Þessir voru tekjuhæstu læknarnir og tannlæknarnir í fyrra Freyja Þórisdóttir skrifar 18. ágúst 2026 19:40 Gríðarlegur fjöldi manns starfar á Landspítalanum í Fossvogi en einhverjir þeirra sem þar starfa sem læknar rötuðu á lista tekjublaðsins í þetta skiptið. Vísir/Vilhelm Röntgenlæknirinn Halldór Benediktsson trónir á toppi listans yfir tekjuhæstu lækna og tannlækna landsins með ríflega sex milljónir á mánuði árið 2025. Fast á hæla honum koma svo skurðlæknirinn Jón H. H. Sen og yfirlæknirinn Súsanna B. Ástvaldsdóttir með hvor sínar tæplega sex milljónirnar á mánuði í fyrra. Ofarlega á listanum er að finna heimilslækna, þyrlulækna, geðlækna og svæfingalækna. Þetta kemur fram í blaði sem gefið er út árlega um tekjuhæstu listamennina í Tekjublaði Frjálsrar verslunar sem kom út í dag. Þar eru teknar saman tekjur fimm þúsund, fimm hundruð og sjötíu Íslendinga. Tekjublað Frjálsrar verslunar kom út í dag en rétt er að árétta að um er að ræða útsvarsskyldar tekjur á árinu 2025 og þurfa þær ekki að endurspegla föst laun viðkomandi. Munurinn getur falist í launum fyrir setu í nefndum og önnur aukastörf og hlunnindi vegna kaupréttarsamninga. Í launum sumra kann að vera falinn bónus vegna ársins 2024 sem var greiddur árið 2025. Miðað er við útsvarsstofn samkvæmt álagningarskrá en í tölunum eru ekki fjármagnstekjur, til dæmis af vöxtum, arði eða sölu hlutabréfa. Sleppt er skattfrjálsum dagpeningum, bílastyrkjum og greiðslum í lífeyrissjóði. Þá ber að hafa í huga að inn í tekjunum geta líka verið einskiptisgreiðslur vegna úttektar á séreignasparnaði hjá lífeyrissjóði. Verktakagreiðslur flokkast ekki sem útsvarsskyldar tekjur og eru því ekki teknar fyrir í álagningaskrá Ríkisskattstjóra sem Tekjublaðið styðst við. Þau sem rötuðu á listann í þetta skiptið starfa á gríðarlega fjölbreyttum sviðum og til að mynda er sá tannlæknir sem rataði efst einnig skráður sem kjálkaskurðlæknir en það er Sigurgísli Ingimarsson sem var samkvæmt blaðinu með rétt tæpar 2,8 milljónir á mánuði árið 2025. Það dugir þó ekki til að vera í efstu tíu slottunum. Tíu tekjuhæstu læknarnir og tannlæknarnir Halldór Benediktsson röntgenlæknir með 6,129 milljónir Jón H. H. Sen skurðlæknir með 5,961 milljónir Súsanna B. Ástvaldsdóttir yfirlæknir heilsugæslu HVest með 5,937 milljónir Robert Maciej Wojciechowski sérfr. í svæfingalæknum HSA með 5,571 milljónir Davíð Ottó Arnar yfirlæknir hjartal. LSH og prófessor með 5,488 milljónir Magnús Gottfreðsson, sérfr. smitsjúkd. og prófessor við HÍ með 5,281 milljónir Enchtuja Bold Suchegin taugalæknir LSH með 5,167 milljónir Gísli Ólafsson heimilislæknir með 5,043 milljónir Hannes Sigmarsson heimilislæknir með 4,982 milljónir Sigurður Halldórsson yfirlæknir HSN Kópaskeri með 4,935 milljónir Líkt og sjá má rataði enginn tannlæknir á listann en af þeim ríflega sjötíu sem voru á listanum virðast menn hafa verið í miklum meirihluta. Í neðstu sætum listans var að finna augnlækni, lyfjafræðing, bæklunarskurðlækni og fæðinga- og kvensjúkdómalækni. Tíu tekjulægstu læknarnir og tannlæknarnir Þórunn A. Karlsdóttir heimilislæknir á Heilsugæsl. Breiðholti