„Við höfum ekki séð svona frábærar tölur í háa herrans tíð“ Lovísa Arnardóttir og Silja Rún Sigurbjörnsdóttir skrifa 15. september 2026 21:33 Steinn segir ástand á vinnumarkaði geta haft áhrif. Aðsend og Vísir/Vilhelm Mannekla er minni í leikskólum, grunnskólum og frístund í Reykjavík í ár miðað við fyrri ár. Sviðsstjóri segist ekki hafa séð svo góðar tölur í mörg ár. Í tilkynningu frá Reykjavíkurborg kemur fram að 67 prósent leikskólanna annaðhvort fullmannaðir eða nálægt því að vera fullmannaðir.
Þá segir Steinn Jóhannsson, sviðsstjóri skóla- og frístundasviðs, í samtali við Vísi að 400 börn séu á bið eftir því að komast inn í frístund en hafi á sama tíma í fyrra verið 1.200. 50 stöðugildi laus í leikskólum Samkvæmt tilkynningu vantar starfsfólk í um 30 stöðugildi í leikskóla en séu fyrirsjáanlegar starfsmannabreytingar teknar með í reikninginn vanti í um 50 stöðugildi. 39 prósent leikskóla eru fullmannaðir en séu einnig taldir með þeir sem telja sig fullmannaða má áætla að 67 prósent leikskóla borgarinnar séu annað hvort fullmannaðir eða nálægt því. Á sama tíma í fyrra hafi átt eftir að ráða í 74 stöðugildi og um miðjan september 2024 vantaði í 123 stöðugildi. Að jafnaði starfa um 2.300 manns í um 1.800 stöðugildum í leikskólum borgarinnar. Í tilkynningu kemur jafnframt fram að sextán leikskólar séu með virkar auglýsingar og almennt berist umsóknir, þótt eitthvað beri á að viss hluti umsækjenda uppfylli ekki hæfniviðmið þeirra starfa sem þarf að manna. Þar nefna stjórnendur meðal annars íslenskukunnáttu, fagmenntun og viðeigandi reynslu sem þætti sem geta haft áhrif á ráðningar. Þegar litið er til stöðu mönnunar í grunnskólum borgarinnar eru ómönnuð stöðugildi 22,4 en fyrir ári voru þau 46,9 og 68,1 árið þar á undan. Um þrjú þúsund manns starfa í grunnskólum borgarinnar í um 2500 stöðugildum. Samkvæmt minnisblaði skóla- og frístundaráðs hafa skólastjórnendur átt erfiðast með að ráða réttindakennara, svo sem í dönsku, heimilisfræði, tónmennt og íþróttum. Á móti kemur virðist ganga betur að ráða stuðningsfulltrúa. 400 börn á bið Steinn segir niðurstöðuna allt aðra en í fyrra í leik-, grunn- og frístundum. „Við höfum ekki séð svona frábærar tölur í háa herrans tíð,“ segir Steinn og að sérstaklega sé ánægjulegt að sjá að í frístund séu núna aðeins um 430 börn á bið en voru á sama tíma í fyrra um 1.100. Þess má geta að heildarfjöldi barnanna er ívið minni í ár samkvæmt minnisblaði skóla- og frístundaráðs borgarinnar. Eftir á að ráða 28 starfsmenn á frístundaheimilin og er ályktað í minnisblaðinu að betur gangi að ráða í störf í frístundaheimilum í ár en undanfarin ár vegna styttri biðlista barna. „Þetta er ótrúlegur munur á milli ára.“ Hann segir það gegnumgangandi um alla borg að stjórnendur tali um að mönnum sé góð og þar geti atvinnuástand í samfélaginu skipt máli. „Nú sækir fólk um þessi störf sem mögulega myndi ekki sækja um í örðu árferði, það er möguleiki. En við erum rosalega ánægð með þessa niðurstöðu, að mönnun hefur gengið vel heilt yfir borgina, sama hvort það er í leikskóla, grunnskóla eða frístundastarfi,“ segir hann. Tekin var ákvörðun eftir að nýr meirihluti tók þá ákvörðun að snúa frá þeirri ákvörðun að stytta opnunartíma frístundar eins og tilkynnt hafði verið um fyrir kosningar í vor. Steinn segir það líka geta haft áhrif á mönnun að enn sé opið til 17. „Auðvitað spilar það inn í þegar ungt fólk er í hlutastörfum og er að koma að vinna hjá okkur að það er ánægt að fá viðbótartíma,“ segir hann.
Skóla- og menntamál Grunnskólar Leikskólar Frístund barna Borgarstjórn Reykjavík Börn og uppeldi Mest lesið Sá barnaníðinginn fyrir utan heimili sitt: „Þetta rífur bara upp öll sár á einu augabragði“ Innlent Kallaði eftir afsögn Þorgerðar Katrínar í ræðustól Alþingis Innlent Fimm mínútna viðbót við aðgerð geti dregið úr áhættu á krabbameini Innlent Myndu rústa Póllandi á tveimur til þremur dögum Erlent Fannst eftir rúma tveggja sólarhringa leit: „Hún er eitthvað óvenjuleg þessi hryssa“ Innlent „Að bilast“ yfir útlensku í almannarými Innlent Bein útsending: Daði Már gangsetti vindmyllur Innlent Úrskurður Hæstaréttar bakslag fyrir Trump Erlent Skipuleggjandi smygls handtekinn á Spáni og ákærður hér Innlent Reyndu að bjarga málunum en voru of sein Innlent Fleiri fréttir „Við höfum ekki séð svona frábærar tölur í háa herrans tíð“ Útkall lengst úti á hafi þriðja daginn í röð Laga þurfi fegurðarskynið að orkuskiptum Ekki víst að asbestmengun hafi borist með reyknum Skipuleggjandi smygls handtekinn á Spáni og ákærður hér Fiskikóngurinn og Háskólinn rannsaka skötu Eftir því sem lengra líður eykst óvissan Stór skjálfti í Langjökli fannst víða Kallaði eftir afsögn Þorgerðar Katrínar í ræðustól Alþingis „Að bilast“ yfir útlensku í almannarými Fangar þurfi að fylgja samþykktri dagskrá í dagsleyfum Segir fækkun útlendinga sýna að stjórnvöld nái tökum á innflytjendamálum Bein útsending: Daði Már gangsetti vindmyllur Stjórnarráðið beini auglýsingafé frá samfélagsmiðlum Sá barnaníðinginn fyrir utan heimili sitt: „Þetta rífur bara upp öll sár á einu augabragði“ Reyndu að bjarga málunum en voru of sein Áfall að sjá dæmdan kynferðisbrotamann fyrir utan heimilið Ummerki um mannaferðir í Toppstöðinni Heimilislæknar minna ríkisstjórn á gefin loforð „Það eru gríðarlega miklir hagsmunir í húfi“ Ásmundur skipaður forseti Tímabært sé að skoða vaxtarmörk borgarinnar Í forgangi sé að ræða við starfsfólk SÁÁ og tryggja vinnufrið Útlendingum fækkað það sem af er ári Fimm mínútna viðbót við aðgerð geti dregið úr áhættu á krabbameini Mun Tækniskólinn rísa í Úlfarsárdal? Snúist um dómgreind frekar en gervigreind Fannst eftir rúma tveggja sólarhringa leit: „Hún er eitthvað óvenjuleg þessi hryssa“ Þyrlurnar sinntu útkalli úti á ballarhafi annan daginn í röð Eldur í Elliðaárdal Sjá meira