Selur gamla fyrirtækinu annað á tæpa þrjá milljarða Árni Sæberg skrifar 7. ágúst 2026 12:18 Reynir Finndal Grétarsson er stofnandi bæði Creditinfo og Everydata. Vísir/Vilhelm Að undangengnu alþjóðlegu útboði hefur Infocapital undirritað kaupsamning við Creditinfo Group um kaup hins síðarnefnda á öllu hlutafé í Everydata Group, leiðandi fjárhagsupplýsingastofu með starfsemi í Karabíska hafinu. Heildarvirði viðskiptanna getur farið yfir 20 milljónir bandaríkjadala, um 2,9 milljarða króna, náist tiltekin árangursviðmið á árinu. Reynir Finndal Grétarsson er langsamlega stærsti eigandi Infocapital en einnig stofnandi Creditinfo. Hann seldi 69 prósenta hlut sinn í Creditinfo á 13,5 milljarða árið 2022.
Í fréttatilkynningu um kaupin segir að Creditinfo Group, móðurfélag Creditinfo Lánstraust á Íslandi, sé með starfsemi í yfir fjörutíu löndum og kaupin víkki starfsemina út í fjórðu heimsálfuna. Stofnað í Kingston Everydata eigi sér íslenskar rætur og hafi verið stofnað árið 2011 í Kingston á Jamaíku af Reyni, stofnanda Creditinfo. Fyrirtækið hafi byggt upp sterka stöðu í 11 löndum í Karabíska hafinu. Með kaupunum sameinist þessi starfsemi alþjóðlegri starfsemi Creditinfo Group. ,,Kaupin á Everydata eru mikilvægt skref í áframhaldandi uppbyggingu Creditinfo Group. Everydata hefur byggt upp öflugt fyrirtæki og sterka stöðu á sínum mörkuðum. Með því að sameina alþjóðlega reynslu Creditinfo og staðbundna þekkingu Everydata getum við þróað enn betri lausnir fyrir viðskiptavini okkar, aukið aðgengi að fjármögnun og stutt við efnahagsþróun á svæðinu,“ er haft eftir Satty Saha, forstjóra Creditinfo Group. Sérstaklega stoltur „Við erum stolt af því að hafa skapað fjölmörg ný störf og leyst raunveruleg vandamál fyrir einstaklinga og fyrirtæki. Lausnir okkar eru í dag orðnar óaðskiljanlegur hluti af viðskiptalífi á svæðinu, þar sem traust og gagnsæi eru grundvöllur viðskiptasambanda,“ er haft eftir Kristni Erni Agnarssyni, forstjóra Everydata Group. Loks er haft eftir Reyni, sem er stjórnarformaður Everydata group að það geri hann sérstaklega stoltan að Everydata hafi byggst upp með íslenskri þekkingu, frumkvæði og ekki síst mikilli þrautseigju. „Þetta er árangur sem við getum öll verið stolt af og ég óska starfsmönnum alls hins besta og nýjum hluthöfum innilega til hamingju.“ Reynir á meirihluta í Gavia Invest sem er stærsti eigandi Sýnar. Vísir er í eigu Sýnar.
Kaup og sala fyrirtækja Nýsköpun Tækni Fjártækni Mest lesið Hótelævintýri lauk með gjaldþrotum upp á milljarð Viðskipti innlent Gangast í ábyrgð fyrir 3,4 milljarða króna láni Viðskipti innlent „Stærsta tölvuinnbrot sögunnar“ hjá rafmyntarisa Viðskipti erlent Getur ekki lengur orða bundist Viðskipti innlent Klakki, áður Exista, gjaldþrota Viðskipti innlent Mega kaupa Öryggismiðstöðina og Opin kerfi Viðskipti innlent Bláa lónið á markað í nóvember Viðskipti innlent Tekjur Nova í hæstu hæðum Viðskipti innlent Svipmyndir úr Hörpu: Framúrskarandi fyrirtækjum fagnað Framúrskarandi fyrirtæki Gervigreindin: „Fólki fannst eins og ég væri að koma úr framtíðinni“ Atvinnulíf Fleiri fréttir Nýttu hagnaðinn í styrki fyrir íþróttastarfsemi Mega kaupa Öryggismiðstöðina og Opin kerfi Bláa lónið á markað í nóvember Klakki, áður Exista, gjaldþrota Hótelævintýri lauk með gjaldþrotum upp á milljarð Getur ekki lengur orða bundist Hefja viðræður um sölu Blikastaðalandsins Bein útsending: Hátæknibrennsla á Íslandi Gangast í ábyrgð fyrir 3,4 milljarða króna láni Ráðin mannauðsstjóri Advania Tekjur Nova í hæstu hæðum Live verður Lifa Treble hlaut Nýsköpunarverðlaunin Hagnast um 33 milljarða en sjá viðvörunarljós Náðu að halda kaupunum leyndum Aukinn vaxtamunur og hagnaður upp á tæpa 22 milljarða Bein útsending: Nýsköpunarþing 2026 - Tækifæri og áskoranir á landsbyggðinni Eina landið í Vestur-Evrópu þar sem verðbólga eykst ekki „Ísland er demanturinn í kórónunni í okkar félagi“ Verðbólga stendur í stað Boðar samtök sendla eftir fýlufund með Wolt: „Og það verður stórt verkfall“ TAP flýgur milli Keflavíkur og Lissabon Birta gott uppgjör og hnýta í ríkisstjórnina Spænskt félag kaupir Samskip Sorpa lætur sautján róa Til skoðunar að ÁTVR bjóði upp á heimsendingu Guðný Helga tekur við af Haraldi Greiða hundruð milljóna króna sekt Bein útsending: Umhverfisdagur atvinnulífsins Ragnheiður tekur við af Páli hjá Keahótelum Sjá meira