Að semja við sjálfan sig Sigurjón Njarðarson skrifar 27. júní 2026 11:32 „Fullveldi er ekki tilfinning“ var fyrirsögn pistils sem framkvæmdastjóri Samtaka fyrirtækja í sjávarútvegi skrifaði í Viðskiptablaðið í vikunni. Svo það sé sagt, þá er það fagnaðarefni að ritað sé um fullveldishugtakið og þýðingu þess. Það verður þó að viðurkennast að nokkru var ábótavant í greininni. Þá er einnig komið inn á það í pistlinum að með hugsanlegri ESB aðild myndi íslenska ríkið framselja rétt sinn til semja um skiptingu deilistofna á alþjóðlegum hafsvæðum. Rétt er að hafa um það nokkur orð. Fullveldi sem lagalegt hugtak Það er hverju orði sannara sem segir í pistlinum, að inntak lagalega hugtaksins fullveldi er að „ríki fari með æðsta vald um eigin lög og komi fram sem sjálfstæður aðili gagnvart öðrum ríkjum“. Það sem þarna er sleppt að nefna skiptir þó líka verulegu máli. Óaðskiljanlegur hluti fullveldisins er réttur ríkja til þess að geta skuldbundið sig gagnvart öðrum ríkjum með samningi, eða öðrum sambærilegum hætti. Þegar ríki skuldbinda sig gagnvart öðrum ríkjum eru þau því ekki að framselja fullveldi sitt, þau eru að beita því. Bjarni Már Magnússon, doktor í Hafrétti, fjallaði um þetta í umsögn sinni í um þingsályktunartillögu um væntanlega þjóðaratkvæðagreiðslu. Þar nefndi hann að fullveldi er í þessum skilningi eðlislíkt lögræðishugtakinu. Einstaklingur sem ræður sig til að vinna tiltekið verk afsalar sér ekki lögræði sínu á meðan hann innir það af hendi. Hann er að beita lögræði sínu til að gera samning sér sjálfum til hagsbóta. Líkingin sem Bjarni grípur til er vel þekkt og hafa aðrir gripið til hennar, þ.m.t. Einar Arnórsson sem var, ásamt Bjarna Jónssyni frá Vogi, fulltrúi Íslands við gerð sambandslaganna við Danmörku. Eins og þekkt er tryggði sú framganga fullveldi Íslands árið 1918. Í riti sínu Þjóðréttarsamband Íslands við Danmörku frá árinu 1923 útskýrir Einar að: „[t]akmörkun á athafnafrelsi ríkis sviftir það ekki alment fullveldi fremur en takmörkun á athafnafrelsi manns sviftir hann lögræði.“ Sambærileg hugsun birtist á öðrum stað í riti hans, og þá um íslensk hafsvæði. Þar fjallaði hann um 8. gr. sambandslaganna sem kvað á um að Danmörk hefði á hendi „gæzlu fiskveiða í íslenskri landhelgi undir dönskum fána, þar til Ísland kynni að ákveða að taka hana í sínar hendur, að öllu eða nokkru leyti, á sinn kostnað.“ Þar segir Einar: „Nú er landið er fullvalda ríki, þá leiðir af því, að það hefir ríkisforræði yfir landhelginni, því að samningur við Danmörk um gæzlu fiskiveiða í íslenzkri landhelgi er ekki fremur afsal þess forræðis á henni, en það væri afsal forræðis á jörð, að eigandi hennar fæli öðrum að reka skepnur úr túni jarðarinnar.“ Um forsvar í samningum um deilistofna Í nefndaráliti meirihluta utanríkismálanefndar Alþingis er mikilvægi sjávarútvegs ítrekað. Þar segir í kaflanum um samningsmarkmið um nýtingu deilistofna: „Meiri hlutinn ítrekar að afar mikilvægt er að tryggja hagsmuni Íslands þegar kemur að nýtingu deilistofna. Leitað verði leiða til að tryggja beina aðkomu að samningaferli um deilistofna. Tryggja þarf að sú hlutdeild sem þegar hefur verið samið um haldist, auk þess sem nauðsynlegt er að þrýsta á um að samningum verði lokið um aðra stofna enda hlýtur það að vera sjálfstætt markmið óháð mögulegum aðildarviðræðum til að vernda viðkomandi stofna.