Skýjaborgir skólaforystunnar Andri Þorvarðarson skrifar 12. maí 2026 14:02 Ég átti nú alveg von á því að grein mín, Menntaforystan er að plata þig, myndi fá einhverja athygli en þau miklu og jákvæðu viðbrögð sem hún fékk, innan sem utan menntasamfélagsins, komu sannarlega á óvart. Þetta tel ég sýna hversu mikil þörf er á því að við tökum þessa umræðu, bæði um það sem má betur fara í skólakerfinu og hvernig menntaforystan hefur brugðist. En vitanlega voru líka deildar meiningar um ágæti greinarinnar. Nýverið skrifaði framhaldsskólakennarinn Ása Lind Finnbogadóttir skoðanagrein þar sem hún gagnrýndi málflutning minn. Ég tel ekki þörf á því að staldra of lengi við þessa grein, því megintilgangur hennar á að vera að koma Menntavísindasviði til varnar en Ása skautar fram hjá lykilatriðinu í gagnrýni minni á sviðið; að það hefur vanrækt skyldur sínar gagnvart kennaranemum með því að fjalla sem minnst um félagslega þátt kennarastarfsins, líkt og eineltisforvarnir. Á meðan þurfa nemarnir að hlusta linnulaust á sama fyrirlesturinn um hina fræðilegu hlið menntavísindanna. Einnig má bæta því við að kennaranemar hafa lengi barist fyrir því að fá meiri og betri fræðslu um hina félagslegu hlið starfsins, við dræmar undirtektir Menntavísindasviðs, auk þess sem nemendur sviðsins hafa harðlega gagnrýnt kennsluna þar á bæ. En grein Ásu er áhugaverð fyrir þær sakir að hún sýnir svart á hvítu það viljaleysi sem finna má hjá fámennum en háværum hópi innan menntasamfélagsins til að takast á við þann alvarlega vanda sem skólakerfið glímir við. Í huga þessa fólks þá jafngildir gagnrýni undirróðri. Þessi viðhorf má líka sjá í fjöltölvupósti sem Magnús Þór Jónsson formaður Kennarasambandsins sendi síðastliðinn föstudag til kennara landsins. Hann kippir sér væntanlega ekki upp við það að orð hans þar fái sem víðasta dreifingu. Í póstinum kom Magnús inn á umræðuna um skólamál, sem sé ekki síst mikil núna í ljósi væntanlegra sveitastjórnarkosninga, því sé mikilvægt að raddir kennara heyrist og að kennaraforystan sé ekki viðkvæm fyrir umræðunni. En hann segir líka: „Umræða um skólamál má þó ekki verða með þeim hætti að niðurrif eða afmarkaðir þættir taki hana yfir og úr verði „keppni í fyrirsögnum“ sem hefur tilhneigingu til að fara hratt úr böndum.“ Einnig varar hann við orðræðu sem „skaðar þær aðstæður sem við búum nemendum okkar“. Þarna má sjá enn og aftur hvernig menntaforystan reynir að þagga niður í óánægjuröddum, með því að saka gagnrýnismenn um niðurrif og að tala menntakerfið niður. En þessi málflutningur stenst ekki skoðun. Er heilbrigðisstarfsfólk þá að stunda niðurrifsstarfsemi þegar það segir frá neyðarástandi á bráðamóttökunni? Erum við að tala niður vegakerfið okkar þegar bent er á að vegirnir séu holóttir? Þarna er Magnús í krafti stöðu sinnar að láta kennara landsins vita að raunverulega gagnrýnin umræða, um skólakerfið eða menntaforystuna, sé ekki vel þegin. Er nokkuð furða að kennarar veigri sér við því að tjá óánægju sína á opinberum vettvangi þegar skilaboðin frá forystunni eru á þessa leið? Hingað til hafa kennarar helst tjáð gremju sína á kaffistofunni en ég tel að veðraskipti séu í vændum. Óánægja kennarasamfélagsins með ástandið í menntamálum, sem og afneitun og hroka menntaforystunnar, er einfaldlega orðin það megn. Magnús og málsvarar hans telja sig sýna mikla góðmennsku gagnvart nemendum og kennurum þegar þeir verja núverandi menntakerfi. En það sem þetta fólk kallar góðmennsku, álít ég vera grimmd. Það er grimmd að telja það sjálfsagt að nemendur fái ekki að vita hvar þeir standi í raun og veru. Að nemendur sem kunna varla að lesa fái B í íslensku. Að ungt fólk geti ekki látið drauma sína rætast því það fékk ekki námsaðstoð við hæfi. Nú er mál að linni; nemendur, kennarar og foreldrar verða að láta í sér heyra og láta skólaforystuna vita að ef hún er ekki tilbúin til þess að takast á við vandann, að þá sé kannski tímabært að hreinsa til í brúnni. Þegar fólk reisir sér skýjaborgir þá er best að kippa því aftur niður á jörðina. Höfundur er framhaldsskólakennari. