Enn eitt barnið vill losna við Pitt-nafnið Magnús Jochum Pálsson skrifar 22. júlí 2026 11:29 Mæðgurnar Vivienne og Angelina Jolie en sú fyrrnefnda hefur sóst eftir því að losna við eftirnafn föður síns. Getty Vivienne Jolie-Pitt, yngsta dóttir leikaranna Angelinu Jolie og Brads Pitt, hefur sóst opinberlega eftir því hjá dómstólum að losa sig við eftirnafnið Pitt. Hún er fjórða barn hjónanna fyrrverandi sem hefur losað sig við eftirnafn föðurins eða sóst eftir því.
Dægurmálamiðillinn People greinir frá því að Vivienne Jolie-Pitt hafi sent beiðni til dómstóls í Los Angeles-sýslu þess efnis að nafni hennar verði breytt úr Vivienne Marcheline Jolie-Pitt í Vivienne Marcheline Jolie. Ástæðan fyrir nafnabreytingunni er sögð „persónuleg“ samkvæmt skjölum málsins og verður mál hennar tekið fyrir 2. nóvember næstkomandi. Beiðnin er nýjasta merki þess að Vivienne hafi fjarlægst föður sinn en í maí 2024 þá birtist nafn hennar í leikskrá Broadway-leikritstins The Outsiders sem Vivienne Jolie. Fimm af sex börnum Pitt og Angelinu á frumsýningu fyrir fimm árum. Knox, sem er lengst til hægri, er sá eini á myndinni sem hefur haldið eftirnafni sínu óbreyttu.Getty Vivienne er ekki fyrsta barnið Pitt og Jolie sem fer þessa leið. Þriðja yngsta barn þeirra, Shiloh, losaði sig við Pitt-nafnið í ágúst 2024 og heitir í dag Shiloh Jolie. Fyrr í þessum mánuði ákváðu tvö elstu börnin, Zahara og Maddox, að sækja um sambærilega nafnabreytingu og verða mál þeirra tekin fyrir í september. Angelina Jolie sótti um skilnað frá Brad Pitt þann 19. september 2016 eftir tveggja ára hjónaband og tólf ára samband þeirra hjóna. Nokkrum dögum eftir það voru gerðar opinberar ásakanir í garð Pitt um að hann hefði öskrað ítrekað á börn þeirra í einkaþotu og beitt þau líkamlegu ofbeldi. Sú framkoma hefði verið kornið sem fyllti mælinn. Við tóku erfiðar skilnaðaradeilur sem kláruðust ekki fyrr en 2024 en þau deila enn um víngerðina Château Miraval í Frakklandi.
Skilnaður Angelinu Jolie og Brad Pitt Hollywood Bíó og sjónvarp Bandaríkin Tengdar fréttir Brad Pitt fær sameiginlegt forræði yfir börnunum Úrskurðað hefur verið í forræðisdeilu Brad Pitt og Angelinu Jolie. 26. maí 2021 20:14 Mest lesið Leikkonan Hayden Panettiere er látin Lífið Barnalán hjá Brynju Dan Lífið Dorrit vill biðja eigendurna afsökunar Lífið Eliza Reid var meðal gesta í brúðkaupinu Lífið Nicole er fyrir norðan Lífið Þórdís Elva er gengin út Lífið Ólafur Darri herjar á ringlaðan Jamie Dornan Bíó og sjónvarp Stjörnulífið: Stjörnur í snípstuttu Lífið Salka Sól tekur við af óléttri Jóhönnu Guðrúnu Lífið Bestu hlutverk Hayden Panettiere Bíó og sjónvarp Fleiri fréttir Leikkonan var úrskurðuð látin á vettvangi Hvað veistu um... frjálsar íþróttir? Galvaskt gelludjamm hjá Guggu og guggunum Nicole er fyrir norðan Egill Heiðar og Kittý selja Garðabæjarslotið Helstu samsæriskenningarnar um Evrópusambandið „Ein miðaldra kona að tala um að hún hefði viljað mæta“ Barnalán hjá Brynju Dan Herra og frú Crivello hamingjusöm hjón Svana á tímamótum og selur slotið Auðunn tilkynnir nýja kærustu Salka Sól tekur við af óléttri Jóhönnu Guðrúnu Stjörnulífið: Stjörnur í snípstuttu Leikkonan Hayden Panettiere er látin Eliza Reid var meðal gesta í brúðkaupinu Þórdís Elva er gengin út Efna til söfnunar í minningu Hennings Dorrit vill biðja eigendurna afsökunar Hunter Schafer alsæl eftir Íslandsför Krakkatía vikunnar: Tinni, flekar og stór augu Þórdís Kolbrún fékk hlýjar móttökur Adam Driver mættur í Marvel-heiminn Fréttatía vikunnar: Björk, Usher og peningaþvætti Barbie-framhald í uppnámi vegna launakrafa Robbie Williams einhverfur Hálfsextugur Hamm að verða pabbi í fyrsta sinn Hjartnæm athöfn þegar Gunnar Þórðarson var jarðsunginn Dorrit sendir rabbínanum tóninn Berskjölduð og óttaslegin eftir skilnaðinn og framtíðin óráðin Jóhanna Guðrún ólétt Sjá meira
Brad Pitt fær sameiginlegt forræði yfir börnunum Úrskurðað hefur verið í forræðisdeilu Brad Pitt og Angelinu Jolie. 26. maí 2021 20:14