„Við erum ekkert að biðja um einhverja sérmeðferð“ Áróra L Davíðsdóttir skrifar 11. október 2026 19:21 Unnur Brá Konráðsdóttir, sveitarstjóri Borgarbyggðar og Skorradalshrepps og fyrrverandi forseti Alþingis, hér ásamt málverki af sjálfri sér á Alþingi. Myndin er úr safni. Vísir/Sigurjón Unnur Brá Konráðsdóttir, sveitarstjóri í Borgarbyggð, hefur kært menntamálaráðuneytið og Miðstöð menntunar og skólaþjónustu fyrir að neita að afhenda sveitarfélaginu niðurstöður úr PISA-könnunum. Hún segir það skjóta skökku við að ráðuneytið afhendi stærstu sveitarfélögunum slíkar upplýsingar en ekki minni sveitarfélögum á landsbyggðinni.
Unnur segist taka því hlutverki mjög alvarlega að sveitarfélögin í landinu beri ábyrgð á menntun grunnskólabarna. „En til þess að geta lagað það sem stendur ekki nógu vel er auðvitað nauðsynlegt að hafa aðgang að upplýsingum svo maður geti mælt sjálfan sig og sinn árangur til framtíðar og notað þær sem viðmið um það hvort að þær aðgerðir sem maður grípur til skili árangri eða ekki,“ segir Unnur Brá en hún var til viðtals á Sprengisandi á Bylgjunni í morgun. Hún hafi óskað eftir niðurstöðum PISA-kannana fyrir báða grunnskólana í Borgarbyggð, Grunnskóla Borgarfjarðar og Grunnskólann í Borgarnesi. Því hafi hins vegar verið hafnað á grundvelli smæðar sveitarfélagsins og að niðurstöðurnar gætu reynst persónugreinanlegar upplýsingar. Í kjölfarið hafi hún vísað málinu til kærunefndar um upplýsingamál. Sveitarfélagið beri ábyrgð Sveitarfélagið sé ekki að óska eftir persónugreinanlegum upplýsingum um nemendur heldur séu niðurstöðurnar um færni nemenda lykillinn að árangri. „Við erum einfaldlega að biðja um þær upplýsingar sem geta hjálpað okkur að sjá hvar við stöndum. Við ætlum ekki að nota þetta til að skamma einhvern eða bera okkur saman við aðra skóla heldur einfaldlega líta í eigin barm. Við berum ábyrgð á okkar börnum,“ segir Unnur. Ráðuneytið hafi hins vegar birt niðurstöður sjö stærstu sveitarfélaganna á landinu. Það eru Reykjavík, Kópavogur, Hafnarfjörður, Garðabær, Mosfellsbær, Reykjanesbær og Akureyri. Í svarinu sé vísað til þess að gögnin séu aðgengileg á vef OECD. Unnur segir slíkt verkefni kosta fjármuni og að hún vilji verja fjármunum til menntamála í annað en þessa vinnu. „Ég geti farið að sækja þau þar, það er að segja þá fyrir stærra svæði og farið í einhverja gagnavinnslu með einhverjum leyfum sem þarf til þess. Það kostar auðvitað fjármuni sem sveitarfélagið hefur kannski ekki á lausu,“ segir Unnur. Segir málið alvarlegt Það skjóti skökku við að menntamálaráðuneytið geti útvegað sjö stærstu sveitarfélögunum slíkar upplýsingar en ekki landsbyggðinni. „Það er alvarlegt og þess vegna vísaði ég málinu til kærunefndar um upplýsingamál.“ Hvorki verið að óska eftir sérmeðferð né forréttindum Sveitarfélögin eigi erindi í umræðuna um menntamál og niðurstöður PISA-kannana. Rætt sé við kennara og ríkisstjórnarmeðlimi en ekki sveitarfélögin. „Það eru auðvitað sveitarfélögin sem annast framkvæmdina. Við í rauninni berum ábyrgðina gagnvart fólkinu og við eigum auðvitað að fá tæki og tól frá stjórnvöldum til þess að bregðast við og gera betur.“ Hún vonast eftir skjótri úrlausn málsins og segir Borgarbyggð ekki vera að óska eftir sérmeðferð. „Við erum ekkert að biðja um nein forréttindi, við erum ekkert að biðja um einhverja sérmeðferð. Við erum einfaldlega bara að biðja um að fá gögn þannig að við getum staðið jafnfætis þessum sjö stærstu sveitarfélögum á Íslandi og fá tækin og tólin til þess að gera betur.“
