Þetta er algjört möst í fríið Hildur Vattnes Kristjánsdóttir skrifar 2. júní 2026 13:00 Stuttbuxur? Já! Sundföt? Já! Lagalisti fyrir strandpartí? Já! Góða skapið? Já! Þekking á því hvernig við verjumst miklum hita og komum í veg fyrir hitaslag? Uuuuh... Við Íslendingar kunnum svo sannarlega að pakka í tösku fyrir sumarfrí á erlendri grundu. Og flest veljum við (skiljanlega) að fara á heitari slóðir til að ná úr okkur hrollinum eftir veturinn dimma og kalda. Sem betur fer vita nú orðið flestir að þótt blessuð sólin elski allt þá þurfum við að verja okkur fyrir henni. Þá dettur okkur auðvitað fyrst í hug að pakka góðum brúsa af sólarvörn og maka svo vel á okkur í strandstólnum. Svo setjum við hatta á litlu börnin og pössum að þau dvelji sem mest í skugganum og fái nóg að drekka af albesta svaladrykknum, vatni, en látum eins og okkar fullorðni kroppur geti ekki fengið nóg af „þessari gulu“. Helst viljum við svo sum hver skála við hana (jafnvel dagana langa) í áfengum drykkjum. En nú er komið að lexíu sem ég hvet alla til að taka með sér í sólarlandafríið: Sólin getur verið lífshættuleg. Hitabylgjum fer fjölgandi, þær vara lengur og eru heitari, og þeim erum við, Íslendingarnir sólþyrstu, alls ekki vön að þurfa að verjast. En við verðum að gera það. Við verðum að vera vakandi fyrir hættunum og þessi árvekni verður að beinast að öllum, líka okkur fullorðna fólkinu. Í dag er sérstakur alþjóðlegur dagur vitundarvakningar um einmitt þetta: Öfgakenndan hita (e. Heat Action Day) og hvað við getum gert til að verjast honum. Hitaslag getur verið ein afleiðing en eins og mörg nýleg dæmi frá Evrópu sýna þá er drukknun það einnig. Og þar kemur áfengi, sem skerðir dómgreind okkar og getur valdið sinnuleysi, oft við sögu. Þetta er fimmta árið í röð sem 2. júní er helgaður þessari vitundarvakningu og við hjá Rauða krossinum viljum vekja á henni góða athygli. Þótt öfgakenndar hitabylgjur séu ekki þekktar hér á landi þá nálgast Íslendingar alveg örugglega heimsmet (miðað við höfðatölu!) í sólarlandaferðum. Og þegar við höfum hrist af okkur snjóinn, tekið af okkur mannbroddana og lambhúshettuna þá eigum við til að gleyma því að hiti getur verið okkar versti óvinur. Öfgakenndur hiti er vaxandi ógn við heilsu fólks og hitabylgjur eru meðal mannskæðustu náttúruhamfara sem mannkynið stendur frammi fyrir. Hreyfing Rauða krossins um allan heim vinnur með mörgum öðrum samtökum og stofnunum að því að vekja athygli á hættunum sem að okkur steðja vegna mikils hita. Við mælum með því að allir grípi til nokkurra einfaldra en lífsbjargandi ráðstafana til að verjast heilsutjóni af völdum hitabylgja: Forðastu að vera í beinni sól á heitasta tíma dagsins. Ef þú kemst ekki hjá því að vera á ferli skaltu hvíla þig reglulega í skugga. Berðu á þig sólarvörn og vertu í langerma, léttum fatnaði með hatt á höfði. Settu á þig sólgleraugu. Gættu þess að drekka nóg af vatni og forðastu áfengi. Fylgstu vel með börnum og eldra fólki. Kynntu þér einkenni hitaslags. Og athugaðu: Ef við bregðumst ekki við fyrstu einkennum hitaslags getur það orðið alvarlegt og jafnvel lífshættulegt ástand! Eitt það allra mikilvægasta sem við tökum með okkur í fríið er þekking á því hvernig við getum varið okkur fyrir hitanum. Það er kannski ekki það allra skemmtilegasta við ferðalagið en það gæti bjargað lífi okkar. Höfundur er teymisstjóri skyndihjálpar hjá Rauða krossinum á Íslandi. