Tröllin eru að koma Björg Eva Erlendsdóttir skrifar 10. júní 2026 07:02 Fyrsta vindorkuverið á Íslandi rís nú við Vaðöldu ofan Búrfells. Þar eiga 28 risavaxnar vindtúrbínur að snúast og framleiða rafmagn sem gæti nægt 40 prósentum þjóðarinnar til almennrar notkunar. Tvö ferlíki hið minnsta hafa verið reist þegar þetta er skrifað. Vindorkuverinu við Vaðöldu fylgja einir umfangsmestu þungaflutningar í sögu landsins, með flutningi spaða og annarra hluta mannvirkjanna frá Þorlákshöfn upp fyrir Búrfell. Leiðin er ekki sú versta á landinu, vegir nokkuð beinir og á flatlendi að stórum hluta. Svæðið er hvorki gróðurríkt né ósnortið. En þetta er hluti af hálendinu og leiðin upp á Sprengisand, stærstu ósnortnu víðerni Evrópu, sem okkur ber skylda til að verja. Vaðölduver er á aflsvæði Þjórsár þar sem fyrir eru sjö vatnsaflsstöðvar og miklu meira stendur til. Hamfarasvæði heimsótt Landvernd fór þarna um nýlega, með norskum náttúruverndarsamtökum, sem fannst hásléttan þar sem vindmöstrin rísa illa komin og verulega röskuð af skurðum og raflínum. Kurteisir gestirnir sögðu fátt en úr svip þeirra mátti lesa að þeir sáu enga náttúruperlu heldur sorglegt svæði. Sléttan milli Þjórsárbrúar og hálendismiðstöðvarinnar í Hrauneyjum var líka orðin þannig að hún minnti meira á stríðshrjáða jörð en íslenskt hálendi, þennan sólríka og þurra vordag. Risastórar þungavinnuvélar í rykmekki hvert sem litið var, vegarslóðar, malarhaugar, skurðir, skúrar, steypa, kranar, gryfjur og hávaði. „Staff only“, sögðu skiltin. Og „öll umferð bönnuð“ á þessu stóra hernumda svæði. Eftir smá borgaralega óhlýðni og rannsóknir inni á bannsvæðinu, kom snaggaralegur verkstjóri á Teslu og flutti óboðnu náttúruverndargestina út af athafnasvæðinu og sleppti þeim út á holóttan og illa farinn Sprengisandsveginn, strangur á svip. Í þessari þjóðlendu eigum við engan rétt lengur, aðkomufólk er óvelkomið á stóru landflæmi en vindtúrbínubreiðan mun ná yfir 17 ferkílómetra og sjást úr öllum áttum og úr órafjarlægð. Við sem förum Sprengisand við hvert tækifæri til að njóta víðerna, kyrrðar og endalauss útsýnis syrgjum horfna tíð. Við þekkjum svæðið sem anddyri hálendisins og alvöru víðerni. Við höfum komið í Veiðivötn, Langasjó, á Þóristind og dýrkum útsýnið af fjöllum í átt til Heklu, Sandafells, Búrfells, Löðmundar og áfram má telja. Við áttum okkur á því að víðernatilfinningin er á hverfanda hveli. Hálendiskyrrðin er rofin. „Þetta verður vígalegt þegar allt er komið.“ sagði vegfarandi sem velti fyrir sér hvort það þyrfti að tvöfalda línulagnirnar fyrir orkuna, niður sveitirnar þar sem stórvirkar þungavélar rótast nú um í farvegi Þjórsár til að undirbúa Hvammsvirkjun. Tækifærin eru óþrjótandi en náttúran ekki En hvað svo? 43 vindorkuver til viðbótar eru í kortunum. Mörg hundruð vindtúrbínur með þungaflutningavegum þvers og kruss. Víðsvegar um landið, á svæði hafarna, á gróðursælum heiðarlöndum og mýrlendi. Votlendi sem við segjumst reyndar ætla að endurheimta. 