„Þetta er okkar gjöf til ríkisstjórnarinnar“ Lovísa Arnardóttir skrifar 21. október 2026 20:03 Lilja vona að ríkisstjórnin geti nýtt sér reiknivélina. Vísir/Ívar Fannar Framsóknarflokkurinn opnaði í gær nýjan vef, utreikning.is, sem gerir almenningi kleift að skoða áætluð áhrif helstu breytinga í fjárlagafrumvarpinu 2027 á eigið heimili. Lilja D. Alfreðsdóttir formaður Framsóknar segir um nýsköpun í stjórnmálum að ræða og að útreikningarnir ættu að breyta því hvernig stjórnvöld vinna frumvarpið áfram.
Í tilkynningu um úrræðið segir að á vefnum geti fólk fengið sundurliðað mat á því hvernig breytingar á sköttum, gjöldum og stuðningi við heimilin geti haft áhrif á heimilisbókhaldið. „Útreikningurinn nær til allra helstu áhrifaþátta í rekstri heimilisins, svo sem fjölskyldustærðar og tekna, húsnæðislána, aksturs, fyrirhugaðra framkvæmda á húsnæði og afþreyingar. Reiknivélin sýnir áætluð áhrif þeirra þátta sem hún nær til, út frá heimilisstöðu og forsendum fjárlagafrumvarpsins,“ segir enn fremur. Í reiknivélinni er bæði hægt að setja inn sínar eigin forsendur en einnig hægt að skoða fyrir fram ákveðin dæmi frá Framsóknarflokknum, til dæmis ungt par, einstæða foreldra, tekjuhærri hjón og barnlausan og einhleypan leigjanda. Lilja segir í samtali við Vísi að Framsókn hafi miklar áhyggjur af því hvernig samanlögð áhrif skattahækkana, gjaldahækkana og skerðinga muni leggjast á heimilin. „Greining okkar á fjárlagafrumvarpi ríkisstjórnarinnar dregur fram að höggið verði hlutfallslega þyngst hjá tekjulægri heimilum, sem hafa minnst svigrúm til að mæta auknum útgjöldum og tekjumissi,“ segir hún. Vefsíðan lítur svona út. Framsóknarflokkurinn Spurð hvers vegna þau ákváðu að búa til sérstaka reiknivél segir Lilja ástæðuna að með niðurfellingu vaxtabóta, hækkun kílómetragjaldsins og rýrnun barnabóta hafi þau farið að gruna að það myndi hafa talsverð áhrif og útreikningarnir í reiknivélinni sýni það að heimilisreikningur fólks er líklega að hækka um hundruð þúsunda á næsta ári. Samkvæmt þeirra útreikningum þurfi laun að hækka um tugi þúsunda umfram almennar launahækkanir. Mest áhrif á þau tekjulægstu Munurinn sé mikill eftir því hverjir eru skoðaðir, hvað þeir eru með í laun og hversu mikið þeir skulda en það sem megi sjá er að þau sem tekjulægst eru og hafa reitt sig á vaxtabætur verði verst úti. Lilja segir að við því verði að bregðast. „Þeir finna verulega fyrir þessu sem hafa reitt sig á vaxtabætur. Þannig að lægstu tekjutíundirnar koma verst út úr þessu,“ segir hún og að það sem skipti mestu í útreikningunum sé að þörf fólks fyrir launahækkun, miðað við þessa útreikninga, fari alltaf yfir almennar launahækkanir á Íslandi. Hún óttast að þetta muni hafa þau áhrif að einkaneysla dragist enn frekar saman. „Hún hefur ekki verið lægri í þrjú ár. Mér finnst mjög líklegt að þetta muni hafa enn frekari áhrif,“ segir hún og að það komi mögulega ekki fram fyrr en í mars. Hún segir reiknivélina unna af starfsmanni þingflokksins í