Íslenski boltinn

Lög­reglan hafði af­skipti af Víkingum

Valur Páll Eiríksson skrifar
Stuðningsmenn Víkings skemmtu sér fallega, stærstan part, á Meistaravöllum í gær.
Stuðningsmenn Víkings skemmtu sér fallega, stærstan part, á Meistaravöllum í gær. Vísir/Hulda Margrét

Mikil gleði var hjá stuðningsmönnum Víkings, líkt og þeim sem studdu KR, á stórleik gærkvöldsins í Bestu deild karla. Gestirnir smygluðu þó inn trommu sem olli vandræðum.

Yfir fjögur þúsund manns voru saman komin á Meistaravöllum í Vesturbæ Reykjavíkur í gær er KR og Víkingur gerðu 1-1 jafntefli þar sem bæði mörk leiksins voru skoruð í blálokin.

Mikil stemning var á leiknum enda sá lang fjölsóttasti í sumar þar sem yfir fjögur þúsund manns voru saman komin til að sjá leikinn.

Sungið og trallað var beggja megin í stúkunni en Víkingar viðhöfðu einnig trumbuslátt. Trommur hafa verið bannaðar á Meistaravöllum um þónokkurra ára skeið en í það minnsta ein tromman virðist hafa skilað sér inn Víkingsmegin í stúkuna.

Sú var svo gerð upptæk og hefur sú aðgerð hlotið gagnrýni Víkinga á samfélagsmiðlum.

Einhverjir stuðningsmenn Víkings höfðu gert sér ferð á Meistaravelli aðfaranótt þriðjudags og frömdu þar skemmdarverk er þeir máluðu nafn Víkinga á stúku KR og helltu málningu þar víða.

Það mál er á borði lögreglu sem leit við og kynnti sér málið í Vesturbæ fyrri hluta dags í gær.

Líkt og áður segir skildu KR og Víkingur jöfn 1-1 í leik gærkvöldsins. Víkingur er með átta stiga forskot á toppi deildarinnar þegar sex leikir eru eftir.


Tengdar fréttir

Mynda­veisla: Á fimmta þúsund manns á stór­leik KR og Víkings

Á fimmta þúsund manns gerðu sér ferð á Meistaravelli í kvöld til þess að fylgjast með stórleik KR og Víkings Reykjavíkur í Bestu deild karla í fótbolta. Leikurinn hin mesta skemmtun, taugarnar þandar og dramatíkin mikil í leikslok.

„Það er hrikalegt að sjá þetta“

„Ég finn virkilega mikið til með honum,“ sagði Sölvi Geir Ottesen, þjálfari Víkings, eftir að enn einn leikmanna hans meiddist í kvöld þegar Sveinn Gísli Þorkelsson handleggsbrotnaði í stórleiknum gegn KR.

„Í gær var ég að æfa nákvæmlega sama skot“

Ármann Ingi Finnbogason skoraði stórkostlegt mark fyrir Víkinga gegn KR í kvöld og þó að það hafi ekki dugað til sigurs átti hann sinn þátt í því að nú eru Víkingar með átta stiga forskot á toppi Bestu deildarinnar.

„Gæti óskað þeim til hamingju með titilinn núna“

„Við sýndum mikinn styrk með því að koma til baka og ná okkur í stigið. Halda okkur fyrir ofan Fram. Við megum ekki gleyma að Fram er þarna líka og akkúrat núna er Fram keppinautur okkar,“ sagði Óskar Hrafn Þorvaldsson, þjálfari KR, eftir 1-1 jafnteflið í toppslagnum við Víkinga í kvöld.

Mörkin úr stórslag KR og Víkings í lýsingu Gumma Ben

KR bjargaði stigi gegn ríkjandi Íslandsmeisturum Víkings Reykjavíkur í mögnuðum leik á Meistaravöllum í Bestu deildinni í kvöld. Bæði mörk leiksins komu í uppbótartíma. Lokatölur 1-1. 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×