Allir eru jafnir en enginn fær að blómstra Bessí Þóra Jónsdóttir skrifar 28. apríl 2026 11:20 Einu sinni var stór garður þar sem rækta átti sterk og heilbrigð tré. Í garðinum voru margar tegundir: lítil birkitré, hraðvaxandi víðir og hægvaxin en sterk eik. Garðyrkjumaðurinn hafði eitt markmið: „Öll þessi tré eiga að vaxa jafnt og vera hamingjusöm“ sagði hann. Fyrst hljómaði það vel. En svo komu reglurnar. „Við megum ekki vökva of mikið“ sagði hann. „Sum tré gætu ekki ráðið við það“ „Við megum ekki klippa“ bætti hann við. „Það gæti valdið óþægindum“ „Og við megum alls ekki bera áburð sem sum tré fá ekki“ Lítil eik spurði:„En ég þarf meiri tíma og næringu…“ „Við reynum að hafa þetta jafnt“ sagði garðyrkjumaðurinn. Víðirinn spurði:„Get ég fengið meira pláss? Ég get vaxið hraðar“ „Við viljum ekki að einhver skeri sig úr“ svaraði hann. Tíminn leið. Sum tré hættu að teygja sig upp.Önnur lærðu að lifa á lágmarksnæringu.Nokkur visnuðu hægt en enginn vildi tala um það. Dag einn kom gamall skógarvörður í heimsókn. Hann leit yfir garðinn. „Af hverju eru trén svona lág?“ spurði hann. „Þau eru róleg og ánægð“ sagði garðyrkjumaðurinn. „En þau eru ekki að vaxa“ sagði skógarvörðurinn. „Við viljum ekki setja pressu“ svaraði garðyrkjumaðurinn. Skógarvörðurinn gekk að einni lítilli eik. „Hvað þarftu?“ spurði hann. „Meiri áskorun“ hvíslaði hún. „Og einhvern sem trúir að ég geti orðið stór.“ Hann gekk að víðinum. „Og þú?“ „Pláss til að fara lengra,“ sagði hann. Skógarvörðurinn sneri sér að garðyrkjumanninum. „Þú ert ekki að rækta tré“ sagði hann.„Þú ert að halda þeim niðri.“ Þögn. Garðyrkjumaðurinn horfði á garðinn sinn, jafnan, snyrtilegan en ótrúlega lágvaxinn. „En þau eru allavega jöfn“ sagði hann loks. Skógarvörðurinn kinkaði kolli hægt. „Já“ sagði hann.„Jöfn en langt frá því sem þau gætu orðið.“ Vindurinn blés í gegnum garðinn, ekki í háum trjám sem teygðu sig til himins heldur í lágum greinum sem höfðu aldrei fengið tækifæri til að vaxa. Skólinn, líkt og garðurinn, þarf ekki að halda öllum í sömu hæð. Þvert á móti á hann að skapa aðstæður þar sem hver og einn fær að vaxa á eigin forsendum. Nemendur eru ólíkir, með mismunandi þarfir, styrkleika og metnað. Því er aðgreining í námi ekki vandamál heldur nauðsyn til þess að allir fái að blómstra. Sumir þurfa meiri stuðning til að ná fótfestu, á meðan aðrir þurfa meiri áskoranir til að halda áfram að teygja sig upp. Fyrir ungmenni sem hafa metnað og getu til að fara lengra er sérstaklega mikilvægt að fá tækifæri til að skara fram úr, kafa dýpra í ákveðin fög og þróa hæfileika sína. Án slíkra tækifæra er hætt við að þeir staðni, rétt eins og trén sem fengu aldrei næga næringu eða rými til að vaxa. Raunverulegt jafnrétti felst því ekki í því að allir séu meðhöndlaðir eins, heldur að hver og einn fái það sem hann þarf til að njóta sín. Þannig verður skólinn ekki lágvaxinn garður, heldur lifandi umhverfi þar sem fjölbreyttir hæfileikar fá að dafna og ná fullum hæðum. Höfundur er atferlishagfræðingur og frambjóðandi í 4. sæti á lista Miðflokksins í Garðabæ. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Skoðun: Sveitarstjórnarkosningar 2026 Garðabær Bessí Þóra Jónsdóttir Mest lesið Halldór 5.9.2026 Halldór Marta Kos verður að virða niðurstöðuna Erna Bjarnadóttir Skoðun Óþægilegar niðurstöður gera könnun ekki ómarktæka Ingrid Kuhlman,Svanur Sigurbjörnsson Skoðun Bilið sem skilningurinn fyllir ekki Sigurður Árni Reynisson Skoðun Bubbi Morthens og endalok alheimsins Kristján Logason Skoðun Að velta eigin sök á aðra Sigurjón Þórðarson Skoðun Próf, einkunnir og (PISA) mat á skólakerfi. Hluti 1. Jón Torfi Jónasson Skoðun Gagnaver, Verne og Ísrael Halldór Reynisson Skoðun Þegar góður ásetningur skilur börn eftir Guðjóna Eygló Friðriksdóttir Skoðun Lindsay Clancy: Konur eru „hysterískar” þegar það hentar þeim Íris Erlingsdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Blómleg ferðaþjónusta skilar sér heim til íslenskra samfélaga Sigfinnur Björnsson skrifar Skoðun Höfum við tíma fyrir börnin okkar? jóhann Rúnar Pálsson skrifar Skoðun Lindsay Clancy: Konur eru „hysterískar” þegar það hentar þeim Íris Erlingsdóttir skrifar Skoðun Óþægilegar niðurstöður gera könnun ekki ómarktæka Ingrid Kuhlman,Svanur Sigurbjörnsson skrifar Skoðun Bilið sem skilningurinn fyllir ekki Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun Marta Kos verður að virða niðurstöðuna Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Þegar góður ásetningur skilur börn eftir Guðjóna Eygló Friðriksdóttir skrifar Skoðun Gagnaver, Verne og Ísrael Halldór Reynisson skrifar Skoðun Sterkari innviðir fyrir STEM menntun Huld Hafliðadóttir skrifar Skoðun Ísland sagði nei – en sagði það nei við Evrópu? Valerio Gargiulo skrifar Skoðun EES-samningurinn og regluverk atvinnulífsins Ólafur Stephensen skrifar Skoðun Ábyrgur hagsmunaseggur eða óábyrgt fórnarlamb? Þórdís Hólm Filipsdóttir skrifar Skoðun Milljón hugmyndir, hundrað tímamót Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Fjórða valdið? En það ert þú! Þorsteinn J. Vilhjálmsson skrifar Skoðun Að velta eigin sök á aðra Sigurjón Þórðarson skrifar Skoðun Próf, einkunnir og (PISA) mat á skólakerfi. Hluti 1. Jón Torfi Jónasson skrifar Skoðun Hvers eiga börnin að gjalda? Magnea Gná Jóhannsdóttir skrifar Skoðun Á að mismuna lántökum? Jón Guðni Ómarsson skrifar Skoðun Þegar öll hafa svörin skiptir hugsunin mestu Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar Skoðun Bubbi Morthens og endalok alheimsins Kristján Logason skrifar Skoðun Þýsklendingar á meðal vor Darri Eyþórsson skrifar Skoðun Þöllin á þorpinu Jakob Tryggvason skrifar Skoðun Þjóðin sagði nei. En „látum eins og ekkert sé…” Íris Erlingsdóttir skrifar Skoðun Málshraðasögur Eva Hauksdóttir skrifar Skoðun Búrkuball í inngildingarviku Þórarinn Hjartarson skrifar Skoðun Þjóðaratkvæðgreiðslan: Aðild að Evrópusambandinu hafnað Kristinn H. Gunnarsson skrifar Skoðun Blekking litla samfélagsins Sævar Þór Jónsson skrifar Skoðun Farsælt samstarf sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu í 50 ár Páll Björgvin Guðmundsson skrifar Skoðun Bókun 35: Munurinn á stjórnarskrá Noregs og Íslands Júlíus Valsson skrifar Skoðun Kærleikur er pönk Guðný Þorsteinsdóttir skrifar Sjá meira
Skoðun Blómleg ferðaþjónusta skilar sér heim til íslenskra samfélaga Sigfinnur Björnsson skrifar
Skoðun Óþægilegar niðurstöður gera könnun ekki ómarktæka Ingrid Kuhlman,Svanur Sigurbjörnsson skrifar
Skoðun Farsælt samstarf sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu í 50 ár Páll Björgvin Guðmundsson skrifar