43 heiðar og fjöll eyðilögð og breytt í álíka hamfarasvæði og Vaðalda er nú. Útsýni spillt í öllum landshlutum og fleiri víðerni fá túrbínusýn, ljósmengun, hávaða og jarðrask. Vindorkuverið við Vaðöldu hét einu sinni Búrfellslundur og átti að vera miklu stærra og breiða úr sér á svæði sem kallast Hafið og eru víðfeðm öræfi með mikilli fjallasýn. Dregið var úr áformunum og möstrum fækkað verulega í kjölfar vel rökstuddra athugasemda og umsagna, meðal annars frá Landvernd. Orkuákafinn var heldur minni þegar þetta var. Nú er hann taumlaus og endalaus. Varla fyrirfinnst sú virkjanahugmynd sem stjórnvöldum þykir ástæða til að fetta fingur út í. Þau 28 vindorkuskrímsl (hæðarmæling tvær Hallgrímskirkjur) sem rísa við Vaðöldu í sumar og á næsta ári, eiga að framleiða orku sem gæti nægt öllum heimilum á landsbyggðinni. Hvernig má þá vera að okkur vanti hundrað eða þúsund vindtúrbínur til viðbótar um allt land? Ef marka má reynslu annarra landa þurfa erlend gagnaver mjög mikla orku núna. Landsvirkjun tjáir sig óljóst um þörfina: .... innlend orkuskipti, framþróun núverandi viðskiptavina, tækifæri í stafrænni vegferð, nýsköpun og fjölnýtingu. Þannig vill Landsvirkjun forgangsraða, enda eftirspurn meiri en framboð. Vindorkuver í hverja sveit Svar Landsvirkjunar við spurningum um í hvað orkan eigi að fara, er ekki um forgangsröðun, nema þá að allt sem selst eigi að vera í forgangi. Stafræn vegferð, þýðir líklega gagnaver, en þau eru einmitt sérstaklega mikil ógn við náttúruna, eins og dæmin sanna í nágrannalöndum. Orðið græðgi kemur sífellt oftar fram í tali almennings í landinu þegar orkumálin eru rædd. Þeir eru þó til enn sem trúa á takmarkalausa auðlindanýtingu til hagvaxtar. Ástæða er til að spyrja um hversu langt á að ganga. Það tók ekki nema eina viku að reisa risavindtúrbínu númer tvö við Vaðöldu, Með þeim ofsa sem nú ríkir, gæti tekið stuttan tíma að gjörbreyta ásýnd Íslands alls. Ættum við kannski að reisa 300 vindmöstur í viðbót ofan við Búrfell? Er þetta hálendissvæði gjöreyðilagt og vitum við til hvers? Er eina friðlandið sem hægt er að tala um upp með Þjórsá úr því sem komið er, þjóðgarður fyrir jarðrask, vörubíla, skurðgröfumenningu, skammsýni og byggingarkrana? Á að ráðast samtímis á Grjótháls, Garpsdal, Laxárdalsheiði, Langanes osrfv... og virkja í blindni út um allt á næstu tíu árum? Eigum við að leggja nýja þungaflutningavegi í öllum landshlutum, reisa margar virkjanir í einu? Og hafa náttúru Íslands alla á útsölu til að friðþægja fjárþyrstar sveitarstjórnir og stórfyrirtæki með óljóst eignarhald? Má ræða forgangsröðun? Og má ræða verndun náttúru yfirleitt? Eða eigum við fyrst og fremst að hafa plan sem leyfir kjörnum fulltrúum að gefa auðlindir þjóðarinnar þeim sem heimta með þjósti og garga hæst um mikinn hagvöxt til skamms tíma? Spurningarnar eru margar og það er stjórnvalda að svara þeim. Höfundur er framkvæmdastjóri Landverndar. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Björg Eva Erlendsdóttir Umhverfismál Vindorka Vindorkuver við Vaðöldu Mest lesið Gervigreind, til góðs?Gervigreind, til góðs? Ketill Berg Magnússon Skoðun Ert þú gervigreindarsóði? Marín Jónsdóttir Skoðun Ég hata þessa manneskju út af lífinu! Hermann Stefánsson Skoðun Kvennaknattspyrnan á Íslandi – á meðan Evrópa sækir fram stöndum við í stað Ólafur Thorarensen Skoðun Til varnar tímanum Eva Harðardóttir,Katrín Ólína Pétursdóttir Skoðun Icelandair undir