„Vonandi birtist ekkert meira af myndum sem þessum“ Agnar Már Másson skrifar 7. september 2026 17:42 Dagbjört vill ekki lesa of mikið í færslu Trumps. Hann setji margt fram í hálfkæringi. Samsett Mynd Þingmaður Samfylkingarinnar í utanríkismálanefnd Alþingis vill ekki lesa of mikið í færslu Bandaríkjaforseta sem sýnir Ísland, Grænland og alla Norður-Ameríku þakta bandarísku fánalitunum. Ekki sé tilefni fyrir nefndina að krefja Bandaríkin svara. Engu að síður vonar hún að fleiri slíkar færslur birtist ekki.
Forsetinn skrifaði engan texta með færslunni. „Það er ástæða til þess að lesa ekki of mikið í þetta,“ segir Dagbjört Hákonardóttir, þingmaður Samfylkingarinnar sem situr í utanríkismálanefnd Alþingis, í samtali við Vísi. Færsla Trumps.Skjaskot/Truth „Það er margt sem Bandaríkjaforseti hefur sett fram í hálfkæringi, en þetta er meðal annars til þess fallið að valda óróa meðal landsmanna og núna þurfa landsmenn á því að halda að pólitíkin tali skýrt. Þá er ég ekki bara að tala um sjálfa mig heldur líka fulltrúa einnig þingmanna,“ heldur þingmaðurinn áfram. Nú þurfi íslenskt þjóðfélag vissu um að Íslendingar standi saman og séu með sameiginlega stefnu um það hvar Ísland vilji staðsetja sig. Trump-liðar hafa áður birt slíkt kort af Grænlandi enda hefur hann ítrekað lýst því yfir að hann vilji leggja undir sig Grænland. Hann lét þau ummæli falla nýlega að eyjan yrði orðin hluti af Bandaríkjunum í janúar 2029. Trump hefur ekki lýst áhuga á Íslandi með beinum hætti, þó að hann hafi í ræðu í byrjun árs ítrekað vísað til Grænlands sem Íslands. Þá var greint frá því í janúar að Billy Long, nýr sendiherra Bandaríkjanna í Reykjavík, hefði grínast með það að Ísland yrði 52. ríki Bandaríkjanna – væntanlega á eftir Grænlandi – en hann baðst síðan afsökunar á því. Viltu fara fram á það að nefndin krefji Bandaríkin svara um þetta? „Nei, ég held að það sé alveg ástæðulaust á þessum tímapunkti,“ svarar Dagbjört og ítrekar að slíkar færslur séu ekki tilefni til þess að lesa neitt í vilja Bandaríkjaforseta. „Hann getur notað orðin sín eins og aðrir, það fylgdu engin orð með þessari færslu. En nú beini ég því til samherja minna og samstarfsfólks á Alþingi og í utanríkismálanefnd að við setjumst niður þegar við eigum næsta boðaða fund og leggjum línurnar fyrir það hvernig við ætlum að tala einu máli í því hvar landið okkar er staðsett í alþjóðastarfi.“ Hvað meinarðu með því? „Við höfum núna til dæmis ákveðið það í kjölfar þessarar þjóðaratkvæðagreiðslu [hinn 29. ágúst um aðildarviðræður við Evrópusambandið] að umsókn um aðild að ESB verður ekki á dagskrá þessarar ríkisstjórnar,“ svarar Dagbjört. Íslendingar þurfi að taka ákvörðun um það hvernig eigi að haga sínum skyldum innan EES og hvernig eigi að rækta gott samband við nágrannaþjóðir, líka Bandaríkin. Hún tekur samt fram: „Vonandi birtist ekkert meira af myndum sem þessum.“ Ekki hefur náðst í Pawel Bartoszek, formann utanríkismálanefndar, vegna málsins. Þá hafa ekki fengist svör frá sendiráði Bandaríkjanna um málið enda eru starfsmenn þar í fríi, þar sem dagurinn í dag er almennur frídagur í Bandaríkjunum.
Donald Trump Bandaríkin Utanríkismál Alþingi Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur Hótanir Bandaríkjanna vegna Grænlands Mest lesið Biður Jón afsökunar Innlent Lést eftir alvarlegt slys á Gæsavatnaleið Innlent „Vitum ekki hvaða skrímsli er verið að skapa“ Innlent Landtökumenn réðust á evrópska erindreka Erlent Barn og fullorðinn létu lífið þegar bíl var ekið inn á knattspyrnuvöll Erlent Vara við „perragleraugum“ Innlent Leggi línuna að samþykki veiti rétt til að stórskaða fólk Innlent Lögreglan skarst í leikinn á mótmælum í Kaupmannahöfn Erlent Ari nýr formaður Ungra vinstri grænna Innlent Komi til greina að nýta gervigreind í námsgagnagerð Innlent Fleiri fréttir Einn handtekinn vegna líkamsárásar í miðbænum Popúlismi og einangrunarhyggja ógnar loftslagsaðgerðum Biður Jón afsökunar „Vitum ekki hvaða skrímsli er verið að skapa“ Komi til greina að nýta gervigreind í námsgagnagerð Ari nýr formaður Ungra vinstri grænna Farið að hvessa: „Veðrið er ekkert svo slæmt en ekkert sérstakt heldur“ Lést eftir alvarlegt slys á Gæsavatnaleið Engin yfirsýn hvort það séu Tik Tok-myndbönd eða klám sem eigi að geyma Leggi línuna að samþykki veiti rétt til að stórskaða fólk Vara við „perragleraugum“ Þyrlan kölluð út vegna slyss á hálendinu Kannast ekki við lýsingar Jóns Bakar til góðs næsta sólarhringinn Þakplötur að losna af íþróttahúsi í Grundarfirði Skoða viðbrögð við rannsókn á Ölgerðinni Minna á útgáfu nafnskírteina vegna rannsóknar lögreglu Eldur í lyftara í álverinu í Straumvík Tveir reyndu að flýja lögreglu á fótum eftir eftirför „Fylgjumst grannt með framvindu mála“ Dæmi um að búnar séu til „gervikennitölur“ fyrir börn Handtekinn fyrir að ausa fúkyrðum yfir hóp fólks Aðgengið gott en gefur ekki upp synjanirnar „Eigum ekki að bíða eftir alvarlegu atviki“ Jafnlaunavottunin afnumin en starfsfólkinu fækkar ekki Halla kjörin fyrsti varaforseti ASÍ Varar við að biðraðir í Keflavík geti fækkað flugleiðum Ekki ástæða til að rýma bankann Allt virðist mega ef BDSM-orðið er notað „Ég ætla ekki að fara í nein orðaskipti við Jón“ Sjá meira