Stjörnum prýddur gestalisti Swift og Kelce Silja Rún Sigurbjörnsdóttir skrifar 5. júlí 2026 09:34 Þau voru á um þúsund manna gestalista. Samsett/Getty Frægustu stjörnurnar voru að sjálfsögðu mættar í eitt stærsta brúðkaup ársins hjá Taylor Swift og Travis Kelce. Mikil leynd var yfir öllu sem tengdist brúðkaupinu en talið er að um þúsund manns hafi verið á gestalistanum.
Tónlistarkonan Taylor Swift og fótboltakappinn Travis Kelce gengu í hjónaband á föstudagskvöld. Allt sem tengdist brúðkaupinu var mikið leyndarmál en þar sem brúðkaupið var haldið á Madison Square Garden-leikvellinum fór ekki fram hjá neinum hvað væri um að vera. Flestum brúðkaupsgestum var ekið inn um stórt tjald fyrir utan leikvanginn svo þau væru falin augum forvitinna aðdáenda sem reyndu að fylgjast með. Nokkrir voru þó svo hugrakkir að þeir gengu inn. Grínleikarinn Adam Sandler gaf hjónin saman og voru þau bæði með bræður sína sér við hlið, Austin Swift við hlið Taylor og Jason Kelce við hlið Travis. Foreldrar þeirra beggja sóttu brúðkaupið en að sjálfsögðu var gestalistinn einnig stjörnum prýddur. Þetta var birt á skjám Madison Square Garden-leikvanginum að brúðkaupinu loknu.AP New York Times greinir frá því að leikkonurnar Emma Stone og Dakota Johnson hafi verið á gestalistanum auk söngkonunnar Stevie Nicks. Þá voru söngvararnir Suki Waterhouse, Benson Boon, Ed Sheeran og Sombr auk leikaranna Brad Pitt og Tom Brady. Tónlistarkonan Selena Gomez og Swift hafa verið vinkonur um árabil enda skutust þær upp á sjónarsviðið á svipuðum tíma. Swift var sjálf gestur í brúðkaupi Gomez þegar hún gekk að eiga Benny Blanco. Þau voru meðal gesta sem fengu einnig boð í fyrirpartý brúðkaupsins á fimmtudag. Selena Gomez með eiginmanni sínum Benny Blanco.Instagram Karlie Kloss klæddist gulllituðum silkikjól. Hún og Taylor urðu fyrst vinkonur árið 2012 en slitnaði upp úr vinskapnum um tíma. Svo virðist sem þær hafa vingast aftur við hvor aðra fyrst að Kloss var boðið í brúðkaupið.Getty Bradley Cooper var í klassískum jakkfötum og slaufu í tilefni dagsins.Getty Gigi Hadid, fyrirsæta og kærasta Cooper, er góð vinkona Taylor Swift. Hún klæddist fallegum bleikum kjól og segir hárgreiðslumeistari hennar hafa viljað búa til sömu tilfinningu og þegar maður borðar ís í formi. View this post on Instagram A post shared by Dimitris Giannetos (@dimitrishair) Leikarinn Ethan Hawke var með bindi ólíkt öðrum gestum.Getty Abigail Anderson er æskuvinkona Swift en hún starfar hjá Celero Commerce.Getty Söngkonan Gracie Abrams er ein vinkvenna Swift og hafa þær meðal annars unnið saman að tónlistarsmíð. View this post on Instagram A post shared by Emily Cheng (@emilychengmakeup) Söngkonan Camila Cabello var í lausum rauðum kjól.Getty Abby Wambach, fyrrverandi atvinnukona í fótbolta, og Glennon Doyle, rithöfundur.Getty Tate McRae söngkona klæddist Valentino-kjól frá árinu 2022. View this post on Instagram A post shared by @_lucygaston Jason Sudeikis var prúðbúinn með slaufu.Getty Hjartaknúsarinn Hugh Grant og Anna Elisabet Eberstein.Getty Fergie fagnaði því að geta bæði klæðst Christian Dior-kjól og fagnað ástinni. View this post on Instagram A post shared by Fergie (@fergie) Leikkonan Joey King var mætt með eiginmanni sínum Steven Piet en vísaði hún í skiltið sem hjónin birtu fyrir utan Madison Square Garden meðan á brúðkaupinu stóð. View this post on Instagram A post shared by Joey King (@joeyking) Leikkonan Laura Dern sést hér yfirgefa veisluna seint að kvöldi til.AP
Bandaríkin Ástin og lífið Tónlist NFL Hollywood Brúðkaup Mest lesið Patrik hættur að gigga: „Mér líður eins og apa í búri“ Tónlist „Hélt ég myndi aldrei upplifa ást sem þessa“ Lífið Gurrý komin aftur á markaðinn Lífið „Betra að vera sein og sæt en fljót og ljót“ Tíska og hönnun Bogi Ágústsson á fjölunum sem Sigurjón digri Lífið Tíu ár frá greiningunni: „Ég var alltaf ákveðin í að sigrast á meininu“ Lífið Förðunardrottning selur á Framnesvegi Lífið Þýðandi Ódysseifskviðu segir að Nolan eigi að skammast sín Lífið Stjörnulífið: „Heppnasta stelpa allra tíma“ Lífið Elegans í hæstu hæðum í fimmtugsafmæli ársins Lífið Fleiri fréttir Tilraunakennd tískusýning í bílakjallara Safna fjármagni með múrmeldýrum á OnlyFans Gurrý komin aftur á markaðinn Förðunardrottning selur á Framnesvegi „Heimurinn er betur staddur með Höllu sem forseta“ Tíu ár frá greiningunni: „Ég var alltaf ákveðin í að sigrast á meininu“ „Hélt ég myndi aldrei upplifa ást sem þessa“ Bogi Ágústsson á fjölunum sem Sigurjón digri Guðný Ljósbrá og Katrín Björk eignuðust dreng Þýðandi Ódysseifskviðu segir að Nolan eigi að skammast sín Carly Simons lærir að lifa með Parkinson Daði og Árný eiga von á sínu þriðja barni Japanskir sjóliðar troða upp fyrir utan Hörpu Edda Falak og Kristján Helgi selja íbúð í 101 Seyfried syrgir Finn sinn Elegans í hæstu hæðum í fimmtugsafmæli ársins Stjörnulífið: „Heppnasta stelpa allra tíma“ Fundu hvor aðra á ný eftir erfiða reynslu Emma Roberts gengin í það heilaga „Maður getur ekki falið sig á sama hátt þegar allt hárið er farið“ Krakkatía vikunnar: Rottur, froða og þyrnihrós Einar Örn og Birna selja einbýlishúsið Ekki ósanngjarnt gagnvart sjálfri sér heldur börnunum Vilja láta svipta ekkju leikarans yfirráðum yfir dánarbúinu Gagnrýni á John Snorra ómálefnaleg og slitin úr öllu samhengi Fréttatía vikunnar: Infantino, hvítt efni og svikahrina Diddy í einangrun eftir slagsmál við samfanga Chris Brown játaði ofbeldisfulla hegðun Afþakkaði milljón Bandaríkjadala fyrir eitt uppistand Upplýsingafulltrúar sem flúðu fréttirnar Sjá meira