“ Alþingi hefur því nú þegar farið yfir þau sjónarmið sem framkvæmdastjóri SFS velti upp í pistli sínum. Vilji löggjafans er fyllilega í þeim anda sem þar er lýst. Alltént er ljóst að forsvar Íslendinga verður áfram til staðar, spurningin er hvernig því verður háttað, hvort það verði óbreytt, eða þá í samstarfi við önnur ríki Evrópu. Um þetta á eftir að semja og svo yrði niðurstaðan borin undir þjóðina. Staðreyndir eða tilfinningar Fyrir liggur að þjóðinn mun, í lok sumars, taka ákvörðun um hvort samningaviðræður um hugsanlega aðild að Evrópusambandinu verði teknar upp að nýju. Það liggja fyrir hver samningsmarkmið Íslands yrðu í viðræðum er varða sjávarútvegsmál. Það liggur einnig fyrir að framkvæmdastjóri Evrópusambandsins, sjávarútvegsstjóri þess og stækkunarstjóri, hafa öll sagt skýrt að þau viti hvaða málefni séu Íslandi mikilvægust og að tekið verði sérstakt tillit til þeirra. Þetta eru staðreyndir. Þegar einhver gefur sér útkomu samnings fyrir fram, er það ekki staðreynd, heldur ágiskun. Það er sömuleiðis staðreynd að samningur um samstarf við önnur ríki er ekki framsal fullveldis. Slíkur samningur kann að skuldbinda ríki þannig að það geti ekki beitt sér á hvaða hátt sem er, en það er engu að síður áfram fullvalda. Þegar Ísland undirritaði Mannréttindasáttmála Evrópu, skuldbatt ríkið sig gagnvart öðrum ríkjum til að stunda ekki pyntingar hér á landi. Fáum dettur í hug að íslenska ríkið hafi með þeim hætti skert fullveldi sitt. Það er heldur ekki sérlega upplýsandi í umræðu um samninga við önnur ríki, að gera eingöngu grein fyrir því hverjar skuldbindingarnar væru, sér í lagi ef eingöngu er vísað til skuldbindinga sem ósamið er um. Aðild Íslands að margs konar alþjóðastarfi er grundvöllur þess að sjávarútvegurinn skilar þeim miklu verðmætum sem hann gerir. Sem dæmi er grundvöllur 200 mílna efnahagslögsögunnar Hafréttarsamningur Sameinuðu þjóðanna, en í honum felast hvoru tveggja skuldbindingar og réttindi. Ef við töluðum eingöngu um skuldbindingar þess sáttmála en aldrei ábatann, væri það vart samtal sem mark væri á takandi. Fyrsta skrefið er að hætta að semja við okkur sjálf og hefja aðildarviðræður. Að þeim loknum getur hafist samtal um hvort að ábati aðildar að ESB sé slíkur að skuldbindingar séu réttlætanlegar. Höfundur er lögfræðingur og framkvæmdastjóri þingflokks Viðreisnar Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Skoðun: Þjóðaratkvæðagreiðsla um ESB-viðræður Sjávarútvegur Mest lesið Eineltið byrjar kannski við eldhúsborðið! Birta Róbertsdóttir Skoðun Þegar veikindaleyfi verður að fríi Gunnar Ármannsson Skoðun Icelandair undir verndarvæng ríkisins Kjartan Björgvinsson Skoðun Ég hata þessa manneskju út af lífinu! Hermann Stefánsson Skoðun Hvað kostar samfélag? Orri Jónsson Skoðun Hvaða skilaboð erum við að senda framtíðarkennurum? Eyrún Ósk Hjartardóttir Skoðun Forsætisráðherra endurskrifar söguna og snýr staðreyndum á hvolf Pétur Óskarsson Skoðun Útsæði á diskinn minn! Guðmundur Finnbogason Skoðun Draumsýn menntamála Álfhildur Leifsdóttir ,Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir Skoðun Er norræna módelið