„Auðvitað alltaf erfitt að koma að svona vettvangi“ Tómas Arnar Þorláksson og Freyja Þórisdóttir skrifa 4. október 2026 11:56 Mikið viðbragð var á Reykjavíkurflugvelli í gær þegar tvær sjúkraflugvélar Norlandair lentu með fólk sem slasaðist á Jökuldalsheiði. Kristján Ólafur Guðnason, yfirlögregluþjónn hjá lögreglunni á Austurlandi, ræddi við fréttastofuna um starf á vettvangi slyssins. Vísir/Anton Brink/Einar Mikill fjöldi fólks kom að aðgerðum á Jökuldalsheiði í gær þegar fjögurra bíla árekstur varð við Háreksstaðakvísl. Það voru meðal annars aðilar frá björgunarsveitunum, Landhelgisgæslunni, lögreglunni, Rauða krossinum og slökkviliðinu sem sinntu viðbragðinu. Tveir létust í slysinu og tveir voru fluttir alvarlega slasaðir til Reykjavíkur og eru þungt haldnir.
Starf á vettvangi stóð yfir meira og minna allan daginn og lauk ekki fyrr en undir kvöld en þá lauk rannsóknarvinnu á slysstað. Rauði krossinn hafi verið meðal þeirra sem voru kallaðir á staðinn til að sinna sálgæslu, bæði fyrir þá sem lentu í slysinu og þá sem sinntu hlutverki í björgunaraðgerðunum á staðnum. „Við reyndum að aðstoða og halda utan um alla sem komu að eins vel og hægt var,“ segir Kristján Ólafur Guðnason, yfirlögregluþjónn hjá lögreglunni á Austurlandi, í samtali við fréttastofu. Það hafi legið mjög fljótlega fyrir að slysið væri alvarlegt og viðbragðið eftir því. Enn liggi ekki fyrir hvernig akstursskilyrði voru á veginum í gær en það hafi ekki virst við fyrstu sýn að það væri neitt sérstakt á vegi, svo sem hálka. „Það er auðvitað alltaf erfitt að koma að svona vettvangi en vettvangsvinnan gekk vel miðað við þá áætlun sem var virkjuð og þann fjölda sem kom að þessu,“ segir Kristján en hann telji sjálfa verkferla hafa verið vel úr garði gerða „þó að afleiðingar slyssins hafi verið hörmulegar.“ Samkvæmt sjónarvotti átti slysið sér stað uppi á Jökuldalsheiði þar sem ein bifreið sást utan vegar og önnur á hvolfi. Alls voru átta um borð í bifreiðunum tveimur en þeir látnu voru erlendir ferðamenn á sjötugsaldri.
Múlaþing Umferðaröryggi Lögreglumál Tengdar fréttir Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Hópslysaáætlun var virkjuð á Austurlandi vegna fjögurra bíla áreksturs á Jökuldal við Háreksstaðakvísl í dag. Tilkynnt var að átta væru um borð í bifreiðunum og einhverjir alvarlega slasaðir. Tvær þyrlur Landhelgisgæslunnar, björgunarsveitarmenn, lögregla, sjúkralið og Rauði krossinn taka þátt í aðgerðum. Slysið er talið alvarlegt. 3. október 2026 12:00 Mest lesið Tveir létust í fjögurra bíla árekstri á Austurlandi Innlent Höfuðborgarsvæðið skalf Innlent Fundið brak úr flugvélinni sem týndist á leið frá Bermúda Erlent Katla skelfur Innlent Viðbúnaður á slóðum Vítisengla Innlent Mikill viðbúnaður eftir að óþekktur hlutur fannst í sjónum Erlent Tveir látnir eftir skotárás í Noregi Erlent Rektor Cornell-háskóla rýfur þögnina Erlent Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Innlent Lægðin ætlar ekki að láta okkur í friði alveg strax Veður Fleiri fréttir „Auðvitað alltaf erfitt að koma að svona vettvangi“ Banaslys á Austurlandi og barátta upp á líf og dauða Hafði lítil afskipti af veisluhöldum Vítisenglanna Sprengisandur: Pólitíkin, fíknimeðferð og neistinn kveiktur Tveir létust í fjögurra bíla árekstri á Austurlandi Ók bílnum yfir kant og upp á gras en hafnaði að lokum á ljósastaur Höfuðborgarsvæðið skalf Viðbúnaður á slóðum Vítisengla Katla skelfur Salma nýr formaður ungra Miðflokksmanna „Okkur finnst við vera undanskilin“ Viðvörunarmerki fyrir íslenskt samfélag Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Smella af sér bílbeltunum á ógnarhraða og breytingar í Kerlingarfjöllum Gul viðvörun eftir stóra skriðu Illa brugðið en heill á húfi Handtekinn grunaður um að beita piparúða Lýsa eftir Halldóri Inga „Of margar sögur af vondri meðferð“ Halda hækkunum innan við 2,5 prósent og hætta við lækkun systkinaafsláttar Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Aurskriða féll á veginn og honum lokað Starfsmaður Reykjavíkurborgar smitaðist af nóróveiru Heiða í veikindaleyfi Fagfélögin kalla eftir heimild til að slíta kjarasamningum Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Fara fram á 16 ár yfir meintum morðingja Allir sautján frjálsir ferða sinna „Við erum óþolinmóð“ Sjá meira
Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Hópslysaáætlun var virkjuð á Austurlandi vegna fjögurra bíla áreksturs á Jökuldal við Háreksstaðakvísl í dag. Tilkynnt var að átta væru um borð í bifreiðunum og einhverjir alvarlega slasaðir. Tvær þyrlur Landhelgisgæslunnar, björgunarsveitarmenn, lögregla, sjúkralið og Rauði krossinn taka þátt í aðgerðum. Slysið er talið alvarlegt. 3. október 2026 12:00