verndarvæng ríkisins Kjartan Björgvinsson Skoðun Foreldraupplifun Sólný Pálsdóttir Skoðun Hvað kostar samfélag? Orri Jónsson Skoðun „Við“ skiptaráð Dofri Hermannsson Skoðun Útsæði á diskinn minn! Guðmundur Finnbogason Skoðun Skoðun Skoðun Gervigreind, til góðs?Gervigreind, til góðs? Ketill Berg Magnússon skrifar Skoðun Ert þú gervigreindarsóði? Marín Jónsdóttir skrifar Skoðun Smjörklípa Þorgerðar Hjörvar Sigurðsson skrifar Skoðun Þegar undantekningarnar verða að stefnu Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Foreldraupplifun Sólný Pálsdóttir skrifar Skoðun Til varnar tímanum Eva Harðardóttir,Katrín Ólína Pétursdóttir skrifar Skoðun Forsætisráðherra endurskrifar söguna og snýr staðreyndum á hvolf Pétur Óskarsson skrifar Skoðun Það á að vera gott að eldast á Íslandi Ólafur Þór Gunnarsson,Regína Ásvaldsdóttir skrifar Skoðun Hver reiknar raunverulegan kostnað hagræðingar? Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Einkunnakvarði er ekki námsmat! Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar Skoðun Áframhaldandi skilningsleysi nýliða Kristín Helga Schiöth skrifar Skoðun Gervigreindin getur séð allt. En hver getur séð það sem hún sér? Júlíus Einar Júlíusson skrifar Skoðun Er að eignast barn samfélagsleg busun? Stefnir Húni Kristjánsson skrifar Skoðun Jöfn laun eiga ekki að ráðast af tilviljun Kolbrún Halldórsdóttir skrifar Skoðun Bannað að plata Ágúst Elvar Bjarnason skrifar Skoðun Kvennaknattspyrnan á Íslandi – á meðan Evrópa sækir fram stöndum við í stað Ólafur Thorarensen skrifar Skoðun Látum Loftbrúna vera Sindri S. Kristjánsson skrifar Skoðun Öryggi í umferð framtíðarinnar Jón Gunnar Jónsson skrifar Skoðun „Við“ skiptaráð Dofri Hermannsson skrifar Skoðun Bláskógaskatturinn hefur áhrif víða Sveinn Ægir Birgisson skrifar Skoðun Skrýtnir útreikningar og fjármálalæsi Ásgeir Daníelsson skrifar Skoðun Er mynstrið þitt nægilega djúpt? Ágúst Mogensen skrifar Skoðun Geimvera lendir á Íslandi Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Tvískinnungur ættjarðarástar Gunnlaugur Stefánsson skrifar Skoðun Íslenska Z-kynslóðin hefur hægt um sig Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Ég hata þessa manneskju út af lífinu! Hermann Stefánsson skrifar Skoðun Bandaríkin kjósa – en hver hefur eftirlit með forsetanum? Baldur Johnsen skrifar Skoðun Er norræna módelið refsilaust fyrir seljendur vændis á Íslandi? Ari Logn,Renata Arnórsdóttir,Brynhildur Ragnarsdóttir,Guðný Þorsteinsdóttir skrifar Skoðun Icelandair undir verndarvæng ríkisins Kjartan Björgvinsson skrifar Skoðun Útsæði á diskinn minn! Guðmundur Finnbogason skrifar Sjá meira
Kvennaknattspyrnan á Íslandi – á meðan Evrópa sækir fram stöndum við í stað Ólafur Thorarensen Skoðun
Skoðun Gervigreindin getur séð allt. En hver getur séð það sem hún sér? Júlíus Einar Júlíusson skrifar
Skoðun Kvennaknattspyrnan á Íslandi – á meðan Evrópa sækir fram stöndum við í stað Ólafur Thorarensen skrifar
Skoðun Er norræna módelið refsilaust fyrir seljendur vændis á Íslandi? Ari Logn,Renata Arnórsdóttir,Brynhildur Ragnarsdóttir,Guðný Þorsteinsdóttir skrifar
Kvennaknattspyrnan á Íslandi – á meðan Evrópa sækir fram stöndum við í stað Ólafur Thorarensen Skoðun