Mætti brjálaður til leiks eftir að hafa misst af verðlaunum Valur Páll Eiríksson skrifar 19. maí 2026 09:32 Wembanyama var magnaður í sigri næturinnar. Alex Slitz/Getty Images San Antonio Spurs fagnaði sigri 122-115 eftir tvíframlengdan leik gegn Oklahoma City Thunder í fyrsta leik liðanna í úrslitum Vesturdeildar NBA-deildarinnar í körfubolta. Það á heimavelli síðarnefnda liðsins í Oklahoma.
Victor Wembanyama taldi sig verðugan verðlauna sem besti leikmaður tímabilsins (MVP) en horfði á Shai Gilgeous-Alexander, leikmann OKC, taka við verðlaununum fyrir leik næturinnar. Shai Gilgeous-Alexander hlaut Michael Jordan-verðlaunin, sem besti leikmaður deildarinnar, fyrir leik. Hann er að vinna verðlaunin annað árið í röð.Alex Slitz/Getty Images Það virðist hafa kveikt rækilega í Wembanyama sem skoraði 41 stig og tók 24 fráköst í sigri Spurs eftir æsispennandi leik. Hann er yngsti leikmaður í sögu NBA-deildarinnar (22 ára og 134 daga gamall) til að ná 40 stigum og 20 fráköstum í leik í úrslitakeppninni. Hann er þá fyrsti leikmaðurinn sem nær 40 stigum og 20 fráköstum í frumraun í úrslitaeinvígi um deildartitil frá því að Wilt Chamberlain afrekaði það árið 1960. Aðspurður hvort það hafi kveikt í honum að sjá Gilgeous-Alexander taka við verðlaununum fyrir leik sagði Wembanyama: „Já, klárlega.“ WEMBY WAS UNBELIEVABLE IN HIS WESTERN CONFERENCE FINALS DEBUT 🤯41 PTS (20 combined in 4Q, OT, and 2OT)24 REB (new postseason career-high)He becomes the youngest player in NBA history with 40+ PTS and 20+ REB in a postseason game, previously done by Kareem Abdul-Jabbar… pic.twitter.com/PFuPNxsrL6— NBA (@NBA) May 19, 2026 Mitch Johnson, þjálfari Spurs, segir það einnig hafa spilað inn í frammistöðu Wembanyama. „100 prósent. Hann er keppnismaður. Hann sá annan taka við verðlaunum sem hann átti sjálfur skilið.“ Gilgeous-Alexander skoraði 23 stig, gaf tólf stoðsendingar og stal boltanum fimm sinnum í leiknum. Hann var aftur á móti aðeins með skotnýtingu upp á rúm 30 prósent og átta af 24 stigum hans komu af vítalínunni. „Við þurfum að vera betri, þá sérstaklega ég,“ sagði Gilgeous-Alexander, sem er aðeins fjórtándi leikmaður í sögu NBA-deildarinnar til að vinna MVP-verðlaunin tvisvar í röð, eftir leik. „Ég þarf að vera betri, sérstaklega gegn liði með þessi gæði. Þetta er ekki flóknara en það,“ bætti hann við. Fyrsti leikur í úrslitaeinvígi Austurdeildarinnar fer fram í nótt, milli New York Knicks og Cleveland Cavaliers í Madison Square Garden. Spurs og Thunder eigast við annað kvöld, aftur í Oklahoma.
NBA Mest lesið Tuchel kallaði dómara fyrsta leiks Englendinga „E-flokks-dómara“ Fótbolti Klopp segir þá halda fótboltanum í gíslingu Fótbolti „Fyrirgefið okkur, vinsamlegast“ Fótbolti „Með mikið samviskubit gagnvart eiginkonu minni og dóttur“ Fótbolti Sýning Svía og Diallo hetja Fílanna Fótbolti Féll á lyfjaprófi við að reyna að verða ólétt Sport „Það sem hræðir mann er það sem er mest þess virði að gera“ Sport Ísak Bergmann trúlofaður Fótbolti „Ég ætla að halda mig til hlés“ Fótbolti Hulda Clara fagnaði sigrinum með því að hoppa út í vatnið Golf Fleiri fréttir Basile yfirgefur Stólana og semur við Álftanes Martin með mikilvæg stig í sigri Alba Berlin Meistari í fyrsta skipti í 53 ár Harden handtekinn fyrir ólöglegan vopnaburð Elvari og félögum sópað í sumarfrí Martin nálægt tvennunni en Alba Berlin tapaði fyrsta leiknum Jesús áfram í Stjörnunni Stuðningsmenn Knicks köstuðu eggi í Wembanyama Elvar og félagar fara 2-0 undir heim til Kanaríeyja Baldur tekur eina stærstu stjörnu Stjörnuliðsins yfir á Álftanes Stólarnir ráða Ísak Wíum Ármann fær sæti í Bónus deildinni og framlengir við Jónínu „Heimskasta körfuboltalið í sögu mannkyns“ Söguleg endurkoma Knicks LeBron James um „Geitina“ í NBA: Enginn betri en ég Wembanyama sleppur við refsingu Kolbrún snýr aftur heim og semur við Tindastól Steinar áfram hjá Ármanni Hamar og Þór hætta samstarfi Martin í úrvalsliðinu Martin spilar til úrslita um þýska meistaratitilinn Elvar og félagar lentu í gininu á Börsungum í kvöld „Ég hef alltaf komið sterkari til baka“ „Ég fer í góðu og þeir skilja mína ákvörðun“ KR blæs í herlúðra: Sara Rún og Emma Sóldís í Vesturbæinn Baulað á Trump í New York Spurs minnka muninn í úrslitaeinvíginu Þrefaldur NBA-meistari með Jordan látinn Ekkert teiti því Trump mætir á völlinn Martin á leið í oddaleik Sjá meira