Segja Bandaríkin enn með óásættanlegar kröfur Samúel Karl Ólason skrifar 6. maí 2026 14:02 Stuðningsmenn klerkastjórnarinnar í Íran á samstöðufundi í Tehran á mánduaginn. Þarna má sjá fólk halda á myndum af Mojtaba Khamenei, æðstaklerk Íran. AP/Vahid Salemi Íranskir fjölmiðlar segja það ekki rétt að viðræður um mögulegan frið við Bandaríkjamenn hafi tekið stakkaskiptum og að samkomulag gæti brátt legið fyrir. Íranir hafi enn ekki sent svar við nýjustu samningsdrögum Bandaríkjamanna og það þau drög innihaldi einhverjar „óásættanlegar kröfur“.
Bandaríski miðillinn Axios birti í morgun frétt um að innan veggja Hvíta hússins væru menn vongóðir um að samkomulag gæti brátt náðst við Írani. Fleiri miðlar höfðu það einnig eftir heimildarmönnum og embættismönnum í Pakistan, sem hafa komið að viðræðunum milli Bandaríkjamanna og Írana. Þeir Steve Witkoff, vinur Trumps og sérstakur erindreki hans, og Jard Kushner, tengdasonur Trumps og annar sérstakur erindreki hans, voru sagðir hafa í viðræðum við Íran, gegnum embættismenn í Pakistan, samið skjal með fjórtán tillögum. Þessar tillögur eru meðal annars sagðar fela í sér að Íran hætti að auðga úran, hve lengi hefur ekki enn verið ákveðið, og að Bandaríkjamenn felli úr gildi viðskiptaþvinganir og veiti Írönum aðgang að milljörðum dala sem þeir hafa fryst. Þá myndu Bandaríkjamenn hætta að halda Íran í herkví og Íranir myndu opna Hormússund aftur. Áróður fyrir markaði og almenningsálit Samkvæmt heimildarmönnum hins ríkisrekna íranska miðils Tasnim, sem sagðir eru þekkja til viðræðnanna, eru enn óásættanlegar kröfur í samningsdrögunum sem liggja fyrir. Tasnim hefur eftir heimildarmanni sínum að um áróður sé að ræða sem Trump vilji nota til að réttlæta undanhald frá Íran. Trump hefði aldrei átt að hefja stríð gegn Íran og hann ætti að hafa áttað sig á því að hann myndi ekki ná markmiðum sínum. Bandaríkjamenn hafa lengi kvartað yfir því að yfirlýsingar ráðamanna í Íran á opinberum vettvangi séu alls ekki í takt við það sem þeir segja í samskiptum ríkjanna á milli. Sjá einnig: Byltingarvörðurinn herðir tökin á stjórnartaumunum Íranski miðillinn Fars, sem tengist íranska byltingarverðinum, slær á svipaða strengi og Tasnim. Einn heimildarmaður þess miðils sagðist telja að yfirlýsingar Bandaríkjamanna hefðu þann tilgang að hafa áhrif á olíumarkaði og viðhorf Bandaríkjamanna gagnvart stríðinu gegn Íran. Það er gífurlega óvinsælt vestanhafs. Miðillinn segir að fjölmiðlar vestanhafs og þá sérstaklega Axios hafi í raun birt óskir ríkisstjórnar Bandaríkjanna í aðdraganda frekari viðræðna. Þá er vitnað í talsmann utanríkisráðuneytis Íran, sem sagði um helgina að Bandaríkjamenn hefðu sent tillögur til Íran og að þær væru til skoðunar þar.
Íran Árásir Bandaríkjanna og Ísraels á Íran Bandaríkin Donald Trump Hernaður Skipaflutningar Bensín og olía Pakistan Mest lesið Skipstjóri Bandero handtekinn og skipið fært til hafnar Innlent Myndi glaður sjá réttarhöld yfir skipverjum Bandero Innlent Gabríel Douane og fimm aðrir sýknaðir Innlent Bílstjóri horfði á skelfingu lostinn Innlent Vaktin: Bandero hrellir Hval 9 Innlent Sætir morðhótunum og óhróðri í vinsælum Facebook-hópi Innlent „Þá bara krassa lungun“ Innlent Vasaþjófnaður daglegur atburður og verulegar fjárhæðir teknar Innlent Dekk sprakk við lendingu vélar Innlent Bruni við Breiðhöfða Innlent Fleiri fréttir „Hún drap börnin“ „Það sem hann gerði, ég get aldrei endurgoldið það“ Nítján ára Norðmaður dæmdur fyrir að taka að sér leigumorð á Englandi Bandaríkjamaður sagður smygla vopnum og málaliðum til Súdan Rússnesk stýriflaug líklega lent í Póllandi Segjast hafa gert harða hríð að byltingarverðinum Minnst þrjátíu látnir í Japan Fjögur börn látin eftir loftárásir Rússa á borgir Úkraínu Neitaði að svara spurningum þingmanna Leita enn í rústunum í Japan „Við ætlum að fokking lúskra á þeim“ Stofnandi Telegram ákærður og eftirlýstur í Rússlandi Tuttugu drengir á Gothia Cup týndir Ebólan komin í metstærð á mettíma Nýr forseti hét því að beita hernum gegn glæpum Þrettán látnir hið minnsta í Japan Írönum hótað hefndum eftir árás á herstöð Bandaríkjanna Ræddu Patriot-flaugar og friðarviðræður Vill að RFK gangi harðar fram gegn bólusetningum Fólk fast í verslunarmiðstöð eftir skjálftann í Japan „Við munum ná markmiðum okkar“ Vilja að Hæstiréttur taki afstöðu Stukku fram af Geimnálinni Johnson & Johnson greiðir 693 milljarða króna vegna málsókna Bandarískir hermenn ekki látnir svara til saka á Bretlandseyjum Skjálfti að stærð 7,1 skók Japan Áhyggjur uppi vegna nýrrar brúar milli Rússlands og Norður-Kóreu Árásirnar haldi áfram skili viðræðurnar ekki sínu Önnur hitabylgja nálgast Spán Kveiktu í tveimur moskum Sjá meira