með 1,012 milljón Grethe Have heimilislæknir með 1,002 milljón Sigurpáll S. Scheving hjartalæknir með 949 þúsund Kristján Oddsson kvensjúkdómalæknir með 940 þúsund Júlíus Valsson gigtarlæknir með 936 þúsund Björn Pétur Sigurðsson bæklunarskurðlæknir Orkuhúsinu með 930 þúsund Eiríkur Ingvar Þorgeirsson augnlæknir með 930 þúsund Bessi Húnfjörð Jóhannesson lyfjafræðingur með 921 þúsund Sigurður Ásgeir Kristinsson bæklunarskurðlæknir með 913 þúsund Þóra Steingrímsdóttir fæðinga- og kvensjúkdómalæknir og próf. með 896 þúsund Við höfum þegar tekið saman tekjuhæstu og lægstu listamennina sem og áhrifavaldana en í þeim síðarnefnda er Sunneva Eir Einarsdóttir langtekjuhæst annað árið í röð. Hún halaði inn um tveimur milljónum á mánuði í fyrra en hún er áhrifavaldur og stjórnandi hlaðvarpsins Teboðið. Tekjur Skattar, tollar og gjöld Tannheilsa Landspítalinn Heilsugæsla Mest lesið Stjórnarlaun hækkuðu 75 prósent meira en önnur laun Viðskipti innlent Frá fjósinu í Hörpu – fjölskyldubú hlýtur viðurkenningu Framúrskarandi fyrirtæki Fyrsta konan sem kjörin er formaður Hafnarsambandsins Viðskipti innlent Ella frá Marel til Landsbankans Viðskipti innlent Pólfarinn verður yfir starfsstöðvum á jöklum Viðskipti innlent Fréttirnar sem fylgja okkur í vinnuna Atvinnulíf Stefndi á Hollywood en hefur ekki heyrt í þeim enn Atvinnulíf Ísbúð Vesturbæjar í Skipholti lokað Neytendur Landsvirkjun og Elkem semja til 2039 Viðskipti innlent Fráfarandi forstjóri Landsvirkjunar opnar sig um starfslokin Viðskipti innlent Fleiri fréttir Pólfarinn verður yfir starfsstöðvum á jöklum Stjórnarlaun hækkuðu 75 prósent meira en önnur laun Fyrsta konan sem kjörin er formaður Hafnarsambandsins Ella frá Marel til Landsbankans Fráfarandi forstjóri Landsvirkjunar opnar sig um starfslokin Högnuðust vel á fjórðungnum en reiknað með tapi á árinu Landsvirkjun og Elkem semja til 2039 Stýrir vörumerkja- og markaðsmálum hjá Íslandshótelum Norðurlöndin efla samstarf sitt í fjármálaeftirliti Leiguverð lækkar að raunvirði og óvissa á fasteignamarkaði Íslendingar lent í slæmum málum á Ítalíu Veiðigjöldin lækkað en ekki hækkað á þessu ári Skuldar þrotabúi föður síns hundruð milljóna króna til Lilja Dögg ráðin forstjóri Eitt greiðir arð en annað með neikvætt eigið fé Willum í stjórn Litla spítalans Eggert ráðinn til Litla spítalans Taldi sig hafa boðið 5.000 kall í fyrsta farrými en greiddi sexfalt meira Þriggja milljarða hagnaður hjá Emblu Medical Borgar sig að taka lífeyri samhliða 100% vinnu? Afkoman úr þremur milljónum í plús í tuttugu í mínus Allt uppselt og skellt í lás hjá Skims Tekur við stjórn Fyrirtækjamiðstöðvar Íslandsbanka Fella niður 1,4 milljarða sekt Landsvirkjunar Ísraelskt flugfélag boðar beint flug til Íslands Play komið í eignasafn Icelandair Verðbólguþrýstingurinn að gefa eftir Phoenix Seafood og Eðalfang sameinast Apple notendur geta sent SMS á Neyðarlínu í gegnum gervihnött Íhuga að krefja Ölgerðina skýringa Sjá meira