samvinnu við þingmennina og þau hafi sett inn allar helstu breytur heimilisreikningsins. Þetta sé nýsköpun og hún viðurkennir að í sinni ráðherratíð hafi henni ekki einu sinni dottið þetta í hug. Nú sé tækni, eins og gervigreind, sem geri þeim kleift að gera svona úrræði með auðveldari hætti. Hún segir reiknivélina ákall um aukið gagnsæi og að fólk geti áttað sig á því með auðveldari hætti hvaða áhrif fjárlögin hafi á sig persónulega. „Þetta er okkar gjöf til ríkisstjórnarinnar,“ segir hún. Pólítísk nýsköpun „Með þessu erum við að tengja saman þannig að fólk geti betur séð áhrifin á heimilið. Þetta er pólitísk nýsköpun og við erum búin að vanda okkur alveg gríðarlega við þetta.“ Hægt er að kynna sér útreikningana á vef hér en í tilkynningu kemur einnig fram að markmið vefsins sé að gera samspil skatta, gjalda og stuðnings við heimilin sýnilegra og auðvelda almenningi að taka þátt í umræðunni um fjárlög og lífskjör. „Margar breytingar sem virðast smávægilegar hver fyrir sig geta haft veruleg samanlögð áhrif.“
Framsóknarflokkurinn Fjárlagafrumvarp 2027 Mest lesið Herlið á leiðinni og Íslendingar hafi varann á Erlent „Þetta er algjörlega óviðunandi“ Innlent Telur allt ógirt land tekið eignarnámi með dómi Innlent Sláandi hversu margir telji ofbeldi hluta af kynlífi Innlent Hélt hún myndi deyja í útskriftarferð til Portúgal Innlent „Hvaða skaða hef ég valdið, Elliði?“ Innlent „Mjög óheillavænleg þróun“ Innlent Fá mál á þingi: „Fórnarlömb velgengni“ fá kaldar kveðjur frá Diljá Innlent „Nei, Pútín er harðsvíraður morðingi“ Erlent Töpuðu bardaganum, liðþjálfanum og prestinum Innlent Fleiri fréttir Aldursviðeigandi kynfræðsla þurfi að hefjast í leikskóla „Þetta er okkar gjöf til ríkisstjórnarinnar“ „Þetta er algjörlega óviðunandi“ Valgerður fer aftur frá SÁÁ Hefja snjóframleiðslu á næstu dögum Loka vefsíðum tímabundið í varúðarskyni Fá mál á þingi: „Fórnarlömb velgengni“ fá kaldar kveðjur frá Diljá Skorar á landlækni að leiðrétta rangfærslur Alvarlegur veikleiki hjá fjölda vefsíðna Sláandi hversu margir telji ofbeldi hluta af kynlífi Jón Gnarr lætur af varaformennsku og tveimur varasætum Myndasyrpa: Nýr skáli fluttur í Þórsmörk Klæmdist óvart við fjórtán ára og var sýknaður Stærsti dagurinn í dekkjaskiptum „Mjög óheillavænleg þróun“ Efast um að vilja Alþingis sé fylgt í jafnlaunamálum Birtingarmyndir kynferðisofbeldis gegn ungum konum að breytast Fimm ráðnir aftur eftir uppsagnirnar Vilja rannsaka vinnubrögð sérstaks saksóknara Hafi nauðgað meðvitundarlausri sambýliskonunni Atvinnuleysi dróst saman Töpuðu bardaganum, liðþjálfanum og prestinum Sífellt erfiðara fyrir mörg heimili að ná endum saman Hélt hún myndi deyja í útskriftarferð til Portúgal Skoða áætlunarsiglingar milli Skotlands og Íslands Telur allt ógirt land tekið eignarnámi með dómi Hvalfjarðargöng opin á nýjan leik Tvö á einu rafmagnshlaupahjóli og flutt á bráðamóttöku „Hvaða skaða hef ég valdið, Elliði?“ Segir lögreglumenn á Vestfjörðum áhyggjufulla Sjá meira