Látinn aðeins 29 ára Valur Páll Eiríksson skrifar 12. maí 2026 19:00 Clarke lést í dag þrátt fyrir ungan aldur. Dánarorsök hans eru óljós að svo stöddu. Lachlan Cunningham/Getty Images Brandon Clarke, leikmaður Memphis Grizzlies í NBA-deildinni í körfubolta, er látinn aðeins 29 ára að aldri. Dánarorsök liggur ekki fyrir.
Memphis Grizzlies tilkynntu um andlát Clarke í kvöld en orsök andláts fylgdi ekki sögunni. Í yfirlýsingu Memphis segir að mikil sorg sé vegna hörmulegs fráfalls Clarke. „Brandon var framúrskarandi liðsfélagi og enn betri manneskja sem hafði áhrif á félagið sem og samfélagið í Memphis,“ sagði liðið. Priority Sports, umboðsskrifstofa Clarke, sagði í yfirlýsingu að það væri „ómögulegt að lýsa með orðum hversu mikið hans verður saknað“. Clarke var tekinn inn í NBA-deildina af Oklahoma City Thunder í nýliðavalinu árið 2019 og var skipt til Memphis tveimur vikum síðar. Hann hefur spilað þar allan sinn feril í deildinni. Hann var öflugur á sínu fyrsta ári, var valinn í nýliðalið árins og fjórði í vali á nýliða ársins tímabilið 2019-20 sem var stytt vegna Covid-faraldursins. Hann var í kjölfarið sjötti maður Memphis, fyrsti maður inn af bekk, og lagði mikið á vogarskálarnar hjá liðinu. Hann skrifaði undir fjögurra ára 52 milljón dala samning við félagið árið 2022 en meiðsli hafa strítt honum síðan. Hann sleit hásin í mars 2023 og lék aðeins sex leiki tímabilið á eftir. Hann lék 64 leiki veturinn 2024 til 2025 en á yfirstandandi leiktíð tókst Clarke aðeins að spila tvö leiki vegna meiðsla í kálfa og hné.
NBA Andlát Mest lesið Knattspyrnukona drukknaði á leið í betra líf Fótbolti UEFA hótar FIFA með lögsókn Fótbolti Svona er hægt að koma Infantino frá völdum Fótbolti Mátti ekki klæða sig við hlið hinna leikmanna Man. Utd. Enski boltinn Donald Trump tók við verðlaunum sem klúbbmeistari á sínum eigin velli Golf Fundu hlauparann sem var týndur í 44 daga Sport Gaf puttann eftir að hafa skorað gegn Frey Fótbolti Fjögur mörk og meiðsli í slæmum seinni hálfleik gegn Leeds Fótbolti Leikmenn hafa neitað að koma til Juventus Fótbolti Klifraði upp í stúku og réðst á stuðningsmann eftir að hafa verið skipt af velli Fótbolti Fleiri fréttir Rebekka með 31 stig í góðum sigri á Portúgal NBA-stjarna skuldar Cam Newton 32 milljónir vegna vangreiddrar leigu Náðu ekki að halda í við heimaliðið í fyrsta leik EM Strákarnir spila um fimmtánda sætið Misstu Svisslendingana frá sér á hræðilegum lokamínútum LeBron framleiðir „Last Dance“ heimildarþætti Sakar leikmann um að halda framhjá sér með mörgum leikmönnum Milka farinn frá Njarðvík Birmingham stigahæstur í þriðja sigri strákanna KR heldur áfram að sækja leikmenn frá Lettlandi Martin áfram í Berlín Nýr leikmaður Tindastóls féll á lyfjaprófi þegar hann spilaði í G-deild NBA Keflvíkingar semja við Litáa og Stólarnir fá Bandaríkjamann Íslenska liðið með stórsigur á EM Vann þriggja stiga skotkeppni WNBA og skoraði á Curry Mirza Bulic yfirgefur Keflavík og semur við Grindavík Sonur Kristófers og Guðrúnar er bæði Acox og Guðjohnsen Trump kallar LeBron James kynþáttahatara Byrjuðu á nítján stiga sigri á Portúgölum LeBron hélt að hann væri búinn að spila sinn síðasta leik Lebron fer til Fíladelfíu Stephen Curry fær sögulega einkasýningu í heiðurshöllinni Hafa náð í leikmenn frá fjórum bestu liðunum KR sækir sænskan landsliðsmann Tékki til Njarðvíkur Miami Heat birti hlekk á blaðamannafund LeBron James fyrir mistök Semple bætist við stjörnum prýtt lið Álftaness Sigurinn á Bretum ýtti íslensku strákunum upp heimslista körfuboltans Strákarnir fengu silfur á EM Sigur á Svíum og sæti í A-deild tryggt Sjá meira