Þetta kemur fram í blaði sem gefið er út árlega um tekjuhæstu listamennina í Tekjublaði Frjálsrar verslunar sem kom út í dag. Þar eru teknar saman tekjur fimm þúsund, fimm hundruð og sjötíu Íslendinga. Tekjublað Frjálsrar verslunar kom út í dag en rétt er að árétta að um er að ræða útsvarsskyldar tekjur á árinu 2025 og þurfa þær ekki að endurspegla föst laun viðkomandi. Munurinn getur falist í launum fyrir setu í nefndum og önnur aukastörf og hlunnindi vegna kaupréttarsamninga. Í launum sumra kann að vera falinn bónus vegna ársins 2024 sem var greiddur árið 2025. Miðað er við útsvarsstofn samkvæmt álagningarskrá en í tölunum eru ekki fjármagnstekjur, til dæmis af vöxtum, arði eða sölu hlutabréfa. Sleppt er skattfrjálsum dagpeningum, bílastyrkjum og greiðslum í lífeyrissjóði. Þá ber að hafa í huga að inn í tekjunum geta líka verið einskiptisgreiðslur vegna úttektar á séreignasparnaði hjá lífeyrissjóði. Verktakagreiðslur flokkast ekki sem útsvarsskyldar tekjur og eru því ekki teknar fyrir í álagningaskrá Ríkisskattstjóra sem Tekjublaðið styðst við. Þau sem rötuðu á listann í þetta skiptið starfa á gríðarlega fjölbreyttum sviðum og til að mynda er sá tannlæknir sem rataði efst einnig skráður sem kjálkaskurðlæknir en það er Sigurgísli Ingimarsson sem var samkvæmt blaðinu með rétt tæpar 2,8 milljónir á mánuði árið 2025. Það dugir þó ekki til að vera í efstu tíu slottunum. Tíu tekjuhæstu læknarnir og tannlæknarnir Halldór Benediktsson röntgenlæknir með 6,129 milljónir Jón H. H. Sen skurðlæknir með 5,961 milljónir Súsanna B. Ástvaldsdóttir yfirlæknir heilsugæslu HVest með 5,937 milljónir Robert Maciej Wojciechowski sérfr. í svæfingalæknum HSA með 5,571 milljónir Davíð Ottó Arnar yfirlæknir hjartal. LSH og prófessor með 5,488 milljónir Magnús Gottfreðsson, sérfr. smitsjúkd. og prófessor við HÍ með 5,281 milljónir Enchtuja Bold Suchegin taugalæknir LSH með 5,167 milljónir Gísli Ólafsson heimilislæknir með 5,043 milljónir Hannes Sigmarsson heimilislæknir með 4,982 milljónir Sigurður Halldórsson yfirlæknir HSN Kópaskeri með 4,935 milljónir Líkt og sjá má rataði enginn tannlæknir á listann en af þeim ríflega sjötíu sem voru á listanum virðast menn hafa verið í miklum meirihluta. Í neðstu sætum listans var að finna augnlækni, lyfjafræðing, bæklunarskurðlækni og fæðinga- og kvensjúkdómalækni. Tíu tekjulægstu læknarnir og tannlæknarnir Þórunn A. Karlsdóttir heimilislæknir á Heilsugæsl. Breiðholti með 1,012 milljón Grethe Have heimilislæknir með 1,002 milljón Sigurpáll S. Scheving hjartalæknir með 949 þúsund Kristján Oddsson kvensjúkdómalæknir með 940 þúsund Júlíus Valsson gigtarlæknir með 936 þúsund Björn Pétur Sigurðsson bæklunarskurðlæknir Orkuhúsinu með 930 þúsund Eiríkur Ingvar Þorgeirsson augnlæknir með 930 þúsund Bessi Húnfjörð Jóhannesson lyfjafræðingur með 921 þúsund Sigurður Ásgeir Kristinsson bæklunarskurðlæknir með 913 þúsund Þóra Steingrímsdóttir fæðinga- og kvensjúkdómalæknir og próf. með 896 þúsund Við höfum þegar tekið saman tekjuhæstu og lægstu listamennina sem og áhrifavaldana en í þeim síðarnefnda er Sunneva Eir Einarsdóttir langtekjuhæst annað árið í röð. Hún halaði inn um tveimur milljónum á mánuði í fyrra en hún er áhrifavaldur og stjórnandi hlaðvarpsins Teboðið.
