Viðskipti innlent

Selur gamla fyrir­tækinu annað á tæpa þrjá milljarða

Árni Sæberg skrifar
Reynir Finndal Grétarsson er stofnandi bæði Creditinfo og Everydata.
Reynir Finndal Grétarsson er stofnandi bæði Creditinfo og Everydata. Vísir/Vilhelm

Að undangengnu alþjóðlegu útboði hefur Infocapital undirritað kaupsamning við Creditinfo Group um kaup hins síðarnefnda á öllu hlutafé í Everydata Group, leiðandi fjárhagsupplýsingastofu með starfsemi í Karabíska hafinu. Heildarvirði viðskiptanna getur farið yfir 20 milljónir bandaríkjadala, um 2,9 milljarða króna, náist tiltekin árangursviðmið á árinu. Reynir Finndal Grétarsson er langsamlega stærsti eigandi Infocapital en einnig stofnandi Creditinfo. Hann seldi 69 prósenta hlut sinn í Creditinfo á 13,5 milljarða árið 2022.

Í fréttatilkynningu um kaupin segir að Creditinfo Group, móðurfélag Creditinfo Lánstraust á Íslandi, sé með starfsemi í yfir fjörutíu löndum og kaupin víkki starfsemina út í fjórðu heimsálfuna.

Stofnað í Kingston

Everydata eigi sér íslenskar rætur og hafi verið stofnað árið 2011 í Kingston á Jamaíku af Reyni, stofnanda Creditinfo. Fyrirtækið hafi byggt upp sterka stöðu í 11 löndum í Karabíska hafinu. Með kaupunum sameinist þessi starfsemi alþjóðlegri starfsemi Creditinfo Group.

,,Kaupin á Everydata eru mikilvægt skref í áframhaldandi uppbyggingu Creditinfo Group. Everydata hefur byggt upp öflugt fyrirtæki og sterka stöðu á sínum mörkuðum. Með því að sameina alþjóðlega reynslu Creditinfo og staðbundna þekkingu Everydata getum við þróað enn betri lausnir fyrir viðskiptavini okkar, aukið aðgengi að fjármögnun og stutt við efnahagsþróun á svæðinu,“ er haft eftir Satty Saha, forstjóra Creditinfo Group.

Sérstaklega stoltur

„Við erum stolt af því að hafa skapað fjölmörg ný störf og leyst raunveruleg vandamál fyrir einstaklinga og fyrirtæki. Lausnir okkar eru í dag orðnar óaðskiljanlegur hluti af viðskiptalífi á svæðinu, þar sem traust og gagnsæi eru grundvöllur viðskiptasambanda,“ er haft eftir Kristni Erni Agnarssyni, forstjóra Everydata Group.

Loks er haft eftir Reyni, sem er stjórnarformaður Everydata group að það geri hann sérstaklega stoltan að Everydata hafi byggst upp með íslenskri þekkingu, frumkvæði og ekki síst mikilli þrautseigju. 

„Þetta er árangur sem við getum öll verið stolt af og ég óska starfsmönnum alls hins besta og nýjum hluthöfum innilega til hamingju.“

Reynir á meirihluta í Gavia Invest sem er stærsti eigandi Sýnar. Vísir er í eigu Sýnar.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×