Samningurinn sem allir hafa lesið 3. júlí 2026 12:09 Það hlýtur að vera kominn tími til að endurskoða hvernig við stöndum að alþjóðasamningum á Íslandi. Samningaviðræður eru orðnar óþarfa flækjustig. Þær taka mörg ár, kosta mikla peninga og enda yfirleitt með málamiðlunum sem enginn er alveg sáttur við. Á meðan sitja hundruð Íslendinga á samfélagsmiðlum sem vita nákvæmlega hvernig samningar munu líta út áður en fyrsta fundarboðið hefur verið sent út. Þetta hlýtur að vera vannýtt auðlind. Það skiptir nefnilega engu máli hvort samningurinn er til eða ekki. Við höfum þegar lesið hann. Við vitum hvaða undanþágur Ísland fær. Við vitum hvaða undanþágur Ísland fær ekki. Við vitum hvað Brussel mun samþykkja og hvað það mun hafna. Sumir virðast jafnvel vita hvað embættismenn Evrópusambandsins hugsa áður en þeir hugsa það sjálfir. Það eina sem vantar er samningurinn sjálfur. Það skemmtilegasta við umræðuna er þó sjálfstraustið. Það er ekki bara þannig að fólk hafi skoðun. Það hefur fullkomna vissu. Það þarf engin gögn, engar viðræður og enga óvissu. Skoðunin er fullmótuð, steinsteypt og tilbúin til afhendingar. Og ef staðreyndirnar skyldu síðar reynast ósamrýmanlegar skoðuninni... ...þá eru það staðreyndirnar sem þurfa að endurskoða sig. Svo kemur þjóðaratkvæðagreiðslan. Margir tala um hana eins og verið sé að kjósa um aðild að Evrópusambandinu. Það væri vissulega áhugavert ef það væri rétt. En það sem liggur fyrir er hvort halda eigi áfram viðræðum. Með öðrum orðum: eigum við að sjá samninginn áður en við tökum afstöðu til hans? Þetta virðist mörgum óþarfa flækjustig. Við gætum auðvitað beitt þessari aðferð víðar. Ég ætla ekki í atvinnuviðtal. Ég veit alveg hvernig það fer. Ég ætla ekki að skoða íbúðina. Ég veit að baðherbergið er ljótt. Ég ætla ekki að hitta lækninn. Ég er búinn að gúggla þetta. Ég ætla ekki að lesa samninginn. Ég er búinn að vera ósammála honum síðan 2009. Það merkilega er að báðar fylkingar í umræðunni eru sammála um eitt. Samningurinn verður nákvæmlega eins og þær segja. Þær eru bara ósammála um hvernig hann verður. Það hlýtur að vera einstök staða í alþjóðastjórnmálum að tvær fylkingar geti verið hundrað prósent sammála um framtíð skjals sem enginn hefur skrifað. Það er ákveðin tegund af þjóðareiningu. Svo eru það sérfræðingarnir. Þeir eru alls staðar. Eftir tíu mínútur á Facebook veistu allt um gjaldmiðla, sjávarútveg, tollamál, stjórnarskrá Evrópusambandsins, sameiginlega landbúnaðarstefnu, Schengen, EES, ECB og peningamálastefnu. Ég velti stundum fyrir mér hvers vegna Háskóli Íslands er yfirhöfuð enn starfandi. Athugasemdakerfið virðist löngu hafa tekið við. En það sem ég dáist mest að er þessi séríslenska hæfileiki að rugla saman sannfæringu og þekkingu. Því sannfæring er ókeypis. Þekking kostar vinnu. Kannski verður aðildarsamningur Íslands frábær. Kannski verður hann hræðilegur. Kannski verður hann, eins og flestir alþjóðasamningar, langur, flókinn og fullur af málamiðlunum sem gera alla jafn óánægða. Við vitum það ekki. Og það er allt í lagi. Það sem er ekki alveg jafn eðlilegt er að haga umræðunni eins og við vitum það. Kannski ættum við bara að prófa eitthvað alveg nýtt. Við gætum byrjað á því að sjá samninginn. Ég geri mér grein fyrir því að þetta er umdeild hugmynd. Höfundur er umhverfis- og auðlindafræðingur. