Sérsveitarmenn flugu til Ísafjarðar vegna vopnaðs manns Agnar Már Másson skrifar 23. maí 2026 14:43 Aðgerðin gekk vel að sögn yfirlögregluþjóns. Anton Brink Sérsveitarmenn flugu með þyrlu Landhelgisgæslunnar á Ísafjörð á fimmtudagskvöld til þess aðstoða lögregluna í útkalli vegna vopnaðs manns í andlegu ójafnvægi í heimahúsi. Aðgerðin gekk vel, að sögn yfirlögregluþjóns, sem bætir við að taka þurfi á geðheilbrigðismálum fastari tökum. Sérsveitarmenn voru fluttir með þyrlu Landhelgisgæslunnar aðfaranótt föstudags vegna útkalls lögreglunnar á Vestfjörðum, sem hafði borist tilkynning þess efnis að maður sem var í annarlegu ástandi og vopnaður eggvopni væri að hóta að vinna sér skaða. Í þessari grein er fjallað um sjálfsvíg. Fólki með sjálfsvígshugsanir er bent á upplýsingasíma heilsugæslunnar s.1700, netspjallið heilsuvera.is, Hjálparsíma Rauða krossins s.1717, á netspjallið 1717.is og á Píeta símann s.552-2218. „Það var einstaklingur sem var með hníf og markmiðið var náttúrulega að tryggja öryggi hans og annarra. Þetta snerist um það og við vildum fá aðstoð frá sérsveit til þess að tryggja ástandið,“ segir Hlynur Snorrason, yfirlögregluþjónn á Vestfjörðum. „En það tók okkur tvo tíma þar til sérsveitin var komin þannig að við þurftum að bregðast við með okkar viðbúnaði. Það fór bara vel. Við héldum ástandinu stöðugu þar til sérsveitin mætti.“ Hann segir að aðgerðin hafi gengið vel. Maðurinn, sem hafi verið um miðjan aldur, hafi handtekinn og fluttur í fangageymslu þar sem læknir hafi hlúð að honum, en hann hafði lítils háttar áverka. Þetta er í annað sinn í mánuðinum sem sérsveitarmenn hafa verið fluttir með þyrlu út á land vegna vopnaðs manns í andlegu ójafnvægi. Hinn 8. maí brást sérsveit við útkalli í Vestmannaeyjum þar sem maður vopnaður eggvopni var í annarlegu ástandi og með ógnandi tilburði. Spurður hvort honum þyki að lögreglan á Vestfjörðum þurfi frekari úrræði til að taka á slíkum málum svarar Hlynur: „Við reyndar fáum mjög sífellda þjálfun í viðbragði við vopnuðu útkalli þar sem einstaklingar eru með vopn [...] og erum vel í stakk búin til þess. En það er auðvitað stundum nauðsynlegt að tryggja sig enn betur með aðstoð sérsveitar. Þeir eru auðvitað með enn ítarlegri þjálfun,“ segir hann og heldur áfram: „Það sem ég vildi sjá eru meiri úrræði gagnvart fólki sem á við andlega vanheilsu að stríða, þannig að heilbrigðiskerfið sé betur í stakk búið til að takast á við andlega vanheilt fólk. Því að þetta er fyrst og fremst heilbrigðisverkefni, þau eru ekki minni veikindi heldur en líkamleg veikindi þannig að heilbrigðiskerfið verður að ná betur utan um það.“ Lögreglumál Geðheilbrigði Ísafjarðarbær Mest lesið Musk segi ósatt um Starlink Erlent Ekki sjálfsagt að bóka flug með löngum fyrirvara Innlent Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Erlent Bóndinn segist stoltur stunda blóðmerahald Innlent Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Erlent Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Erlent Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Erlent Svakaleg lægð í líkingu við metlægðina í síðustu viku nálgast landið Veður Telja brýnt að endurskoða fækkun lögregluembætta Innlent Vilja hækka samræðisaldur Innlent Fleiri fréttir Bóndinn segist stoltur stunda blóðmerahald Ekki sjálfsagt að bóka flug með löngum fyrirvara Glefsaði í vegfaranda við matvöruverslun Jólageitin risin Sjö þúsund krónur séu ekki nóg Landsbyggðin „brjáluð“ vegna málsins Leggjast gegn sameiningu lögregluembætta „Ég er bara svolítið sár“ „Landsbyggðin brjáluð“ og draugar í Laugardal Vilja hækka samræðisaldur Telja brýnt að endurskoða fækkun lögregluembætta Óljóst hvers vegna þeir hittust í „völundarhúsi“ bílastæðahússins „Góður rjúpnatúr snýst ekkert um veiða sem flestar rjúpur“ Sigmar snýr aftur Umferðarslys á Breiðholtsbrautinni Mátti reka mann sem hótaði að slíta af honum höfuðið Klukkuturninn snýr aftur á Hlemm „Við erum virkilega þreyttir“ Vill efla bókasöfnin með minni yfirbyggingu Hafa lagt sig fram við að eyða óvissunni Nú má heita eftir persónu í Hringadróttinssögu Beiðni skólastjóra kveikti hörð orðaskipti í Hafnarfirði Ráðast í úttekt eftir að starfsmaður lenti í alvarlegu vinnuslysi Ætla að blása til sóknar í bókasöfnum borgarinnar Þakið komið af tilvonandi höfuðstöðvum Nova Hörð andstaða íbúa við rekstur veislusalar Suðuviðgerð leiddi til lendingar á veginum Fresturinn liðinn en enn ósamið við flugvirkja Drógu vélarvana skútu til hafnar Telur dómarann vanhæfan vegna starfa í slitastjórn Sjá meira
