Tíu ára forritari upplýsir um markaðsvirði pókémonspila Elísabet Inga Sigurðardóttir skrifar 2. júní 2026 20:02 Alexander Jósafat Hinriksson forritaði síðuna. vísir/sigurjón Næst hittum við tíu ára strák sem forritaði vefsíðu þar sem finna má upplýsingar um markaðsvirði pókémonspila. Hann segir mjög erfitt að forrita en dýrmætt að vita hvers virði spilin eru og hvetur börn til að prufa forritun.
Frumkvöðullinn ungi heitir Alexander Jósafat Hinriksson og segir ástæðu þess að hann ákvað að forrita vefsíðuna einfalda: „Ég elska pókémon og svo ákvað ég að gera pókemonforrit því mér finnst smá gaman að gera forrit, þannig ég ákvað að gera pókémon forrit.“ Hvað gerir maður þegar maður er tíu ára og vill forrita, hvernig fer maður að því? „Maður byrjar að skrifa á blað allt sem maður vill að forritið geti gert og svo gerir maður með gervigreindinni eitt í einu.“ Hann segir forritun ekki auðvelda en fékk dygga aðstoð frá föður sínum, Hinriki Jósafat Atlasyni, frumkvöðli. Vinna tók töluverðan tíma en afurðin er Trademon.tec. Þar geta notendur skráð spilin sín, athugað virði þeirra og boðið vinum að bítta spilum. Rætt var við Hinrik á Vísi um helgina. Þar greidi hann meðal annars frá því að þeir feðgar væru nýkomnir heim af nýsköpunarviðburði sem haldinn var í Neskaupstað. Þar kynnti Alexander nýju vefsíðuna sína. Áhersla á öryggi barna „Hér er ég búin að senda Lamoc vinabeiðni og hér eru allir vinir mínir,“ sýnir Alexander fréttamanni. Hugsað er fyrir öryggismálum á síðunni. Engar myndsendingar eru heimilar, ekkert spjall er í boði og hafa feðgarnir tryggt að ókunnugir finni ekki börn á síðunni. Þá geta börn einungis skipt spilum við raunverulega vini sína og er kóði sem tryggir að aðrir geti ekki haft samband. Hér má sjá vefsíðuna.vísir/sigurjón Alexander hefur verið duglegur að safna spilum í gegnum tíðina. „Ég á 178 kort en fleiri heima sem eru ekki á síðunni. Og þau eru öll virði 1526 dollara.“
Börn og uppeldi Nýsköpun Krakkar Tækni Bíó og sjónvarp Leikjavísir Tengdar fréttir Seldi Pokémon-spjald á yfir tvo milljarða Logan Paul, glímukappi og YouTube-stjarna, seldi Pokémon-spjald fyrir rúma tvo milljarða íslenskra króna. Aldrei áður hefur Pokémon-spjald selst fyrir svo háa upphæð. 17. febrúar 2026 00:04 Dýrasta spilið kostar 140 þúsund krónur Eina Pokémon-verslun landsins hefur stækkað við sig vegna mikillar velgengni. Stök spil geta kostað tugi þúsunda króna en eigendurnir segja viðtökurnar hafa farið fram úr þeirra björtustu vonum. 25. febrúar 2024 21:52 Mest lesið Ný streymisveita verði heimili íslenskrar framleiðslu Neytendur Nágrannaerjur, „Not President“ og Íslandsmet í að ganga í humátt Atvinnulíf Ragnar Jónasson til liðs við Logos Viðskipti innlent Öll tilboð yfir kostnaðaráætlun Viðskipti innlent Hlaðvarparar segja fjölmiðlanefnd stunda glassúrgerð Viðskipti innlent Íslandsbanki varar við svikasímtölum Viðskipti innlent Adidas í mál vegna fjögurra randa hönnunar Viðskipti erlent Ráðinn framkvæmdastjóri rekstrar hjá Keahótelum Viðskipti innlent Húsleit hjá Ölgerðinni Viðskipti innlent Fjárhagsáhyggjur starfsfólks tvöfaldar: Vinnan og heima Atvinnulíf Fleiri fréttir Ragnar Jónasson til liðs við Logos Hlaðvarparar segja fjölmiðlanefnd stunda glassúrgerð Íslandsbanki varar við svikasímtölum Öll tilboð yfir kostnaðaráætlun Húsleit hjá Ölgerðinni Ráðinn framkvæmdastjóri rekstrar hjá Keahótelum Hafi ekki sérhagsmuni að leiðarljósi um skráningarskyldu fjölmiðla Skims opnar í Kringlunni Aukin skattheimta og aukin samkeppni í boði ríkisins Nýir veitingastaðir opnaðir á Hilton Reykjavík og Hótel Reykjavík Öskju Uggandi yfir afstöðu VR Bein útsending: Rökstyðja stýrivaxtaákvörðun sína Stýrivextir áfram átta prósent Sonur Kristjáns í hans stað á hvalveiðiráðstefnu Vill að þak verði sett á álagningu olíufélaga Eru ríkisskuldabréfasjóðir öruggir? Tæplega þrjátíu sagt upp Ákveða í kvöld hvort kjarasamningum verði sagt upp Ráðinn sviðsstjóri og staðgengill forstjóra Fastus Ganga til sáttaviðræðna við Samkeppniseftirlitið Langþráður draumur að verða að veruleika í Kísildal Breytingar á vetraropnun miðstöðvarinnar í Kerlingarfjöllum kynntar Klíníkin sótti 300 milljónir króna 181 starfsmanni sagt upp í sex hópuppsögnum Enn eitt gjaldþrot Helga: Ekkert í boði í Veislunni Kaupir Malbiksstöðina á fimm milljarða Tuttugu sagt upp í fiskvinnslu í Reykjanesbæ Borga hálfan milljarð í viðbót fyrir indverskt félag „Hlutir sem við vorum ekki sammála um“ Hörður hættir sem forstjóri Landsvirkjunar Sjá meira
Seldi Pokémon-spjald á yfir tvo milljarða Logan Paul, glímukappi og YouTube-stjarna, seldi Pokémon-spjald fyrir rúma tvo milljarða íslenskra króna. Aldrei áður hefur Pokémon-spjald selst fyrir svo háa upphæð. 17. febrúar 2026 00:04
Dýrasta spilið kostar 140 þúsund krónur Eina Pokémon-verslun landsins hefur stækkað við sig vegna mikillar velgengni. Stök spil geta kostað tugi þúsunda króna en eigendurnir segja viðtökurnar hafa farið fram úr þeirra björtustu vonum. 25. febrúar 2024 21:52