Sprengisandur Bylgjan Borgarbyggð PISA-könnun Skóla- og menntamál Grunnskólar Börn og uppeldi Tengdar fréttir PISA: „Þetta er ákveðinn sorgardagur“ Jón Pétur Zimsen þingmaður Sjálfstæðisflokksins segir PISA-niðurstöðurnar ekki koma sér neitt á óvart. Hann hafi verið búinn að spá fyrir um hrap í mælingum. Hann segir þörf á samfélagsátaki til að bregðast við. Ráðherra boðaði fjölda aðgerða í kynningu sinni fyrr í dag. 8. september 2026 13:19 Aðeins um 28 prósent innflytjenda með grunnfærni í lesskilningi Niðurstöður PISA-könnunarinnar sýna að einungis 28 prósent nemenda af erlendum uppruna búa yfir grunnhæfni í lesskilningi. Munurinn minnkar þegar tekið er tillit til félags- og efnahagslegrar stöðu en hverfur ekki. Niðurstöður sýna að algengt sé að nemendur úr hópi innflytjenda standi verr að vígi en aðrir nemendur með engan erlendan bakgrunn, sama hvort litið er til læsis, vísinda eða stærðfræði. 8. september 2026 22:02 Spreyttu þig á PISA-spurningunum Íslenskum nemendum gengur sífellt verr samkvæmt niðurstöðum nýju PISA-könnunarinnar. Hér getur þú spreytt þig á spurningum síðustu ára. 17. september 2026 08:00 Mest lesið Akranes og Akureyri dæmi þar sem hættan sé raunveruleg Innlent Rispur á bílum út um allan bæ og tjón upp á hundruð þúsunda Innlent „Þetta var algjörlega magnað“ Innlent Hafi verið beggja vegna borðsins Innlent Tugir slösuðust vegna skýstróka á Sikiley Erlent „Sólveig Anna virðist vera með mig algjörlega á heilanum“ Innlent Telur núna sannað að fundin sé hin rétta Brattahlíð Eiríks rauða Innlent Kom af fjöllum eftir tilkynningu Trump um orkuvopnahlé Erlent „Við erum ekkert að biðja um einhverja sérmeðferð“ Innlent Nýtt flóð í Nepal hreif með sér brýr og hús Erlent Fleiri fréttir Nýr meirihluti í Suðurnesjabæ „Við erum ekkert að biðja um einhverja sérmeðferð“ Brotist inn í tvö fyrirtæki Akranes og Akureyri dæmi þar sem hættan sé raunveruleg Of snemmt að segja til um hvernig eldurinn kom upp Hafi verið beggja vegna borðsins „Þetta var algjörlega magnað“ Rispur á bílum út um allan bæ og tjón upp á hundruð þúsunda Bein útsending: Niðurstöður Samtalsins kynntar Uppbyggilegra samtal en í athugasemdum „Sólveig Anna virðist vera með mig algjörlega á heilanum“ Mótmæla sjókvíaeldi í tveimur landshlutum „Ég hef áhyggjur af Alþýðusambandinu“ Spenna fyrir þingi ASÍ og framlög til sjóvarna ekki næg Halla Gunnars svarar fyrir sig á Sprengisandi Braust inn með hníf í annarri og hamar hinni Telur núna sannað að fundin sé hin rétta Brattahlíð Eiríks rauða Kalla eftir aðgerðum ekki yfirlýsingum Vill auka aðgengi að verkjalyfjum „Ég sé ekki að íslenskt samfélag vilji kasta því fyrir róða“ Vilja bílastæðin upp úr skotgröfunum Á annað hundrað sektaðir Þrír réðust á einn Halla ætli að sölsa undir sig ASÍ Guðmundur Ari nýr varaformaður Samfylkingar „Vona nú bara að hann fari að jafna sig á tapinu“ Bein útsending: Samtal um framtíðina Opið hús í Höfða í dag Kristrún flytur ræðu á flokksstjórnarfundi Eldur í álverinu í Straumsvík Sjá meira
PISA: „Þetta er ákveðinn sorgardagur“ Jón Pétur Zimsen þingmaður Sjálfstæðisflokksins segir PISA-niðurstöðurnar ekki koma sér neitt á óvart. Hann hafi verið búinn að spá fyrir um hrap í mælingum. Hann segir þörf á samfélagsátaki til að bregðast við. Ráðherra boðaði fjölda aðgerða í kynningu sinni fyrr í dag. 8. september 2026 13:19
Aðeins um 28 prósent innflytjenda með grunnfærni í lesskilningi Niðurstöður PISA-könnunarinnar sýna að einungis 28 prósent nemenda af erlendum uppruna búa yfir grunnhæfni í lesskilningi. Munurinn minnkar þegar tekið er tillit til félags- og efnahagslegrar stöðu en hverfur ekki. Niðurstöður sýna að algengt sé að nemendur úr hópi innflytjenda standi verr að vígi en aðrir nemendur með engan erlendan bakgrunn, sama hvort litið er til læsis, vísinda eða stærðfræði. 8. september 2026 22:02
Spreyttu þig á PISA-spurningunum Íslenskum nemendum gengur sífellt verr samkvæmt niðurstöðum nýju PISA-könnunarinnar. Hér getur þú spreytt þig á spurningum síðustu ára. 17. september 2026 08:00