Íranir skjóta á Ísrael Agnar Már Másson skrifar 7. júní 2026 19:23 Ísraelska loftvarnarkerfið skaut niður fjölda loftskeyta yfir Ísrael í kvöld. Þessi mynd var tekin í Hadera í norðanverðu landinu. AP Íranir gerðu í kvöld loftárás á Ísrael í kjölfar þess að Ísraelsmenn gerðu árásir í höfuðborg Líbanon fyrr í dag þrátt fyrir að vopnahlé eigi að vera í gildi þar. Þetta er fyrsta árás Írana á Ísrael í tæpan mánuð. Ísraelsmenn heita hefndum.
Frá þessu greinir Times of Israel en Ísraelsher greindi einnig frá þessu í yfirlýsingu um klukkan 19 að íslenskum tíma. Herinn segist hafa skotið niður allar skotflaugarnar í fyrstu bylgju árásanna, en fleiri eldflaugar séu á leiðinni. Fyrr í dag hafði ísraelski herinn sagst vera að búa sig undir eldflaugaárás frá Íran á komandi klukkustundum, í kjölfar árásar sem Ísraelsmenn höfðu gert í líbönsku höfuðborginni Beirút fyrr í dag. Muni ekki umbera brot á vopnahléi Times of Israel skrifa nú að loftvarnarsírenur ómi víða um Ísrael. Þar segir að engar fregnir hafi borist af mannsfalli eða áverkum á fólki vegna árásanna. Þetta er fyrsta árás Írana á Ísrael frá því að vopnahlé tók gildi 10. apríl. Íranski byltingarvörðurinn hefur birt yfirlýsingu þar sem fram kemur að ef Ísraelar hætti ekki að ráðast á Líbanon, muni þeir gera stærri áras. Mohzen Rzaee, fyrrverandi yfirmaður byltingarvarðarins og ráðgjafi æðstaklerksins, skrifar á X að Íranir hafi ítrekað lýst því yfir að þeir myndu ekki umbera brot á vopnahléi eða árásir á Líbanon. „Í kvöld fengu árásaraðilarnir sitt svar. Þetta er viðvörun til þeirra um að hætta sínum illgjörðum; sérhver ný aðgerð mun mæta harðari viðbrögðum og meiri kostnaði,“ skrifar hann. Þetta myndband sem var tekið í íran sýnir eldflaugum skotið að Ísrael. Multiple Iranian ballistic missiles seen flying outbound from Central Iran towards Israel tonight. pic.twitter.com/RynlJ04Qec— OSINTtechnical (@Osinttechnical) June 7, 2026 Íranska höfuðborgin „mun brenna“ Ísraelsmenn heita hefndum. „Í kvöld mun Teheran brenna,“ skrifar Ben-Gvir, þjóðaröryggisráðherra Ísraels, á X og vísar þar til höfuðborgar Írans. Á miðvikudag höfðu borist af því fréttir að stjórnvöld í Ísrael og Líbanon hefðu samþykkt að koma á vopnahléi í nokkrum viðræðulotum. Samkvæmt fyrsta samkomulagi þurfti Hezbollah, sem stýrir stórum hluta Suður-Líbanons, að hætta öllum árásum á Ísrael og flytja alla liðsmenn sína frá suðurhluta Líbanons. Þessu höfnuðu Hezbollah. Trump: Ekki sáttur við árás Ísraels í Beirút Trey Yingst, blaðamaður Fox News í Ísrael, kveðst hafa rætt við Donald Trump Bandaríkjaforseta um árásir Írana á Ísrael, en einnig árásir Ísraelsmanna á Beirút. Donald Trump Bandaríkjaforseti og Benjamín Netanjahú, forsætisráðherra Ísraels.Getty Haft er eftir Trump að árásirnar eigi ekki eftir að hjálpa við friðarviðræður. „Það sem ég myndi leggja til við Íran: Þið eruð búnir að skjóta ykkar eldflaugum. Þetta er nóg. Komið aftur að borðinu og semjið,“ mun Trump hafa sagt. Spurður út í árásir Ísraels á Líbanon mun svaraði Trump: „Ég er ekki ánægður með það.“ Fréttin hefur verið uppfærð.
Íran Ísrael Árásir Bandaríkjanna og Ísraels á Íran Mest lesið Vance ætlar ekki að horfa á aftökuna í beinni Erlent „Við erum næstum að kæfa framhaldsskólastigið“ Fréttir Segjast geta hafið framkvæmdir á morgun Innlent Skrúðgangan bönnuð eftir tveggja vikna pattstöðu Erlent Trump samdi við Pútín um dísel Erlent Seldu óvart hjól viðskiptavinar Innlent Þingmenn laumuðust í laugina eftir lokun Innlent Sigurveig I. Jónsdóttir er látin Innlent Keyrði á og flúði en skildi númeraplötu eftir Innlent Óskar svara eftir að faðir missti dóttur sína erlendis Innlent Fleiri fréttir Vance ætlar ekki að horfa á aftökuna í beinni Skrúðgangan bönnuð eftir tveggja vikna pattstöðu Trump samdi við Pútín um dísel Vance biðlar til ungra reiðra manna Ætla að „binda enda“ á stríðsglæpadómstól Skólum lokað eftir árásir og tíu handteknir vegna hótana Helsti herbloggari Rússlands handtekinn í Svartfjallalandi Fjárfesti í SpaceX og hóf svo átak sem gæti hagnast fyrirtækinu Navanethem Pillay hlaut friðarverðlaun Nóbels Bein útsending: Hver hlýtur friðarverðlaun Nóbels? Yfir sjötíu þúsund mótmæltu þrátt fyrir umbótatillögur Veðmál á sigur Navalnaju hrúgast inn Maður skotinn af fulltrúum ICE í New York Nærri því áttatíu borgarar liggja í valnum Ætla að streyma aftöku í beinni Vonar að Ísraelar hafni Netanjahú Tveir Lettar handteknir á breskri herstöð í nótt Máttu ekki leita hjá fyrrverandi prinsi vegna Epstein-tengsla Breskur hermaður ákærður fyrir njósnir Hættu við að ræða upplýsingafals undir þrýstingi frá Bandaríkjastjórn Segir í tísku að setja alþjóðasamfélagið ofar eigin þjóð Konan sem var borin út er látin Margaret Hamilton er látin Eritrea skiptir um lið og sendir hermenn inn í Tigray Segist geta gert Biden, Obama og Clinton „mjög slæma hluti“ Fangaði sólarupprás á Mars Fátt um svör frá Rússum um meinta plágu Kona stungin til bana við matvöruverslun í Malmö Bandarískir hermenn í útgöngubanni eftir morð Fjögur börn meðal nítján látinna í árásum á afmælisdegi Pútíns Sjá meira