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Mest lesið Hvern á verkfallið að bíta? Gunnar Ármannsson Skoðun Umferðartafir á höfuðborgarsvæðinu – Hver er staðan og hvert stefnir? Þórarinn Hjaltason Skoðun Hvað eruð þið að gera í ÖBÍ? Elísa Ósk Línadóttir Skoðun NPA er ekki verðlaun fyrir samþykkta hegðun Rúnar Björn Herrera Þorkelsson Skoðun Hinn háskalegi hugsunarháttur Sighvatur Björgvinsson Skoðun Á rafmagnskrossara á göngustíg á hundrað og þaðan inn í eilífðina Davíð Bergmann Skoðun Rætin Rót í þrettán ár Ketill Guðmundsson Skoðun Sigurganga málaflokka Flokks fólksins Jónína Björk Óskarsdóttir Skoðun Frítt í strætó í dag Margrét Rós Sigurjónsdóttir Skoðun Uppsagnir í Stjórnarráðinu Hrafnkell Tumi Kolbeinsson Skoðun Skoðun Skoðun Tækni- og hugverkaiðnaðar eykur stöðugleika hagkerfisins Erla Tinna Stefánsdóttir,Ingólfur Bender skrifar Skoðun Hvað vita þingmenn um hvalveiðar? Valgerður Árnadóttir skrifar Skoðun Verður Vogi lokað? Rósa Guðbjartsdóttir skrifar Skoðun Hvað eruð þið að gera í ÖBÍ? Elísa Ósk Línadóttir skrifar Skoðun Hvern á verkfallið að bíta? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun NPA er ekki verðlaun fyrir samþykkta hegðun Rúnar Björn Herrera Þorkelsson skrifar Skoðun Samdráttur í losun Íslands – en ekki kerfisbreyting Sigurpáll Ingibergsson skrifar Skoðun Við tryggjum ekki lýðræðið eftir á Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Veit hið opinbera hvað virkar? Karl Steinar Óskarsson skrifar Skoðun Evrópa Henry Alexander Henrysson skrifar Skoðun Skeifan í smjörinu Arnar Sigurðsson skrifar Skoðun Þetta reddast: en hvað ef það reddast ekki? Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Umferðartafir á höfuðborgarsvæðinu – Hver er staðan og hvert stefnir? Þórarinn Hjaltason skrifar Skoðun Málshraðasögur 2. hluti — Forsjármál Eva Hauksdóttir skrifar Skoðun Á rafmagnskrossara á göngustíg á hundrað og þaðan inn í eilífðina Davíð Bergmann skrifar Skoðun Er afleiðingin orsök? Hjálmtýr Heiðdal skrifar Skoðun Uppsagnir í Stjórnarráðinu Hrafnkell Tumi Kolbeinsson skrifar Skoðun Sigurganga málaflokka Flokks fólksins Jónína Björk Óskarsdóttir skrifar Skoðun Getureglan og froðan Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Rætin Rót í þrettán ár Ketill Guðmundsson skrifar Skoðun Hvernig lögum við fegurðarskyn okkar að orkuskiptabyltingunni? Páll Jakob Líndal skrifar Skoðun Frítt í strætó í dag Margrét Rós Sigurjónsdóttir skrifar Skoðun Er ekki kominn tími til að endurskoða íslenska kjarasamningamódelið? Þórir Garðarsson skrifar Skoðun Hinn háskalegi hugsunarháttur Sighvatur Björgvinsson skrifar Skoðun Alþjóðadagur friðarmenningar 21. september Gunnar Hersveinn skrifar Skoðun 37% og reikningskúnstir Viðskiptaráðs Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar Skoðun Hvers vegna hrynur námsárangur á Íslandi en ekki á Englandi? Guðrún Sævarsdóttir skrifar Skoðun Heilbrigð skynsemi Einar Bárðarson skrifar Skoðun Samsköttun hjóna – allt annar hlutur? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Tæknin í okkar þágu – ekki öfugt Halla Tómasdóttir skrifar Sjá meira
Skoðun Tækni- og hugverkaiðnaðar eykur stöðugleika hagkerfisins Erla Tinna Stefánsdóttir,Ingólfur Bender skrifar
Skoðun Umferðartafir á höfuðborgarsvæðinu – Hver er staðan og hvert stefnir? Þórarinn Hjaltason skrifar
Skoðun Er ekki kominn tími til að endurskoða íslenska kjarasamningamódelið? Þórir Garðarsson skrifar