refsilaust fyrir seljendur vændis á Íslandi? Ari Logn,Renata Arnórsdóttir,Brynhildur Ragnarsdóttir,Guðný Þorsteinsdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Ert þú gervigreindarsóði? Marín Jónsdóttir skrifar Skoðun Smjörklípa Þorgerðar Hjörvar Sigurðsson skrifar Skoðun Þegar undantekningarnar verða að stefnu Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Foreldraupplifun Sólný Pálsdóttir skrifar Skoðun Til varnar tímanum Eva Harðardóttir,Katrín Ólína Pétursdóttir skrifar Skoðun Forsætisráðherra endurskrifar söguna og snýr staðreyndum á hvolf Pétur Óskarsson skrifar Skoðun Það á að vera gott að eldast á Íslandi Ólafur Þór Gunnarsson,Regína Ásvaldsdóttir skrifar Skoðun Hver reiknar raunverulegan kostnað hagræðingar? Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Einkunnakvarði er ekki námsmat! Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar Skoðun Áframhaldandi skilningsleysi nýliða Kristín Helga Schiöth skrifar Skoðun Gervigreindin getur séð allt. En hver getur séð það sem hún sér? Júlíus Einar Júlíusson skrifar Skoðun Er að eignast barn samfélagsleg busun? Stefnir Húni Kristjánsson skrifar Skoðun Jöfn laun eiga ekki að ráðast af tilviljun Kolbrún Halldórsdóttir skrifar Skoðun Bannað að plata Ágúst Elvar Bjarnason skrifar Skoðun Kvennaknattspyrnan á Íslandi – á meðan Evrópa sækir fram stöndum við í stað Ólafur Thorarensen skrifar Skoðun Látum Loftbrúna vera Sindri S. Kristjánsson skrifar Skoðun Öryggi í umferð framtíðarinnar Jón Gunnar Jónsson skrifar Skoðun „Við“ skiptaráð Dofri Hermannsson skrifar Skoðun Bláskógaskatturinn hefur áhrif víða Sveinn Ægir Birgisson skrifar Skoðun Skrýtnir útreikningar og fjármálalæsi Ásgeir Daníelsson skrifar Skoðun Er mynstrið þitt nægilega djúpt? Ágúst Mogensen skrifar Skoðun Geimvera lendir á Íslandi Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Tvískinnungur ættjarðarástar Gunnlaugur Stefánsson skrifar Skoðun Íslenska Z-kynslóðin hefur hægt um sig Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Ég hata þessa manneskju út af lífinu! Hermann Stefánsson skrifar Skoðun Bandaríkin kjósa – en hver hefur eftirlit með forsetanum? Baldur Johnsen skrifar Skoðun Er norræna módelið refsilaust fyrir seljendur vændis á Íslandi? Ari Logn,Renata Arnórsdóttir,Brynhildur Ragnarsdóttir,Guðný Þorsteinsdóttir skrifar Skoðun Icelandair undir verndarvæng ríkisins Kjartan Björgvinsson skrifar Skoðun Útsæði á diskinn minn! Guðmundur Finnbogason skrifar Skoðun Heimili á hjólum er líka heimili Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir skrifar Sjá meira
„
Er norræna módelið refsilaust fyrir seljendur vændis á Íslandi? Ari Logn,Renata Arnórsdóttir,Brynhildur Ragnarsdóttir,Guðný Þorsteinsdóttir Skoðun
Skoðun Gervigreindin getur séð allt. En hver getur séð það sem hún sér? Júlíus Einar Júlíusson skrifar
Skoðun Kvennaknattspyrnan á Íslandi – á meðan Evrópa sækir fram stöndum við í stað Ólafur Thorarensen skrifar
Skoðun Er norræna módelið refsilaust fyrir seljendur vændis á Íslandi? Ari Logn,Renata Arnórsdóttir,Brynhildur Ragnarsdóttir,Guðný Þorsteinsdóttir skrifar
Er norræna módelið refsilaust fyrir seljendur vændis á Íslandi? Ari Logn,Renata Arnórsdóttir,Brynhildur Ragnarsdóttir,Guðný Þorsteinsdóttir Skoðun