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Haukur Logi Jóhannsson Skoðun: Þjóðaratkvæðagreiðsla um ESB-viðræður Mest lesið Hinn háskalegi hugsunarháttur Sighvatur Björgvinsson Skoðun Alþjóðadagur friðarmenningar 21. september Gunnar Hersveinn Skoðun Hún þekkir mig með hjartanu Thelma Jónsdóttir Skoðun Samsköttun hjóna – allt annar hlutur? Gunnar Ármannsson Skoðun Heilbrigð skynsemi Einar Bárðarson Skoðun Hvalveiðum er lokið... í bili Sigurlaug Knudsen Stefánsdóttir Skoðun Hvers vegna hrynur námsárangur á Íslandi en ekki á Englandi? Guðrún Sævarsdóttir Skoðun Hver borgar? — Seinni hluti: Já 2026 Gestur Valgarðsson Skoðun 37% og reikningskúnstir Viðskiptaráðs Hjálmar Bogi Hafliðason Skoðun Pólland setur jurtaríkið á matseðilinn Ingrid Kuhlman Skoðun Skoðun Skoðun Hinn háskalegi hugsunarháttur Sighvatur Björgvinsson skrifar Skoðun Alþjóðadagur friðarmenningar 21. september Gunnar Hersveinn skrifar Skoðun 37% og reikningskúnstir Viðskiptaráðs Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar Skoðun Hvers vegna hrynur námsárangur á Íslandi en ekki á Englandi? Guðrún Sævarsdóttir skrifar Skoðun Heilbrigð skynsemi Einar Bárðarson skrifar Skoðun Samsköttun hjóna – allt annar hlutur? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Tæknin í okkar þágu – ekki öfugt Halla Tómasdóttir skrifar Skoðun Pólland setur jurtaríkið á matseðilinn Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Hún þekkir mig með hjartanu Thelma Jónsdóttir skrifar Skoðun Hvalveiðum er lokið... í bili Sigurlaug Knudsen Stefánsdóttir skrifar Skoðun Hver borgar? — Seinni hluti: Já 2026 Gestur Valgarðsson skrifar Skoðun Parkour skúrinn - Síðasta vígið Davíð Már Sigurðsson, Tommi Thor Guðmundsson,Viktor Yngvi Ísaksson skrifar Skoðun Þú, ég og dildóinn Eva Pandora Baldursdóttir skrifar Skoðun SÁÁ, milljarðarnir og aðhaldið sem vantar Kristín I. Pálsdóttir skrifar Skoðun Sheeran og Gaza Arnar Eggert Thoroddsen skrifar Skoðun Sameinumst um 2,5 prósent markmið Seðlabankans Bragi Bjarnason skrifar Skoðun Lestur er meira en ein aðferð Guðmundur Engilbertsson skrifar Skoðun Hver skilgreinir svarið? Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Krónan varð eftir – nú þarf að láta hana virka Örn Sigurdsson skrifar Skoðun Grænlandssamningurinn Arnór Sigurjónsson skrifar Skoðun Uppsagnir hafnar en ríkið er ekki tilbúið að taka við Sigrún Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Þegar faglegt sjálfstæði verður að neitunarvaldi Ketill Guðmundsson skrifar Skoðun Penelópa í Valhöll Júlíus Valsson skrifar Skoðun Þegar „fjölmiðlastyrkir“ eru ekki fyrir alla fjölmiðla Hólmgeir Baldursson skrifar Skoðun Litlar ákvarðanir geta leitt til fleiri heilbrigðra æviára Thor Aspelund skrifar Skoðun Ferðaskrifstofur í gíslingu kjaradeilna: Hver á að borga brúsann? Ásdís Eir Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Allt landið eitt kjördæmi Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Ég ætla ekki að verða sérfræðingur í salernispappír Haukur Logi Jóhannsson skrifar Skoðun Ástæðan fyrir ástandinu hjá SÁÁ Theódór S. Halldórsson skrifar Skoðun Hvers vegna er ég ekki kominn lengra? Sigurður Árni Reynisson skrifar Sjá meira
Skoðun Parkour skúrinn - Síðasta vígið Davíð Már Sigurðsson, Tommi Thor Guðmundsson,Viktor Yngvi Ísaksson skrifar
Skoðun Ferðaskrifstofur í gíslingu kjaradeilna: Hver á að borga brúsann? Ásdís Eir Guðmundsdóttir skrifar