Svona berðu kennsl á fyrstu einkenni heilabilunar Eiður Þór Árnason skrifar 14. júlí 2026 00:07 Steinunn Þórðardóttir er formaður Læknafélags Íslands. Vísir/Vilhelm Umræða um heilabilun hefur aukist og hafa slíkir sjúkdómar áhrif á stóran hluta íslenskra fjölskyldna. Öldrunarlæknir segir það jákvæða þróun að samfélagið hafi öðlast meiri skilning á sjúkdómum á borð við Alzheimer á frekar skömmum tíma. Minnisvandamál séu langalgengasta fyrsta einkenni heilabilunar og þá yfirleitt skammtímaminnisskerðing. „
Fólk heldur yfirleitt langtímaminninu mun lengur og því sem gerðist á þeirra yngri árum og svona eldri atburði. En það sem gerðist í gær, jafnvel áðan, það fer að detta út og þetta er oft eitthvað sem aðstandendur taka einmitt eftir að er breyting. Minnið daprast hjá okkur öllum með aldrinum að einhverju leyti en þetta fer að verða þannig að fólk tekur eftir því að þetta er að ágerast og þetta er svona meira heldur en góðu hófi gegnir,“ sagði Steinunn Þórðardóttir, öldrunarlæknir og formaður Læknafélags Íslands í Reykjavík síðdegis á Bylgjunni. Þessu fylgi oft miklar endurtekningar þar sem fólk sé að spyrja ítrekað að sömu hlutunum og endurtaka sömu sögurnar. Þá geti fólk farið að týnast, týna hlutum mikið heima hjá sér, týna bílnum eða hætt að rata heim. „Þetta eru svona mjög dæmigerð fyrstu einkenni.“ Breytt göngulag geti einnig verið meðal einkenna. Alzheimer ekki eini sjúkdómurinn „Heilabilunarsjúkdómar eru margir og fjölbreytilegir og þar er Alzheimer langalgengastur. Það eru langoftast svona skammtímaminnisvandamál sem einkenna þann sjúkdóm,“ segir Steinunn. „Aðrir geta komið niður á göngulagi, rýmdarskynjun, persónuleika, tali og ýmsu fleiru. Fólk á erfiðara með að tjá sig, missir út orð og er óskýrt. Það eru alls konar svona einkenni.“ Reyna oft að fela einkennin Steinunn forðast að nota hugtakið elliglöp þar sem það getur ýtt undir þann misskilning að sjúkdómarnir hafi einungis áhrif á eldra fólk. „Margir sem eru með byrjandi heilabilunarsjúkdóm hafa litla innsýn í það sjálfir, það er eitt af einkennunum og eru gjarnan að fela einkennin. Þannig að það getur gert aðstandendum erfitt fyrir.“ Henni sýnist skilningur á heilabilun vera að aukast í samfélaginu, líkt og áður segir. Hún hafi séð gríðarlega breytingu frá því hún kom heim úr sérnámi í Svíþjóð árið 2014. Alzheimersamtökin vinni frábært starf „Mér finnst umræðan hafa aukist mikið sem er mjög gott. Alzheimersamtökin hafa verið gríðarlega öflug í þessu og talandi um aðstandendur þá er það svona þangað sem maður getur mælt með að fólk leiti ef það hefur áhyggjur. Það er mjög góð þjónusta þar og ráðgjöf. Ég ætla líka að fá að nota tækifærið og benda á að helsta tekjuuppspretta Alzheimersamtakanna er Reykjavíkurmaraþonið. Ég hef engra hagsmuna að gæta en ég mæli með því að fólk hafi það í huga að þetta eru algengir sjúkdómar og snerta marga. Og þessi samtök eru að vinna alveg frábært starf í að styðja við þá,“ segir Steinunn að lokum.
Heilbrigðismál Reykjavík síðdegis Geðheilbrigði Eldri borgarar Mest lesið Musk segi ósatt um Starlink Erlent Ekki sjálfsagt að bóka flug með löngum fyrirvara Innlent Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Erlent Bóndinn segist stoltur stunda blóðmerahald Innlent Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Erlent Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Erlent Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Erlent Svakaleg lægð í líkingu við metlægðina í síðustu viku nálgast landið Veður Telja brýnt að endurskoða fækkun lögregluembætta Innlent Vilja hækka samræðisaldur Innlent Fleiri fréttir Bóndinn segist stoltur stunda blóðmerahald Ekki sjálfsagt að bóka flug með löngum fyrirvara Glefsaði í vegfaranda við matvöruverslun Jólageitin risin Sjö þúsund krónur séu ekki nóg Landsbyggðin „brjáluð“ vegna málsins Leggjast gegn sameiningu lögregluembætta „Ég er bara svolítið sár“ „Landsbyggðin brjáluð“ og draugar í Laugardal Vilja hækka samræðisaldur Telja brýnt að endurskoða fækkun lögregluembætta Óljóst hvers vegna þeir hittust í „völundarhúsi“ bílastæðahússins „Góður rjúpnatúr snýst ekkert um veiða sem flestar rjúpur“ Sigmar snýr aftur Umferðarslys á Breiðholtsbrautinni Mátti reka mann sem hótaði að slíta af honum höfuðið Klukkuturninn snýr aftur á Hlemm „Við erum virkilega þreyttir“ Vill efla bókasöfnin með minni yfirbyggingu Hafa lagt sig fram við að eyða óvissunni Nú má heita eftir persónu í Hringadróttinssögu Beiðni skólastjóra kveikti hörð orðaskipti í Hafnarfirði Ráðast í úttekt eftir að starfsmaður lenti í alvarlegu vinnuslysi Ætla að blása til sóknar í bókasöfnum borgarinnar Þakið komið af tilvonandi höfuðstöðvum Nova Hörð andstaða íbúa við rekstur veislusalar Suðuviðgerð leiddi til lendingar á veginum Fresturinn liðinn en enn ósamið við flugvirkja Drógu vélarvana skútu til hafnar Telur dómarann vanhæfan vegna starfa í slitastjórn Sjá meira