Hvaða löggjöf verður áfram í höndum Alþingis ef til aðildar að ESB kemur? Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar 2. júní 2026 19:31 Í umræðunni um Evrópusambandið er oft talað að við inngöngu missum við sjálfstæði okkar. Skoðum það betur í þessari grein: Hvað verður áfram alfarið í höndum Alþingis og íslenskra stjórnvalda. Það er mikilvægt að hafa í huga að aðild að ESB þýðir ekki að Ísland hætti að vera sjálfstætt lýðræðisríki. Við myndum áfram kjósa okkar eigið Alþingi, mynda okkar eigin ríkisstjórn og taka sjálfstæðar ákvarðanir um flest þau mál sem hafa bein áhrif á daglegt líf landsmanna. Menning, menntun og heilbrigðismál verða áfram í okkar höndum Íslendingar ráða áfram yfir íslenskri tungu, menningu og menningararfi. Alþingi setur lög um skólamál, ákveða námskrár, fjármögnun menntakerfisins og þróun háskólanna. Sama gildir um heilbrigðismálin. Skipulag Landspítala, heilsugæslunnar, öldrunarþjónustu og annarrar heilbrigðisþjónustu yrði áfram ákveðið á Íslandi. Engin stofnun í Brussel myndi taka slíkar ákvarðanir fyrir okkur. Velferðarkerfið og skattarnir verða áfram í okkar höndum Alþingi setur áfram lög um lífeyrismál, almannatryggingar, barnabætur, húsnæðisstuðning og félagslega þjónustu. Fjárlög ríkisins yrðu áfram samþykkt á Alþingi og íslensk stjórnvöld ákveða hvernig skatttekjum þjóðarinnar verður varið. Þetta eru meðal mikilvægustu verkefna hvers ríkis og þau flytjast ekki til Evrópusambandsins. Hvaða lög færast til sameiginlegrar löggjafar innan ESB? Á ákveðnum sviðum myndi Ísland hins vegar taka þátt í sameiginlegri lagasetningu með öðrum aðildarríkjum. Það á fyrst og fremst við um reglur sem tengjast innri markaði Evrópu, alþjóðaviðskiptum, samkeppnismálum, neytendavernd, umhverfismálum og ákveðnum þáttum sameiginlegs öryggis og varna. Markmiðið er að tryggja jafna samkeppnisstöðu, greið viðskipti milli landa og aukna samvinnu þegar kemur að sameiginlegum áskorunum. Það skiptir okkur Íslendinga sérstaklega miklu máli að vera með öryggisnet 450 milljóna íbúa þegar kemur að viðbrögðum við náttúruhamförum, netöryggi, orkuöryggi og almennu efnahagslegu öryggi. Munurinn frá stöðu Íslands í dag er sá að sem aðildarríki hefði Ísland fullan rétt til að taka þátt í mótun þessara reglna og greiða atkvæði um þær, ekki eins og nú innan EES samningsins þar sem við þurfum „blint“ að innleiða löggjöfina. Ísland heldur áfram að vera fullvalda ríki Hvort menn eru fylgjandi eða andvígir aðild að ESB er eðlilegur ágreiningur í lýðræðissamfélagi. Staðreyndin er sú að við mögulega aðild yrðu menningarmál, menntamál, heilbrigðismál, velferðarkerfið, sveitarfélögin, skattkerfið og stærstur hluti daglegrar löggjafar áfram í höndum Alþingis. Spurningin sem þjóðin stendur frammi fyrir er því ekki hvort Ísland missi sjálfstæði sitt, heldur hvort hagsmunum Íslands sé betur borgið með því að taka sæti við borðið þar sem sameiginlegar reglur um viðskipti, efnahagsmál og öryggi Evrópu eru mótaðar. Íslendingar verða núna þegar staða okkar er tiltölulega sterk að hugleiða heimsmyndina sem er nú að breytast. Hvað gefur meira öryggi og tækifæri fyrir komandi kynslóðir? Mín skoðun er sú að við eigum að segja Já í ágúst, til að tryggja að við fáum samninginn þar sem við sjáum raunverulega hver staða okkar yrði sem fullgild sjálfstæð þjóð innan ESB. Þá höfum við raunverulegar upplýsingar til að segja já eða nei við aðild. Höfundur er með MS í stjórnun og stefnumótun og er stjórnarmaður í öldungaráði Viðreisnar. