslumöguleikarnir, að meðtöldu landeldi eru taldir vera um 400 þúsund tonn árlega. Þúsund störf Við fiskeldið, sem er nánast eingöngu laxeldi, starfa liðlega 1.000 manns. Það eru beinu störfin. Ætla má að óbeinu störfin séu jafnmörg. Launagreiðslur eru samkvæmt tölum Hagstofunnar 8,4 milljarðar króna á fyrstu átta mánuðum ársins. Það gerir liðlega einn milljarður króna á mánuði. Viðsnúningur á Vestfjörðum Laxeldið er lang umfangsmest á Vestfjörðum enn sem komið. Þar eru stærstu fyrirtækin, þar hefur verið gríðarleg erlend fjárfesting og þar eru störfin flest. Síðustu sex árin hefur fólki fjölgað á Vestfjörðum meira en fjölgunin hefur verið á landsvísu. Það er mikill viðsnúningur frá þrjátíu ára tímabili á undan þegar fólki fækkað um 35% á Vestfjörðum á sama tíma og landsmönnum fjölgaði um 25-30%. Vestfirðir eru loksins í sókn, þeir eru loksins hluti af landsþróuninni. En það vantar um 6.000 manns sem væru búsettir hér ef íbúaþróun hefði fylgt landsþróuninni. Áttföldun möguleg Það er mögulegt með góðu móti að áttafalda umsvifin í fiskeldinu. Það er mat opinberra aðila og byggt á því að spilla ekki umhverfinu. Útflutningstekjur gætu verið 450 – 500 milljarðar króna á hverju ári. Þessi nýju verðmæti sem sköpuð verða munu standa undir bættum lífskjörum almennings á komandi árum. Leiðin er að nýta auðlindir landsins til þess að skapa verðmæti og ný störf. Áframhaldandi uppbygging Áframhaldandi uppbygging fiskeldis er nauðsynleg. Til þess þarf bætt lagaumhverfi sem hvetur til aukinnar fjárfestingar og framleiðslu. Það er ekki spurning hvort þurfi aukna verðmætaframleiðslu heldur hitt að án hennar munu lífskjör almennings staðna og síðan versna. Einkafyrirtæki og erlendir fjárfestar hafa á fáum árum byggt upp nýjan öflugan atvinnuveg á landinu. Innlend stjórnvöld þurfa að fylgja því eftir og styðja við áframhaldandi uppbyggingu. Ísland fær bætt lífskjör almennings fyrir fiskeldi. Höfundur er ritstjóri.
Er norræna módelið refsilaust fyrir seljendur vændis á Íslandi? Ari Logn,Renata Arnórsdóttir,Brynhildur Ragnarsdóttir,Guðný Þorsteinsdóttir Skoðun
Skoðun Gervigreindin getur séð allt. En hver getur séð það sem hún sér? Júlíus Einar Júlíusson skrifar
Skoðun Kvennaknattspyrnan á Íslandi – á meðan Evrópa sækir fram stöndum við í stað Ólafur Thorarensen skrifar
Skoðun Er norræna módelið refsilaust fyrir seljendur vændis á Íslandi? Ari Logn,Renata Arnórsdóttir,Brynhildur Ragnarsdóttir,Guðný Þorsteinsdóttir skrifar
Er norræna módelið refsilaust fyrir seljendur vændis á Íslandi? Ari Logn,Renata Arnórsdóttir,Brynhildur Ragnarsdóttir,Guðný Þorsteinsdóttir Skoðun