Sérsveitarmenn voru fluttir með þyrlu Landhelgisgæslunnar aðfaranótt föstudags vegna útkalls lögreglunnar á Vestfjörðum, sem hafði borist tilkynning þess efnis að maður sem var í annarlegu ástandi og vopnaður eggvopni væri að hóta að vinna sér skaða. Í þessari grein er fjallað um sjálfsvíg. Fólki með sjálfsvígshugsanir er bent á upplýsingasíma heilsugæslunnar s.1700, netspjallið heilsuvera.is, Hjálparsíma Rauða krossins s.1717, á netspjallið 1717.is og á Píeta símann s.552-2218. „Það var einstaklingur sem var með hníf og markmiðið var náttúrulega að tryggja öryggi hans og annarra. Þetta snerist um það og við vildum fá aðstoð frá sérsveit til þess að tryggja ástandið,“ segir Hlynur Snorrason, yfirlögregluþjónn á Vestfjörðum. „En það tók okkur tvo tíma þar til sérsveitin var komin þannig að við þurftum að bregðast við með okkar viðbúnaði. Það fór bara vel. Við héldum ástandinu stöðugu þar til sérsveitin mætti.“ Hann segir að aðgerðin hafi gengið vel. Maðurinn, sem hafi verið um miðjan aldur, hafi handtekinn og fluttur í fangageymslu þar sem læknir hafi hlúð að honum, en hann hafði lítils háttar áverka. Þetta er í annað sinn í mánuðinum sem sérsveitarmenn hafa verið fluttir með þyrlu út á land vegna vopnaðs manns í andlegu ójafnvægi. Hinn 8. maí brást sérsveit við útkalli í Vestmannaeyjum þar sem maður vopnaður eggvopni var í annarlegu ástandi og með ógnandi tilburði. Spurður hvort honum þyki að lögreglan á Vestfjörðum þurfi frekari úrræði til að taka á slíkum málum svarar Hlynur: „Við reyndar fáum mjög sífellda þjálfun í viðbragði við vopnuðu útkalli þar sem einstaklingar eru með vopn [...] og erum vel í stakk búin til þess. En það er auðvitað stundum nauðsynlegt að tryggja sig enn betur með aðstoð sérsveitar. Þeir eru auðvitað með enn ítarlegri þjálfun,“ segir hann og heldur áfram: „Það sem ég vildi sjá eru meiri úrræði gagnvart fólki sem á við andlega vanheilsu að stríða, þannig að heilbrigðiskerfið sé betur í stakk búið til að takast á við andlega vanheilt fólk. Því að þetta er fyrst og fremst heilbrigðisverkefni, þau eru ekki minni veikindi heldur en líkamleg veikindi þannig að heilbrigðiskerfið verður að ná betur utan um það.“
Í þessari grein er fjallað um sjálfsvíg. Fólki með sjálfsvígshugsanir er bent á upplýsingasíma heilsugæslunnar s.1700, netspjallið heilsuvera.is, Hjálparsíma Rauða krossins s.1717, á netspjallið 1717.is og á Píeta símann s.552-2218.
Lögreglumál Geðheilbrigði Ísafjarðarbær Mest lesið Musk segi ósatt um Starlink Erlent Ekki sjálfsagt að bóka flug með löngum fyrirvara Innlent Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Erlent Bóndinn segist stoltur stunda blóðmerahald Innlent Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Erlent Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Erlent Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Erlent Svakaleg lægð í líkingu við metlægðina í síðustu viku nálgast landið Veður Telja brýnt að endurskoða fækkun lögregluembætta Innlent Vilja hækka samræðisaldur Innlent Fleiri fréttir Bóndinn segist stoltur stunda blóðmerahald Ekki sjálfsagt að bóka flug með löngum fyrirvara Glefsaði í vegfaranda við matvöruverslun Jólageitin risin Sjö þúsund krónur séu ekki nóg Landsbyggðin „brjáluð“ vegna málsins Leggjast gegn sameiningu lögregluembætta „Ég er bara svolítið sár“ „Landsbyggðin brjáluð“ og draugar í Laugardal Vilja hækka samræðisaldur Telja brýnt að endurskoða fækkun lögregluembætta Óljóst hvers vegna þeir hittust í „völundarhúsi“ bílastæðahússins „Góður rjúpnatúr snýst ekkert um veiða sem flestar rjúpur“ Sigmar snýr aftur Umferðarslys á Breiðholtsbrautinni Mátti reka mann sem hótaði að slíta af honum höfuðið Klukkuturninn snýr aftur á Hlemm „Við erum virkilega þreyttir“ Vill efla bókasöfnin með minni yfirbyggingu Hafa lagt sig fram við að eyða óvissunni Nú má heita eftir persónu í Hringadróttinssögu Beiðni skólastjóra kveikti hörð orðaskipti í Hafnarfirði Ráðast í úttekt eftir að starfsmaður lenti í alvarlegu vinnuslysi Ætla að blása til sóknar í bókasöfnum borgarinnar Þakið komið af tilvonandi höfuðstöðvum Nova Hörð andstaða íbúa við rekstur veislusalar Suðuviðgerð leiddi til lendingar á veginum Fresturinn liðinn en enn ósamið við flugvirkja Drógu vélarvana skútu til hafnar Telur dómarann vanhæfan vegna starfa í slitastjórn Sjá meira