Fjölmiðlanefnd sektar Þórarin um hálfa milljón Birgir Olgeirsson skrifar 26. ágúst 2026 16:24 Þórarinn Hjartarson, stjórnandi hlaðvarpsins Ein pæling, segist ekki eiga fyrir 500 þúsund króna sekt Fjölmiðlanefndar. Fjölmiðlanefnd hefur sektað Þórarin Hjartarson, stjórnanda hlaðvarpsins Ein pæling, um 500 þúsund krónur fyrir að skrá hlaðvarpið ekki sem fjölmiðil. Ákvörðunin kemur rúmum tveimur mánuðum eftir að ráðuneyti Loga Einarssonar greindi frá því að fyrirhugað væri að hefðbundin hlaðvörp yrðu ekki lengur skráningarskyld. „
Þetta er það skrýtnasta sem ég hef lent í. Það er búið að koma fram frá stjórnvöldum að hlaðvörp verði ekki skilgreind sem fjölmiðlar en nú er ég sektaður fyrir að skrá mig ekki sem fjölmiðil,“ segir Þórarinn. Í bréfi Fjölmiðlanefndar til Þórarins segir að nefndin hafi komist að þeirri niðurstöðu að brotið hafi verið gegn ákvæði fjölmiðlalaga um skráningu fjölmiðla. Við ákvörðun sektarinnar hafi verið litið til eðlis brotsins og atvika málsins. Bréfið sem fjölmiðlanefnd sendi Þórarni. Aðsend Þórarinn segist hafa óskað eftir lengri fresti en hefur nú verið sendur reikningur vegna sektarinnar. Ráðuneytið boðaði breytingar Vísir greindi frá því í júní að vinna væri hafin í menningar, nýsköpunar og háskólaráðuneytinu við endurskoðun fjölmiðlalaga. Í svari ráðuneytisins sagði að skerpa ætti á lagalegri skilgreiningu þess hvað teldist fjölmiðill. Útgangspunktur vinnunnar væri að hefðbundin hlaðvörp yrðu ekki skráningarskyld. Stefnt væri að því að kynna lagabreytingarnar á næsta þingvetri. Breytingarnar hafa ekki tekið gildi og Fjölmiðlanefnd byggir ákvörðun sína á gildandi lögum. Á ekki fyrir sektinni Þórarinn ætlar að ráðfæra sig við lögmann um næstu skref. Hann segist ekki geta greitt sektina. „Ég hef ekki efni á þessu. Hver einasta króna sem hlaðvarpið hefur aflað hefur farið í nýtt stúdíó og ég á alls ekki fyrir þessu.“ Ákvörðun Fjölmiðlanefndar er endanleg á stjórnsýslustigi. Vilji Þórarinn fá henni hnekkt þarf hann að höfða mál innan sex mánaða. Málshöfðun frestar ekki réttaráhrifum hennar. Þórarinn gagnrýnir einnig hvernig nefndin hafi staðið að málum gagnvart hlaðvörpum. Hann segir önnur hlaðvörp hafa hætt að svara erindum hennar án þess að fá sekt. „Það sem er magnað í þessu er að önnur hlaðvörp hættu að svara þeim. Það virðist hafa verið miklu betri leið því þau fengu ekki sektir,“ segir Þórarinn.
Hlaðvörp Fjölmiðlar Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur Tengdar fréttir Fjölmiðlanefnd eltist við Ólöfu og Kristínu Þrátt fyrir að Vísir hafi sagt af fyrirætlunum ráðuneytis Loga Einarssonar menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðherra, sem ganga út á að skera hlaðvarpara úr snöru fjölmiðlanefndar, er sem nefndin vilji ekki sleppa takinu á þeim stöllum í Komið gott – Ólöfu Skaftadóttur og Kristínu Gunnarsdóttur sem svara fyrir sig. 31. júlí 2026 11:20 Elfa Ýr lætur af störfum hjá Fjölmiðlanefnd Elfa Ýr Gylfadóttir, framkvæmdastjóri Fjölmiðlanefndar, lætur af störfum nú þegar þriðja skipunartímabili hennar lýkur í haust. 19. ágúst 2026 07:16 Mest lesið Telur núna sannað að fundin sé hin rétta Brattahlíð Eiríks rauða Innlent Tugir slösuðust vegna skýstróka á Sikiley Innlent Vill auka aðgengi að verkjalyfjum Innlent Halla Gunnars svarar fyrir sig á Sprengisandi Innlent Braust inn með hníf í annarri og hamar hinni Innlent Suðaustan stormur og gul viðvörun Veður Vill nýjan Úkraínuforseta Erlent Hútar sagðir ábyrgir fyrir árás á flugvöll Erlent Á annað hundrað sektaðir Innlent Vilja bílastæðin upp úr skotgröfunum Innlent Fleiri fréttir Leiðinleg frekja segist hvorki leiðinleg né frek Halla Gunnars svarar fyrir sig á Sprengisandi Tugir slösuðust vegna skýstróka á Sikiley Braust inn með hníf í annarri og hamar hinni Telur núna sannað að fundin sé hin rétta Brattahlíð Eiríks rauða Kalla eftir aðgerðum ekki yfirlýsingum Vill auka aðgengi að verkjalyfjum „Ég sé ekki að íslenskt samfélag vilji kasta því fyrir róða“ Vilja bílastæðin upp úr skotgröfunum Á annað hundrað sektaðir Þrír réðust á einn Halla ætli að sölsa undir sig ASÍ Guðmundur Ari nýr varaformaður Samfylkingar „Vona nú bara að hann fari að jafna sig á tapinu“ Bein útsending: Samtal um framtíðina Opið hús í Höfða í dag Kristrún flytur ræðu á flokksstjórnarfundi Eldur í álverinu í Straumsvík Áfall fyrir Evrópu, hvatning um að jafna sig á tapi og sögulegt afmæli Guðlaugur Þór villtist inn í myndver Þyrlulaus í nokkrar klukkustundir Segjast geta hafið framkvæmdir á morgun Keyrði á og flúði en skildi númeraplötu eftir Seldu óvart hjól viðskiptavinar Sigurveig I. Jónsdóttir er látin Þingmenn laumuðust í laugina eftir lokun Katrín ekki í forsetaslaginn og deilur skekja ASÍ fyrir þing Bein útsending: Af minkum og mönnum Þau vilja stýra Fjölmiðlanefnd Þrír unglingar á breyttu hjóli en VÍS ber samt ábyrgð Sjá meira
Fjölmiðlanefnd eltist við Ólöfu og Kristínu Þrátt fyrir að Vísir hafi sagt af fyrirætlunum ráðuneytis Loga Einarssonar menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðherra, sem ganga út á að skera hlaðvarpara úr snöru fjölmiðlanefndar, er sem nefndin vilji ekki sleppa takinu á þeim stöllum í Komið gott – Ólöfu Skaftadóttur og Kristínu Gunnarsdóttur sem svara fyrir sig. 31. júlí 2026 11:20
Elfa Ýr lætur af störfum hjá Fjölmiðlanefnd Elfa Ýr Gylfadóttir, framkvæmdastjóri Fjölmiðlanefndar, lætur af störfum nú þegar þriðja skipunartímabili hennar lýkur í haust. 19. ágúst 2026 07:16