Fótbolti

Gáfu ekki upp hundraða milljóna greiðslu til Infantino

Aron Guðmundsson skrifar
Gianni Infantino fékk ekki að selja HM en er staðráðinn í að halda áfram sem forseti FIFA.
Gianni Infantino fékk ekki að selja HM en er staðráðinn í að halda áfram sem forseti FIFA. Getty/Chris Brunskill

Gianni Infantino, forseti FIFA, fékk því sem nemur um 210 milljónum íslenskra króna í óuppgefinni greiðslu til viðbótar við uppgefin laun hans og bónusa í starfi hjá FIFA.

Frá þessu greinir The Times en fréttirnar koma á tímapunkti þar sem pressan og vantraustið á forsetanum hefur verið mikið sökum tilrauna hans til þess að fá einkafjárfesta til þess að kaupa hlut í eignum sambandsins. 

Þrátt fyrir allt það sem hefur gengið á er það langlíklegasta staðan nú að Infantino verði endurkjörinn forseti FIFA á aðalfundi sambandsins snemma á næsta ári.

FIFA er sagt hafa greitt Infantino um 1,3 milljónir punda frá fyrirtæki innan vébanda sambandsins sem hélt utan um skipulagningu og framkvæmd heimsmeistaramótsins í sumar. Ekki var greint frá þeirri greiðslu í ársskýrslu FIFA.

Samkvæmt heimildum The Times á hluti upphæðarinnar að standa straum af lúxuslífi Infantino í Miami skömmu fyrir upphaf heimsmeistaramótsins í Bandaríkjunum, Kanada og Mexíkó. 

Rannsókn The Times hefur leitt það í ljós að Infantino hefur verið að fá launagreiðslur úr tveimur mismunandi áttum upp á síðkastið. Eina frá FIFA í Sviss, launagreiðslur sem getið er um í ársskýrslu sambandsins, en svo aðra frá umræddu fyrirtæki sem sá um HM.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×