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Skóla- og menntamál Mest lesið Ef Ísland gengur í Evrópusambandið flyt ég til Danmerkur Benedikt Jóhannesson Skoðun Skítamixsumarið mikla Hulda Hallgrímsdóttir Skoðun Gætum við haft það betra? Eydís Ásbjörnsdóttir Skoðun 30 dæmi um villandi framsetningu í efnahagsgreiningu Áfram Íslands Gauti B. Eggertsson Skoðun Þessir þröngsýnu ungu bændur Sunna Þórarinsdóttir Skoðun Ísland á eilífa hagsmuni en ekki eilífa bandamenn Lára Herborg Ólafsdóttir Skoðun Það eru breyttir tímar Þóroddur Ingvarsson Skoðun Samningaviðræður um Evrópusambandsaðild, já eða nei? Magnús Tumi Guðmundsson Skoðun Þarftu að vita mikið um ESB til að kjósa 29. ágúst? Árný Elínborg Ásgeirsdóttir Skoðun Já við fleiri verkfærum fyrir byggðir landsins Arna Lára Jónsdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Því er ekki betur vandað til verka? Fanný Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Hvaða samningsrammi gildir? Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Gullasninn Guðjón Þórir Sigfússon skrifar Skoðun Samningaviðræður um Evrópusambandsaðild, já eða nei? Magnús Tumi Guðmundsson skrifar Skoðun SFS, hagsmunir og sannleikurinn Þórólfur Matthíasson skrifar Skoðun Daði í baði Bjarnheiður Hallsdóttir skrifar Skoðun Hégómi Haukur Eggertsson skrifar Skoðun Við getum þetta sjálf – en hver græðir á því? Margrét Högnadóttir skrifar Skoðun Þarf fimm háskólagráður til að segja já? Berglind Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Já, já eða nei Þorsteinn Bergsson skrifar Skoðun Hvar má sleppa taumnum? Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Um sameiginleg verðmæti og veikleika stjórnkerfisins Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Nei við hindrunum - Ákvarðanir um Ísland á Íslandi Guðmundur Fertram Sigurjónsson skrifar Skoðun Ísland á eilífa hagsmuni en ekki eilífa bandamenn Lára Herborg Ólafsdóttir skrifar Skoðun Lífeyrissjóðirnir og aðalfundur Icelandair Kjartan Björgvinsson skrifar Skoðun Ísland og Færeyjar, yfirráð yfir auðlindum og fullveldi Ásgeir Daníelsson skrifar Skoðun Evrópskir hægrimenn eru Evrópusinnar Svavar Halldórsson skrifar Skoðun Evrópa - frá velferð til vígvæðingar Ólöf Benediktsdóttir skrifar Skoðun Ekki láta plata þig þann 29. ágúst Sveinn Atli Gunnarsson skrifar Skoðun Hver á fiskinn – og hvar verða verðmætin til? Baldur Johnsen skrifar Skoðun Gögnin sýna að Evrópa er langmikilvægasta markaðssvæði Íslands Gísli Hjálmtýsson skrifar Skoðun Grænland – áttu við Ísland? Damien Degeorges skrifar Skoðun Skítamixsumarið mikla Hulda Hallgrímsdóttir skrifar Skoðun Vextir, verðbólga, verðtrygging og íslenska veðráttan Árni Rúnar Þorvaldsson skrifar Skoðun 30 dæmi um villandi framsetningu í efnahagsgreiningu Áfram Íslands Gauti B. Eggertsson skrifar Skoðun Já til að sjá – áhættuspil? Guðmundur Edgarsson skrifar Skoðun Það eru breyttir tímar Þóroddur Ingvarsson skrifar Skoðun Er íslensk útgerð og kvótakerfi góð ástæða til að kjósa já 29. ágúst? Arndís Vala Arnfinnsdóttir skrifar Skoðun Ef Ísland gengur í Evrópusambandið flyt ég til Danmerkur Benedikt Jóhannesson skrifar Skoðun ESB hefur styrkt gróðahyggju á kostnað félagshyggju Ögmundur Jónasson skrifar Sjá meira
Skoðun 30 dæmi um villandi framsetningu í efnahagsgreiningu Áfram Íslands Gauti B. Eggertsson skrifar
Skoðun Er íslensk útgerð og kvótakerfi góð ástæða til að kjósa já 29. ágúst? Arndís Vala Arnfinnsdóttir skrifar