Sjómenn á smábátum hafa verið saminingslausir í rúm 12 ár Finnbogi Vikar Guðmundsson skrifar 13. maí 2026 08:22 Tilgangur þessara greinaskrifa hjá mér er að varpa ljósi á slæma stöðu kjaramála sjómanna er vinna á smábátum eftir samningum við Landsamband smábátaeigenda (LS). Síðasti samningur sem LS gerði við stéttarfélög sjómanna var gerður 2012 og rann sitt skeið 2014, eða fyrir rúmum 12 árum síðan. Á undanförnum 12 árum hafa sjómenn er starfa á smábátum og þá mestmegnis við línuveiðar, netaveiðar og grásleppuveiðar á netum búið við það óboðlega ástand, að kjarasamningur þeirra er ekki bara úreltur, heldur líka stórtæk kjaraskerðing , sé tekið mið að kjarasamningi sjómanna á stærri fiskiskipum og ekki sé minnst ógrátandi á kjarsamninga almennra launþega í landinu. Landsamband smábátaeigenda hafa ekki verið tilbúnir í viðræður um endurnýjun kjarasamnings við sjómenn á smábátum, þar sem þeim hugnast ekki kröfur sinna sjómanna um að sitja við sama borð og aðrir launþegar í landinu þegar kemur að lífeyrisréttindum. Síðast þegar viðræður áttu sér stað um endurnýjun kjarasamnings, stigu fulltrúar LS upp frá borði og neituðu að ræða aukin lífeyrisréttindi til handa sjómönnum á smábátum, til jafns við aðra sjómenn á stærri fiskiskipum, sem og aðra launþega í landinu. Landsambandi smábátaeigenda hugnast heldur ekki að jafna kjör sjómanna á smábátum til jafns við sjómenn á stærri skipum þegar kemur að fæðisskostnaði og kostnaði vegna hlífðarfatnaðs. Því ber að halda til haga að í kjarasamningum sjómanna á stærri fiskiskipum er kostnaður vegna fæðis um borð (morgun-, hádegis-, kvöldmatar sem og snarls þar á milli auk kaffi) og kostnaður vegna hlífðarfatnaðs er greiddur af útgerðum stærri fiskiskipa, Hinsvegar fá sjómenn á smábátum 1.297 kr. fyrir hvern dag á sjó sem dugar fyrir hálfu hamborgaratilboði á Grill 66 hjá Olís eða kaffibolla og gömlu rúnstykki frá deginum áður ásamt smjöri úr Nettó. Hlífðarfatapeningurinn eru heilar 7.518 á mánuði sem dugar engan veginn fyrir kostnaði vegna hlífðarfatnaðar. Kostnaður á hvern sjómann á smábát nemur tugi þúsunda í hverjum mánuði vegna fæðiskostnaður sem er umfram núverandi og úreltra daglegra fæðispeninga, en sjómaður á stærra fiskiskipi fær fæðið sitt frítt frá útgerðinni. Kostnaður vegna hlífðarfata hjá sjómanni á smábát hleypur á tugum þúsunda á hverju ári sem er umfram mánaðarlegra hlífðarfatagreiðslna sbr. úreltum kjarasamningi sem rann sitt skeið fyrir rúmum 12 árum síðan. En hlífðarfötin fá sjómenn á stærri fiskiskipum afhent endurgjaldslaust. Ég vil því skora á Kjartan Pál Sveinsson, núverandi formanns Landsambands smábátaeigenda, hvort sem hann er staddur á strandveiðum fyrir vestan á A svæðinu eða heima hjá sér í Lundúnum á Englandi. Hann finni sér tíma til að staldra við í Reykjavík og semja fyrir hönd LS við stéttarfélög sjómanna um nýjan kjarasamning til handa sjómönnum sem starfa á smábátum. Samning sem leiðréttir kjör sjómanna á smábátum varðandi lífeyrissréttindi, fæðis- og hlífðarfatakostnaðs. Höfundur er búsettur í Langanesbyggð, sjómaður á smábátum (línu með beitningarvél, grásleppunetum og handfærum). Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Sjávarútvegur Kjaramál Mest lesið Ef Ísland gengur í Evrópusambandið flyt ég til Danmerkur Benedikt Jóhannesson Skoðun Skítamixsumarið mikla Hulda Hallgrímsdóttir Skoðun Gætum við haft það betra? Eydís Ásbjörnsdóttir Skoðun 30 dæmi um villandi framsetningu í efnahagsgreiningu Áfram Íslands Gauti B. Eggertsson Skoðun Þessir þröngsýnu ungu bændur Sunna Þórarinsdóttir Skoðun Ísland á eilífa hagsmuni en ekki eilífa bandamenn Lára Herborg Ólafsdóttir Skoðun Það eru breyttir tímar Þóroddur Ingvarsson Skoðun Samningaviðræður um Evrópusambandsaðild, já eða nei? Magnús Tumi Guðmundsson Skoðun Þarftu að vita mikið um ESB til að kjósa 29. ágúst? Árný Elínborg Ásgeirsdóttir Skoðun Já við fleiri verkfærum fyrir byggðir landsins Arna Lára Jónsdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Því er ekki betur vandað til verka? Fanný Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Hvaða samningsrammi gildir? Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Gullasninn Guðjón Þórir Sigfússon skrifar Skoðun Samningaviðræður um Evrópusambandsaðild, já eða nei? Magnús Tumi Guðmundsson skrifar Skoðun SFS, hagsmunir og sannleikurinn Þórólfur Matthíasson skrifar Skoðun Daði í baði Bjarnheiður Hallsdóttir skrifar Skoðun Hégómi Haukur Eggertsson skrifar Skoðun Við getum þetta sjálf – en hver græðir á því? Margrét Högnadóttir skrifar Skoðun Þarf fimm háskólagráður til að segja já? Berglind Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Já, já eða nei Þorsteinn Bergsson skrifar Skoðun Hvar má sleppa taumnum? Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Um sameiginleg verðmæti og veikleika stjórnkerfisins Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Nei við hindrunum - Ákvarðanir um Ísland á Íslandi Guðmundur Fertram Sigurjónsson skrifar Skoðun Ísland á eilífa hagsmuni en ekki eilífa bandamenn Lára Herborg Ólafsdóttir skrifar Skoðun Lífeyrissjóðirnir og aðalfundur Icelandair Kjartan Björgvinsson skrifar Skoðun Ísland og Færeyjar, yfirráð yfir auðlindum og fullveldi Ásgeir Daníelsson skrifar Skoðun Evrópskir hægrimenn eru Evrópusinnar Svavar Halldórsson skrifar Skoðun Evrópa - frá velferð til vígvæðingar Ólöf Benediktsdóttir skrifar Skoðun Ekki láta plata þig þann 29. ágúst Sveinn Atli Gunnarsson skrifar Skoðun Hver á fiskinn – og hvar verða verðmætin til? Baldur Johnsen skrifar Skoðun Gögnin sýna að Evrópa er langmikilvægasta markaðssvæði Íslands Gísli Hjálmtýsson skrifar Skoðun Grænland – áttu við Ísland? Damien Degeorges skrifar Skoðun Skítamixsumarið mikla Hulda Hallgrímsdóttir skrifar Skoðun Vextir, verðbólga, verðtrygging og íslenska veðráttan Árni Rúnar Þorvaldsson skrifar Skoðun 30 dæmi um villandi framsetningu í efnahagsgreiningu Áfram Íslands Gauti B. Eggertsson skrifar Skoðun Já til að sjá – áhættuspil? Guðmundur Edgarsson skrifar Skoðun Það eru breyttir tímar Þóroddur Ingvarsson skrifar Skoðun Er íslensk útgerð og kvótakerfi góð ástæða til að kjósa já 29. ágúst? Arndís Vala Arnfinnsdóttir skrifar Skoðun Ef Ísland gengur í Evrópusambandið flyt ég til Danmerkur Benedikt Jóhannesson skrifar Skoðun ESB hefur styrkt gróðahyggju á kostnað félagshyggju Ögmundur Jónasson skrifar Sjá meira
Skoðun 30 dæmi um villandi framsetningu í efnahagsgreiningu Áfram Íslands Gauti B. Eggertsson skrifar
Skoðun Er íslensk útgerð og kvótakerfi góð ástæða til að kjósa já 29. ágúst? Arndís Vala Arnfinnsdóttir skrifar