Körfubolti

Semple bætist við stjörnum prýtt lið Álfta­ness

Valur Páll Eiríksson skrifar
Jordan Semple varð meistari með Grindavík í vor og stefnir nú að því að vinna titilinn á Álftanesi.
Jordan Semple varð meistari með Grindavík í vor og stefnir nú að því að vinna titilinn á Álftanesi. Vísir/Anton

Enn bæta Álftnesingar við sig sterkum leikmönnum fyrir komandi átök í Bónus deild karla. Franski Kaninn Jordan Semple bætist nú við hópinn og hefur Álftanes bætt við sig leikmanni frá öllum fjórum liðum undanúrslita síðasta vors.

Semple varð Íslandsmeistari með Grindavík í vor þar sem hann var lykilmaður. Hann skoraði að meðaltali 17 stig í leik, tók tíu fráköst og gaf fjórar stoðsendingar að meðaltali. Með því var hann framlagshæsti leikmaður deildarinnar.

Sample hefur leikið á Íslandi frá árinu 2021 og hefur auk Grindavíkur leikið fyrir Þór Þorlákshöfn, ÍR og KR.

Segja má að blásið sé í herlúðra á Álftanesi þetta sumarið. Semple er fjórði leikmaðurinn sem gengur í raðir Álftaness eftir að Baldur Þór Ragnarsson, fyrrum þjálfari Stjörnunnar, tók við liðinu.

Allir fjórir koma frá sitthvoru liðinu, sem öll fjögur eiga sameiginlegt að hafa leikið til undanúrslita í Bónus-deildinni í vor.

Luka Gasic kom frá Stjörnunni, Dedrick Basile frá Tindastóli, Frank Aron Booker frá Val og nú síðast Semple frá Grindavík. Einnig kom reynsluboltinn Collin Pryor til liðsins frá Selfossi.


Tengdar fréttir

Basile yfirgefur Stólana og semur við Álftanes

Bandaríski leikstjórnandinn Dedrick Deon Basile hefur skrifað undir samning við körfuknattleiksdeild Álftaness og mun leika með liðinu í Bónus deild karla í körfubolta á komandi leiktíð.

Collin Pryor í Álftanes

Stjórn körfuknattleiksdeildar Álftaness hefur komist að samkomulagi við Collin Pryor um að leika með liðinu á komandi leiktíð. Þetta kemur fram í tilkynningu frá félaginu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×