Tekjublað Frjálsrar verslunar kom út í dag en rétt er að árétta að um er að ræða útsvarsskyldar tekjur á árinu 2025 og þurfa þær ekki að endurspegla föst laun viðkomandi. Munurinn getur falist í launum fyrir setu í nefndum og önnur aukastörf og hlunnindi vegna kaupréttarsamninga. Í launum sumra kann að vera falinn bónus vegna ársins 2024 sem var greiddur árið 2025. Miðað er við útsvarsstofn samkvæmt álagningarskrá en í tölunum eru ekki fjármagnstekjur, til dæmis af vöxtum, arði eða sölu hlutabréfa. Sleppt er skattfrjálsum dagpeningum, bílastyrkjum og greiðslum í lífeyrissjóði. Þá ber að hafa í huga að inn í tekjunum geta líka verið einskiptisgreiðslur vegna úttektar á séreignasparnaði hjá lífeyrissjóði. Verktakagreiðslur flokkast ekki sem útsvarsskyldar tekjur og eru því ekki teknar fyrir í álagningaskrá Ríkisskattstjóra sem Tekjublaðið styðst við.
Tekjur Skattar, tollar og gjöld Tannheilsa Landspítalinn Heilsugæsla Mest lesið Stjórnarlaun hækkuðu 75 prósent meira en önnur laun Viðskipti innlent Frá fjósinu í Hörpu – fjölskyldubú hlýtur viðurkenningu Framúrskarandi fyrirtæki Fyrsta konan sem kjörin er formaður Hafnarsambandsins Viðskipti innlent Ella frá Marel til Landsbankans Viðskipti innlent Pólfarinn verður yfir starfsstöðvum á jöklum Viðskipti innlent Fréttirnar sem fylgja okkur í vinnuna Atvinnulíf Stefndi á Hollywood en hefur ekki heyrt í þeim enn Atvinnulíf Ísbúð Vesturbæjar í Skipholti lokað Neytendur Landsvirkjun og Elkem semja til 2039 Viðskipti innlent Fráfarandi forstjóri Landsvirkjunar opnar sig um starfslokin Viðskipti innlent Fleiri fréttir Pólfarinn verður yfir starfsstöðvum á jöklum Stjórnarlaun hækkuðu 75 prósent meira en önnur laun Fyrsta konan sem kjörin er formaður Hafnarsambandsins Ella frá Marel til Landsbankans Fráfarandi forstjóri Landsvirkjunar opnar sig um starfslokin Högnuðust vel á fjórðungnum en reiknað með tapi á árinu Landsvirkjun og Elkem semja til 2039 Stýrir vörumerkja- og markaðsmálum hjá Íslandshótelum Norðurlöndin efla samstarf sitt í fjármálaeftirliti Leiguverð lækkar að raunvirði og óvissa á fasteignamarkaði Íslendingar lent í slæmum málum á Ítalíu Veiðigjöldin lækkað en ekki hækkað á þessu ári Skuldar þrotabúi föður síns hundruð milljóna króna til Lilja Dögg ráðin forstjóri Eitt greiðir arð en annað með neikvætt eigið fé Willum í stjórn Litla spítalans Eggert ráðinn til Litla spítalans Taldi sig hafa boðið 5.000 kall í fyrsta farrými en greiddi sexfalt meira Þriggja milljarða hagnaður hjá Emblu Medical Borgar sig að taka lífeyri samhliða 100% vinnu? Afkoman úr þremur milljónum í plús í tuttugu í mínus Allt uppselt og skellt í lás hjá Skims Tekur við stjórn Fyrirtækjamiðstöðvar Íslandsbanka Fella niður 1,4 milljarða sekt Landsvirkjunar Ísraelskt flugfélag boðar beint flug til Íslands Play komið í eignasafn Icelandair Verðbólguþrýstingurinn að gefa eftir Phoenix Seafood og Eðalfang sameinast Apple notendur geta sent SMS á Neyðarlínu í gegnum gervihnött Íhuga að krefja Ölgerðina skýringa Sjá meira