Hafnarfjörður í gíslingu þéttingarstefnu Reykjavíkur Orri Björnsson skrifar 29. apríl 2026 11:02 Sveitarfélögin á höfuðborgarsvæðinu hafa vaxið mikið undanfarin ár og þar er Hafnarfjörður engin undantekning. Íbúðum hefur fjölgað og hér rísa ný hverfi með blandaðri byggð. Það hljómar allt vel en segir ekki alla söguna. Eins og staðan er nú hefur Hafnarfjörður í raun lítið annað val en að byggja upp á forsendum þéttingarstefnu þvert á vilja íbúa skv. búsetukönnunum HMS, þrátt fyrir að bærinn hafi nægt byggingarland sem hægt væri að nýta til skynsamlegs vaxtar, meira svigrúms, aukinna lífsgæða fyrir íbúa, og atvinnulíf. Það eru vaxtarmörk höfuðborgarsvæðisins sem standa í vegi fyrir því. Það eru vaxtarmörkin sem búa til lóðaskort og verðbólgu. Vaxtarmörkin eru fyrir löngu orðin barn síns tíma. Þau byggja á spám um fólksfjölgun og mikinn fjölda íbúa í íbúð sem eiga sér ekki lengur stoð í raunveruleikanum, en veita um leið öðrum sveitarfélögum á höfuðborgarsvæðinu neitunarvald yfir framtíð nágranna sinna. Vinstristjórn Reykjavíkur, með Samfylkinguna í broddi fylkingar, hefur þannig í fjölda ára haldið höfuðborgarsvæðinu í gíslingu og þvingað þéttingarstefnu upp á hvert sveitarfélagið á fætur öðru, með tilheyrandi forræðishyggju. Ég treysti Hafnfirðingum betur en vinstristjórninni í Reykjavíktil að ákveða hvaða svæði henta best til uppbyggingar í Hafnarfirði. Það er eðlilegast að skipulagsvald Hafnarfjarðar sé alfarið í höndum okkar Hafnfirðinga. Græna gímaldið er ekki velkomið í Hafnarfjörð Vaxtarmörkin hafa ekki aðeins hamlandi áhrif á uppbyggingu íbúðabyggðar. Atvinnustarfsemi er líka löngu farin að líða fyrir skort á lóðum. Atvinnuuppbygging er grunnur velsældar í öllum samfélögum og það á líka við um sveitarfélög. Sterkt samfélag þarf sterkt atvinnulíf og sterkt atvinnulíf þarf aðgang að góðum atvinnulóðum. Það þarf að tryggja lóðaframboð fyrir fjölbreytta atvinnustarfsemi, hvort sem um er að ræða skrifstofur, framleiðslu, iðnað eða aðra atvinnustarfsemi. Það eru gríðarlegir fjárhagslegir hagsmunir undir fyrir Hafnarfjörð. Eins og gefur að skilja er ekki hægt að byggja framtíðaratvinnulíf Hafnarfjarðar á þéttingarreitum inni í íbúðahverfum. Þó svo að vinstri meirihluta Reykjavíkur finnist í lagi að koma fyrir grænum gímöldum við stofuglugga eldri borgara þá efast ég um að Hafnfirðingar séu á sama máli. Á meðan vaxtarmörkin standa óbreytt er valið í atvinnuuppbyggingu einfalt. Annaðhvort er látið hjá líða að skipuleggja og byggja upp nauðsynlegar atvinnulóðir eða atvinnustarfsemi er komið fyrir, með tilheyrandi raski, inni í íbúðahverfum. Hvorugt er boðlegt. Þessa kosti mun ég ekki sætta mig við og enginn Hafnfirðingur á að sætta sig við. Höfum engan áhuga á að verða barnlausa Reykjavík Vaxtarmörkin hafa undanfarin ár gert lítið annað en að valda skorti á íbúðum, flækja skipulag, hægja á uppbyggingu og í raun stuðla að aukinni verðbólgu, öllum heimilum landsins til mikils skaða. Það er óásættanlegt að borgarstjórn Reykjavíkur hafi úrslitaáhrif á skipulagsvald Hafnarfjarðar. Það er óásættanlegt að borgarstjórn Reykjavíkur geti þvingað sína þéttingarstefnu upp á nágrannasveitarfélögin. Og það er óásættanlegt að leyfa manngerðu kerfi að stöðva uppbyggingu bæði íbúða og atvinnu á höfuðborgarsvæðinu. Afnemum vaxtarmörkin Það er ekki að ástæðulausu að ungt fólk flýr Reykjavík og flykkist í nágrannasveitarfélög. Við erum ekki Reykjavík og við höfum engan áhuga á að verða Reykjavík. Hafnarfjörður á að fá að vaxa og dafna á eigin forsendum með hagsmuni Hafnfirðinga að leiðarljósi. Nú er kominn tími til að afnema vaxtarmörkin og bjóða upp á raunverulegar lausnir við skorti á lóðum. Við viljum leysa málin og sýna það í verki, ekki bara með orðum. Fyrir fjölskyldur, atvinnulíf og framtíð Hafnarfjarðar. Höfundur er oddviti Sjálfstæðisflokksins í Hafnarfirði. