Fótbolti

Segja starf Elísa­betar hanga á blá­þræði en leik­menn lofa hana

Sindri Sverrisson skrifar
Elísabet Gunnarsdóttir fylgist með leiknum við Pólland í Gdansk í kvöld.
Elísabet Gunnarsdóttir fylgist með leiknum við Pólland í Gdansk í kvöld. Getty/Adam Nurkiewicz

Belgískir fjölmiðlar segja ljóst að tíma Elísabetar Gunnarsdóttur með kvennalandslið Belgíu í fótbolta gæti verið lokið eftir tap í vítakeppni gegn Póllandi í kvöld. Lykilleikmenn sýndu henni hins vegar mikinn stuðning.

Nieuwsblad segir að starf Elísabetar hangi á bláþræði og í grein De Standaard er gengið svo langt að segja að belgíska liðið hafi tapað tveimur árum undir stjórn hennar.

Elísabet var óvænt ráðin í janúar 2025 þegar Ives Serneels var rekinn en hann hafði þá stýrt liðinu inn á EM í Sviss. Á því móti féll Belgía úr leik í riðlakeppninni. Liðið féll svo úr A-deild Þjóðadeildarinnar og nú er HM-draumurinn úr sögunni eftir tap í vítaspyrnukeppni í Gdansk í kvöld.

Sjálf sagði Elísabet eftir leik í kvöld að það væri ekki í sínum höndum hvort hún yrði áfram þjálfari Belgíu. Samningur hennar átti að gilda fram yfir HM næsta sumar en nú er möguleikinn á HM-sæti úr sögunni.

„Þetta er auðvitað ekki í mínum höndum. Ég hef klárlega trú á sjálfri mér en þetta er ekki mitt að ákveða,“ sagði Elísabet samkvæmt Sporza.

Barcelona-stjarnan Ewa Pajor reyndist Belgum erfið í kvöld og skoraði í venjulegum leiktíma og framlengingu. Hún var þó sú eina í liði Póllands sem nýtti ekki sitt víti í vítaspyrnukeppninni.Getty/Mateusz Slodkowski

„Held að við stöndum allar við bakið á henni“

Fyrirliðinn Tessa Wullaert, sem leikið hefur 159 landsleiki, vill að Elísabet haldi áfram og hið sama sagði annar reynslubolti, Janice Cayman.

„Ég vona það svo sannarlega. Ég held að við stöndum allar við bakið á henni. Við vinnum og töpum saman. Við lítum klárlega ekki bara til einnar manneskju. Ég vona svo sannarlega að hún haldi áfram með okkur og við með henni,“ sagði Wullaert og Cayman tók í sama streng.

Hin 38 ára gamla Janice Cayman sækir að Wiktoria Zieniewicz í Gdansk í kvöld. Cayman vill að Elísabet fái að halda áfram með belgíska landsliðið.Getty/Adam Nurkiewicz

„Það býr svo mikið í þessum hópi. Ungu leikmennirnir eiga eftir að springa út og ég vona að það gerist undir stjórn núverandi þjálfara. Þetta starfslið hefur gert afar vel við að þroska þennan hóp,“ sagði Cayman og bætti við:

„Það er synd að við skulum ekki hafa náð að uppskera.“




Fleiri fréttir

Sjá meira


×