Gera almenningssamgöngur ódýrari vegna olíukreppunnar Kjartan Kjartansson skrifar 26. maí 2026 13:21 Helmingi ódýrara verður að taka neðanjarðarlestina í Stokkhólmi og aðrar almenningssamgöngur í Svíþjóð fyrir mánaðarkortshafa með aðgerðum þarlendra stjórnvalda vegna olíukreppunnar. Vísir/Getty Mánaðarkort í almenningssamgöngur verður tímabundið helmingi ódýrara en áður um alla Svíþjóð með aðgerð sem sænska ríkisstjórnin kynnti í dag. Tilefnið er hækkandi olíuverð vegna hernaðarbrölts Bandaríkjamanna og Ísraela í Íran.
Gjaldskrárlækkunin verður í gildi frá 1. júlí til 31. desember. Ríkisstjórnin ætlar að verja 6,5 milljörðum sænskra króna, jafnvirði rúmra 86 milljarða íslenskra króna, til þess að bæta sveitarstjórnum tekjutapið. Verð á stökum miðum verður ekki niðurgreitt. Ulf Kristersson, forsætisráðherra, sagði aðgerðina beint viðbragð við olíukreppunni sem er tilkomin vegna lokunar Hormússunds. Írönsk stjórnvöld lokuðu sundinu, sem er ein helsta flutningsleið olíu í heiminum, eftir að Bandaríkjamenn og Ísraelar drápu leiðtoga landsins og gerðu harðar loftárásir í vor. „Jafnvel þó að stríðinu ljúki á morgun hefur það efnahagslegar afleiðingar út þetta ár,“ sagði Kristersson. Ríkisstjórn hans hafði þegar gripið til sértækra aðgerða til þess að lækka eldsneytisverð vegna kreppunnar. Íslensk stjórnvöld lækkuðu virðisaukaskatt á jarðefnaeldsneyti til þess að bregðast við verðhækkunum á olíu 1. maí. Aðgerðin gildir út ágúst en Kristrún Frostadóttir, forsætisráðherra, hefur ekki útilokað að hún verði framlengd. Ekki hefur verið gripið til neinna hvata til þess að almenningur noti almenningssamgöngur til þess að draga úr eftirspurn eftir olíu.
Svíþjóð Jarðefnaeldsneyti Íran Bandaríkin Árásir Bandaríkjanna og Ísraels á Íran Ísrael Mest lesið Aðstoðar tugi fórnarlamba Samúels á Spáni Innlent Braut reglur þegar hann minntist Steins Innlent Útför Steins Ármanns Innlent Jarðsyngur sinn besta vin Innlent Skera rúma fjóra milljarða af vegagerð Innlent Hafna tilboðum í rekstur skíðasvæðisins og sjá um það sjálf Innlent Fæddi barn utan við verslun Elko Innlent Samúel hafi sótt hart að fólki að greiða fyrir fram Innlent Daði segir eyðsluseggjum að hemja sig Innlent Rektorarnir svara fyrir sig Innlent Fleiri fréttir Miklar hækkanir á olíumörkuðum í dag Reyndi að vara við að flugvélin færi of hratt Tugir látnir í eldsvoða í flutningaskipi í Kína Boðar til skyndikosninga til að lægja öldurnar í Serbíu Ætli að gefa öllum þúsundir dollara ef repúblikanar sigra Játar aðild að einu stærsta Bitcoin-þjófnaðarmáli sögunnar Heitasta sumarið í Vestur-Evrópu Pakistanar sögðu klerkastjórninni að koma böndum á Húta Viðurkenndi efasemdir: „Ég ætla samt ekki að sýkna hana“ Selenskí kíkti á klakann Gaf Harp og tveimur öðrum ráðgjöfum milljónir í jólagjöf Leggur stefnu AfD að jöfnu við þjóðernishreinsanir Farage kemur frönskum skoðanabróður í klandur Banna breskum þingmönnum að koma til Ísraels Haraldur Noregskonungur borinn til grafar Rétta yfir rússneskum skipstjóra sem sleit sæstrengi við Finnland Leita enn að Renoir-þjófunum Bannar innflutning á kanadískum vörum Réðust á fleiri olíuflutningaskip Skutu tugum eldflauga og dróna að borgum Sádi-Arabíu Töluðu saman í klukkutíma Handtaka grunaðan spellvirkja í Þýskalandi Fordæma útförina sem „Slátrarinn“ fékk í Serbíu Grípa saman til aðgerða gegn ísraelskum landtökumönnum Allir þeir látnu í bílum sem flugvélin rann á Dýrmætum listaverkum stolið af safni Renoir Starfsmenn í verkfall eftir heimsókn trúarhóps Kim fjölgar herskipum sínum Fjárfesta í menntamálum, fjarskiptum og jarðmálmum á Grænlandi Klerkastjórnin missir tökin Sjá meira