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Skoðun: Þjóðaratkvæðagreiðsla um ESB-viðræður Alþingi Mest lesið Ef Ísland gengur í Evrópusambandið flyt ég til Danmerkur Benedikt Jóhannesson Skoðun Skítamixsumarið mikla Hulda Hallgrímsdóttir Skoðun Gætum við haft það betra? Eydís Ásbjörnsdóttir Skoðun 30 dæmi um villandi framsetningu í efnahagsgreiningu Áfram Íslands Gauti B. Eggertsson Skoðun Þessir þröngsýnu ungu bændur Sunna Þórarinsdóttir Skoðun Ísland á eilífa hagsmuni en ekki eilífa bandamenn Lára Herborg Ólafsdóttir Skoðun Þarftu að vita mikið um ESB til að kjósa 29. ágúst? Árný Elínborg Ásgeirsdóttir Skoðun Já við fleiri verkfærum fyrir byggðir landsins Arna Lára Jónsdóttir Skoðun Það eru breyttir tímar Þóroddur Ingvarsson Skoðun Þarf fimm háskólagráður til að segja já? Berglind Guðmundsdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Hvaða samningsrammi gildir? Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Gullasninn Guðjón Þórir Sigfússon skrifar Skoðun Samningaviðræður um Evrópusambandsaðild, já eða nei? Magnús Tumi Guðmundsson skrifar Skoðun SFS, hagsmunir og sannleikurinn Þórólfur Matthíasson skrifar Skoðun Daði í baði Bjarnheiður Hallsdóttir skrifar Skoðun Hégómi Haukur Eggertsson skrifar Skoðun Við getum þetta sjálf – en hver græðir á því? Margrét Högnadóttir skrifar Skoðun Þarf fimm háskólagráður til að segja já? Berglind Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Já, já eða nei Þorsteinn Bergsson skrifar Skoðun Hvar má sleppa taumnum? Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Um sameiginleg verðmæti og veikleika stjórnkerfisins Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Nei við hindrunum - Ákvarðanir um Ísland á Íslandi Guðmundur Fertram Sigurjónsson skrifar Skoðun Ísland á eilífa hagsmuni en ekki eilífa bandamenn Lára Herborg Ólafsdóttir skrifar Skoðun Lífeyrissjóðirnir og aðalfundur Icelandair Kjartan Björgvinsson skrifar Skoðun Ísland og Færeyjar, yfirráð yfir auðlindum og fullveldi Ásgeir Daníelsson skrifar Skoðun Evrópskir hægrimenn eru Evrópusinnar Svavar Halldórsson skrifar Skoðun Evrópa - frá velferð til vígvæðingar Ólöf Benediktsdóttir skrifar Skoðun Ekki láta plata þig þann 29. ágúst Sveinn Atli Gunnarsson skrifar Skoðun Hver á fiskinn – og hvar verða verðmætin til? Baldur Johnsen skrifar Skoðun Gögnin sýna að Evrópa er langmikilvægasta markaðssvæði Íslands Gísli Hjálmtýsson skrifar Skoðun Grænland – áttu við Ísland? Damien Degeorges skrifar Skoðun Skítamixsumarið mikla Hulda Hallgrímsdóttir skrifar Skoðun Vextir, verðbólga, verðtrygging og íslenska veðráttan Árni Rúnar Þorvaldsson skrifar Skoðun 30 dæmi um villandi framsetningu í efnahagsgreiningu Áfram Íslands Gauti B. Eggertsson skrifar Skoðun Já til að sjá – áhættuspil? Guðmundur Edgarsson skrifar Skoðun Það eru breyttir tímar Þóroddur Ingvarsson skrifar Skoðun Er íslensk útgerð og kvótakerfi góð ástæða til að kjósa já 29. ágúst? Arndís Vala Arnfinnsdóttir skrifar Skoðun Ef Ísland gengur í Evrópusambandið flyt ég til Danmerkur Benedikt Jóhannesson skrifar Skoðun ESB hefur styrkt gróðahyggju á kostnað félagshyggju Ögmundur Jónasson skrifar Skoðun Hver ætlar að hafa augun á boltanum? Hnikarr Bjarmi Franklínsson skrifar Sjá meira
Skoðun 30 dæmi um villandi framsetningu í efnahagsgreiningu Áfram Íslands Gauti B. Eggertsson skrifar
Skoðun Er íslensk útgerð og kvótakerfi góð ástæða til að kjósa já 29. ágúst? Arndís Vala Arnfinnsdóttir skrifar