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Hafnarfjörður Sjálfstæðisflokkurinn Skoðun: Sveitarstjórnarkosningar 2026 Orri Björnsson Mest lesið Hin drepleiðinlega Bókun 35 Helgi Hrafn Gunnarsson Skoðun Ísland: Þessi sigur jaðrar við kraftaverk Carl Baudenbacher Skoðun Ekki leggja þjóðinni orð í munn Anna Margrét Bjarnadóttir Skoðun Barnið sem mælikvarðinn sér ekki Rebekka Rafnsdóttir Skoðun Pólitísk ábyrgð hlýtur að hafa afleiðingar Erna Bjarnadóttir Skoðun Goðarnir fóru aldrei – þeir skiptu bara um nafn Ragnar Thorarensen Skoðun Utanríkisráðherra setur EES-samninginn í uppnám Gunnar Bragi Sveinsson Skoðun Hvernig hefurðu það? Carmen Maja Valencia Skoðun Af klósettferðum og frelsinu til að njóta almannarýmis Eva Dögg Sigurðardóttir Skoðun Hafa íslensku lífeyrissjóðirnir staðið sig nógu vel? Kjartan Björgvinsson Skoðun Skoðun Skoðun Hafa íslensku lífeyrissjóðirnir staðið sig nógu vel? Kjartan Björgvinsson skrifar Skoðun Eigum við að borga það? Gréta Ingþórsdóttir skrifar Skoðun Pólitísk ábyrgð hlýtur að hafa afleiðingar Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Þegar Alþingi er beygt í duftið Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Sammála – leggjum þjóðinni ekki orð í munn Hilmar Kristinsson skrifar Skoðun Goðarnir fóru aldrei – þeir skiptu bara um nafn Ragnar Thorarensen skrifar Skoðun Hin drepleiðinlega Bókun 35 Helgi Hrafn Gunnarsson skrifar Skoðun Spírallinn Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun „Að tilheyra“, tækifæri til að styðja fyrr við unga fólkið okkar Sigrún Þóra Sveinsdóttir skrifar Skoðun Barnið sem mælikvarðinn sér ekki Rebekka Rafnsdóttir skrifar Skoðun Er landsbyggðin hluti af lausninni? Hildur Sólveig Sigurðardóttir skrifar Skoðun Netöryggi snýst líka um að þora að segja frá Margrét V. Helgadóttir skrifar Skoðun Fortíðin vann Baldur Johnsen skrifar Skoðun Getur maður verið rasisti án þess að gera sér grein fyrir því? Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Ekki leggja þjóðinni orð í munn Anna Margrét Bjarnadóttir skrifar Skoðun Hvernig hefurðu það? Carmen Maja Valencia skrifar Skoðun Minna kerfi, betri þjónusta Róbert Ragnarsson skrifar Skoðun Forstjóri CIA heimsækir Moskvu Arnór Sigurjónsson skrifar Skoðun Trump lítið annað en hvíslari í leikritinu Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Ísland: Þessi sigur jaðrar við kraftaverk Carl Baudenbacher skrifar Skoðun Af klósettferðum og frelsinu til að njóta almannarýmis Eva Dögg Sigurðardóttir skrifar Skoðun Hvar er eðlilegt að telja atkvæði? (og fleiri góðar samkvæmisvangaveltur) Brynhildur Bolladóttir skrifar Skoðun Utanríkisráðherra setur EES-samninginn í uppnám Gunnar Bragi Sveinsson skrifar Skoðun Þjóðin sagði nei – megum við þá ganga frá eftir okkur? Hilmar Kristinsson skrifar Skoðun Foreldrar og þjálfarar: Hvar liggja mörkin? Ragna Ingólfsdóttir skrifar Skoðun Ríkisstjórnin tapaði – og ætti að segja af sér Eldur Smári Kristinsson skrifar Skoðun Eigum við ekki bara að taka til heima hjá okkur? Guðjón Idir skrifar Skoðun Hugvekja á Höfuðdaginn Ívar Örn Hauksson skrifar Skoðun Við munum ekki hafa neitt neitunarvald Hjörtur J. Guðmundsson skrifar Skoðun NEI heldur öllu opnu. JÁ er vegferð að lokun Haraldur Ólafsson skrifar Sjá meira
Skoðun „Að tilheyra“, tækifæri til að styðja fyrr við unga fólkið okkar Sigrún Þóra Sveinsdóttir skrifar
Skoðun Hvar er eðlilegt að telja atkvæði? (og fleiri góðar samkvæmisvangaveltur) Brynhildur Bolladóttir skrifar