Körfubolti

NBA-stjarna skuldar Cam Newton 32 milljónir vegna vangreiddrar leigu

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
LaMelo Ball kemur úr mikilli körfuboltafjölskyldu.
LaMelo Ball kemur úr mikilli körfuboltafjölskyldu. epa/ERIK S. LESSER

Fyrrverandi NFL-leikmaðurinn Cam Newton hefur stefnt körfuboltamanninum LaMelo Ball fyrir að borga sér ekki fyrir leigu á lúxusíbúð í hans eigu. Upphæðin nemur 32 milljónum íslenskra króna.

Ball gekk í raðir Minnesota Timberwolves í sumar eftir að hafa leikið með Charlotte Hornets síðan hann var valinn í nýliðavalinu 2020.

Meðan Ball lék með Hornets leigði hann íbúð af fyrirtæki sem er rekið af fjölskyldu Newtons.

Í maí sakaði fyrirtækið umboðsmann Balls, Jermaine Jackson, um að skulda rúmlega tuttugu milljónir króna. Ball á að hafa leigt tvær íbúðir og leigt aðra þeirra áfram til Jacksons. Ball keypti síðan aðra íbúðina og hélt áfram að leigja Jackson hina en umboðsmaðurinn virðist hafa trassað það að borga leiguna.

Í nýrri stefnu fyrirtækisins sem fjölskylda Newtons rekur er því haldið fram að Ball sé ábyrgur fyrir því sem Jackson skuldar. Ball mátti heldur ekki leigja íbúðina áfram til umboðsmannsins síns samkvæmt reglum húsfélagsins.

Fyrirtækið krefur Ball um 22 milljónir króna auk ellefu milljóna í sektir til húsfélagsins.

Ball hefur aftur á móti haldið því fram að hann hafi tafið það að borga leigu þar sem íbúðirnar þyrftu á endurbótum og mygluhreinsun að halda.

Hinn 24 ára Ball lék í sex ár með Hornets. Hann spilaði í Stjörnuleik NBA 2022. Á síðasta tímabili var hann með 20,1 stig, 4,8 fráköst og 7,1 stoðsendingu að meðaltali í leik.

Newton var valinn verðmætasti leikmaður NFL 2015 en lagði skóna á hilluna 2021. Lengst af ferilsins í NFL lék hann með Carolina Panthers.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×