Ég vel hattana sjálf Berglind Guðmundsdóttir skrifar 2. júní 2026 12:45 Ég hef gaman að því að bera marga hatta. Að vera forvitin, mynda mér skoðanir og endurmeta þær þegar ég læri eitthvað nýtt. Ég er líka almennt ekki fyrir að vera sett í box. Fyrir tæpum tveimur árum fékk ég áhuga á pólitík. Það eitt og sér kom mér verulega á óvart. En ég fór að fylgjast betur með samfélagsmálum og fyrir nokkrum mánuðum gerðist eitthvað sem kom mér enn meira á óvart. Ég fékk áhuga á Evrópumálum. Á dauða mínum átti ég frekar von. Síðan þá hef ég eytt miklum tíma í að lesa, hlusta og kynna mér Evrópumál frá ólíkum hliðum. Stundum eru þau meira að segja yndislestur á föstudagskvöldi. Kannski var það þess vegna sem mér brá þegar ég las grein eftir Hjört J. Guðmundsson, sagnfræðing og alþjóðastjórnmálafræðing, þar sem ég var kölluð gallharður Evrópusinni. Sú lýsing er einfaldlega röng. Ég er tilbúin að bera marga hatta, en þá vel ég sjálf. Ég gef mér heldur ekki að Hjörtur sé gallharður andstæðingur Evrópusambandsins. Ég leyfi honum að velja sinn hatt sjálfur. Ég er, rétt eins og margir Íslendingar, ekki búin að mynda mér endanlega skoðun á því hvort Ísland eigi að ganga í Evrópusambandið. Ég er heldur ekki viss um að þjóðin myndi samþykkja aðild ef til þess kæmi. Mér finnst hins vegar mikilvægt að þjóðin fái að sjá hvað raunverulega stendur Íslandi til boða áður en hún tekur afstöðu. Þess vegna er það mín von að við kjósum já í þjóðaratkvæðagreiðslunni í ágúst. Ekki vegna þess að ég tel inngöngu sjálfgefna niðurstöðu heldur vegna þess að þjóðin á að geta tekið upplýsta ákvörðun þegar samningur liggur fyrir. Kannski myndum við samþykkja samninginn. Kannski myndum við hafna honum, rétt eins og Norðmenn hafa gert í tvígang. Hvor niðurstaðan sem yrði finnst mér réttlætismál að þjóðin fái tækifæri til að taka þá ákvörðun sjálf. Það sem ég hef líka verið að velta fyrir mér er hvers vegna umræðan um þetta mál virðist svo oft snúast um stjórnmálaflokka frekar en málefnið sjálft. Þetta er einfaldlega of stór spurning til að festast í flokkspólitík. Hún snýst um framtíð Íslands. Ég held að flestir vilji það sem er Íslandi fyrir bestu. Okkur greinir einfaldlega á um hvernig við komumst þangað. Kannski myndum við eiga auðveldara með að ræða þetta mál ef við leyfðum okkur fyrst að sjá hvað stendur Íslandi til boða. Ég veit ekki enn hvort svarið við aðild Íslands að Evrópusambandinu er já eða nei. En ég veit að spurningin er of mikilvæg til að vera eign einhvers stjórnmálaflokks. Hún tilheyrir þjóðinni. Höfundur er hjúkrunarfræðingur. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Skoðun: Þjóðaratkvæðagreiðsla um ESB-viðræður Mest lesið Hvern á verkfallið að bíta? Gunnar Ármannsson Skoðun Umferðartafir á höfuðborgarsvæðinu – Hver er staðan og hvert stefnir? Þórarinn Hjaltason Skoðun Hvað eruð þið að gera í ÖBÍ? Elísa Ósk Línadóttir Skoðun NPA er ekki verðlaun fyrir samþykkta hegðun Rúnar Björn Herrera Þorkelsson Skoðun Hinn háskalegi hugsunarháttur Sighvatur Björgvinsson Skoðun Á rafmagnskrossara á göngustíg á hundrað og þaðan inn í eilífðina Davíð Bergmann Skoðun Rætin Rót í þrettán ár Ketill Guðmundsson Skoðun Sigurganga málaflokka Flokks fólksins Jónína Björk Óskarsdóttir Skoðun Frítt í strætó í dag Margrét Rós Sigurjónsdóttir Skoðun Uppsagnir í Stjórnarráðinu Hrafnkell Tumi Kolbeinsson Skoðun Skoðun Skoðun Tækni- og hugverkaiðnaðar eykur stöðugleika hagkerfisins Erla Tinna Stefánsdóttir,Ingólfur Bender skrifar Skoðun Hvað vita þingmenn um hvalveiðar? Valgerður Árnadóttir skrifar Skoðun Verður Vogi lokað? Rósa Guðbjartsdóttir skrifar Skoðun Hvað eruð þið að gera í ÖBÍ? Elísa Ósk Línadóttir skrifar Skoðun Hvern á verkfallið að bíta? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun NPA er ekki verðlaun fyrir samþykkta hegðun Rúnar Björn Herrera Þorkelsson skrifar Skoðun Samdráttur í losun Íslands – en ekki kerfisbreyting Sigurpáll Ingibergsson skrifar Skoðun Við tryggjum ekki lýðræðið eftir á Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Veit hið opinbera hvað virkar? Karl Steinar Óskarsson skrifar Skoðun Evrópa Henry Alexander Henrysson skrifar Skoðun Skeifan í smjörinu Arnar Sigurðsson skrifar Skoðun Þetta reddast: en hvað ef það reddast ekki? Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Umferðartafir á höfuðborgarsvæðinu – Hver er staðan og hvert stefnir? Þórarinn Hjaltason skrifar Skoðun Málshraðasögur 2. hluti — Forsjármál Eva Hauksdóttir skrifar Skoðun Á rafmagnskrossara á göngustíg á hundrað og þaðan inn í eilífðina Davíð Bergmann skrifar Skoðun Er afleiðingin orsök? Hjálmtýr Heiðdal skrifar Skoðun Uppsagnir í Stjórnarráðinu Hrafnkell Tumi Kolbeinsson skrifar Skoðun Sigurganga málaflokka Flokks fólksins Jónína Björk Óskarsdóttir skrifar Skoðun Getureglan og froðan Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Rætin Rót í þrettán ár Ketill Guðmundsson skrifar Skoðun Hvernig lögum við fegurðarskyn okkar að orkuskiptabyltingunni? Páll Jakob Líndal skrifar Skoðun Frítt í strætó í dag Margrét Rós Sigurjónsdóttir skrifar Skoðun Er ekki kominn tími til að endurskoða íslenska kjarasamningamódelið? Þórir Garðarsson skrifar Skoðun Hinn háskalegi hugsunarháttur Sighvatur Björgvinsson skrifar Skoðun Alþjóðadagur friðarmenningar 21. september Gunnar Hersveinn skrifar Skoðun 37% og reikningskúnstir Viðskiptaráðs Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar Skoðun Hvers vegna hrynur námsárangur á Íslandi en ekki á Englandi? Guðrún Sævarsdóttir skrifar Skoðun Heilbrigð skynsemi Einar Bárðarson skrifar Skoðun Samsköttun hjóna – allt annar hlutur? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Tæknin í okkar þágu – ekki öfugt Halla Tómasdóttir skrifar Sjá meira
Skoðun Tækni- og hugverkaiðnaðar eykur stöðugleika hagkerfisins Erla Tinna Stefánsdóttir,Ingólfur Bender skrifar
Skoðun Umferðartafir á höfuðborgarsvæðinu – Hver er staðan og hvert stefnir? Þórarinn Hjaltason skrifar
Skoðun Er ekki kominn tími til að endurskoða íslenska kjarasamningamódelið? Þórir Garðarsson skrifar