Ykkur er óhætt að treysta okkur Jón Steindór Valdimarsson skrifar 20. maí 2026 14:18 Alþingismenn taka á næstu dögum ákvörðun um hvort hlusta eigi eftir svari þjóðarinnar við einfaldri spurningu: Á Ísland að hefja á ný aðildarviðræður við Evrópusambandið? Sérhverjum kjósanda í landinu fyllilega treystandi til þess svara spurningunni af eigin hyggjuviti eins og hann gerir reglulega í lýðræðislegum kosningum. Alþingismenn sem sækja umboð sitt til almennings í almennum kosningum ættu að vera glaðir í hjarta og sinni þegar þeir fela kjósendum sínum það verkefni að svara einfaldri spurningu – beint og milliliðalaust. Það er óhætt að treysta okkur. Gildar ástæður Friður, mannréttindi, breytt heimsmynd, viðskiptahagsmunir, öryggis- og varnarmál í víðum skilningi, sífellt stækkandi og valdameiri fyrirtækjasamsteypur og tæknirisar eru dæmi um stór og flókin viðfangsefni sem varða Ísland miklu. Hegðun stórvelda á borð við Bandaríkin og Rússland, og raunar annarra stórvelda, er að breyta þeirri heimsmynd sem við höfum búið við og treyst. Leikreglur í alþjóðasamskiptum eru greinilega að breytast mjög til verri vegar fyrir lítil og millistór ríki. Það eitt og sér kallar á endurmat á stöðu Íslands í samfélagi þjóðanna og beinir augum okkar að Evrópusambandinu, en innan þess er þétt og mikil samvinna fullvalda ríkja, sem öll eru lítil og meðalstór. Þau standa frammi fyrir nákvæmlega sömu spurningum og verkefnum og við. Grundvöllurinn Í 2. grein sáttmálans um ESB segir: Gildin, sem liggja til grundvallar Sambandinu, eru virðing fyrir mannlegri reisn, frelsi, lýðræði, jafnrétti, réttarríkið og virðing fyrir mannréttindum, þ.m.t. réttindum þeirra sem tilheyra minnihlutahópum. Þessi gildi eru sameiginleg aðildarríkjunum í samfélagi sem einkennist af fjölhyggju, banni við mismunun, umburðarlyndi, réttlæti, samstöðu og jafnrétti karla og kvenna. Flestir Íslendingar geta tekið undir þessi gildi og okkar íslenska samfélag er reist á þessum sömu gildum og Evrópusambandið hefur sett sér í grundvallarsáttmála sínum. Skoðanir eru skiptar Rétt er að taka fram að ég hef í marga áratugi verið staðfastlega þeirrar skoðunar að Ísland eigi að verða aðili að Evrópusambandinu og vera virkur þátttakandi í þessu mikla verkefni sem þar er unnið. Sú afstaða hefur styrkst eftir því sem árin líða. Ég geri mér líka fulla grein fyrir því að margir eru að sama skapi staðfastlega þeirrar skoðunar að Ísland eigi alls ekki að verða aðili að Evrópusambandinu. Svo eru líka margir sem hafa ekki mótað sér skoðun eða hafa ekki sterkar skoðanir á aðild Íslands að Evrópusambandinu en eru tilbúnir til þess að velta málinu fyrir sér og taka afstöðu til þess þegar samningur liggur fyrir. Bara ein leið fær Óhætt er að fullyrða að rökin með og á móti aðild eru bæði efnisleg og tilfinningaleg og afstaða fólks og skoðanir mótast af því. Hart er deilt um staðreyndir um hvað aðild felur í sér, hverjir kunni að vera kostir hennar og gallar. Þá er ekki síður deilt um hvort hægt sé að ná samningum eða viðunandi lausnum um atriði sem varða mikla hagsmuni Íslands. Engin leið er að fullyrða um þessi atriði með fullri vissu nema með því að fullgera aðilarsamning Þetta er eina leiðin til þess að komst til botns í málinu og hana eigum við að fara. Trúlega eru litlar líkur á því að sá dagur renni upp að allir eða flestir verði sömu skoðunar í þessu máli, frekar en í öðrum stórum ágreiningsmálum. Þess vegna er gott að við erum svo heppin að búa við lýðræði og skoðanfrelsi sem felur í sér að við höfum tól og tæki til þess að leiða erfið mál til lykta. Ég segi JÁ þann 29. ágúst. Höfundur er lögfræðingur. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Jón Steindór Valdimarsson Skoðun: Þjóðaratkvæðagreiðsla um ESB-viðræður Mest lesið Ef Ísland gengur í Evrópusambandið flyt ég til Danmerkur Benedikt Jóhannesson Skoðun Skítamixsumarið mikla Hulda Hallgrímsdóttir Skoðun Gætum við haft það betra? Eydís Ásbjörnsdóttir Skoðun 30 dæmi um villandi framsetningu í efnahagsgreiningu Áfram Íslands Gauti B. Eggertsson Skoðun Þessir þröngsýnu ungu bændur Sunna Þórarinsdóttir Skoðun Ísland á eilífa hagsmuni en ekki eilífa bandamenn Lára Herborg Ólafsdóttir Skoðun Það eru breyttir tímar Þóroddur Ingvarsson Skoðun Þarftu að vita mikið um ESB til að kjósa 29. ágúst? Árný Elínborg Ásgeirsdóttir Skoðun Já við fleiri verkfærum fyrir byggðir landsins Arna Lára Jónsdóttir Skoðun Samningaviðræður um Evrópusambandsaðild, já eða nei? Magnús Tumi Guðmundsson Skoðun Skoðun Skoðun Því er ekki betur vandað til verka? Fanný Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Hvaða samningsrammi gildir? Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Gullasninn Guðjón Þórir Sigfússon skrifar Skoðun Samningaviðræður um Evrópusambandsaðild, já eða nei? Magnús Tumi Guðmundsson skrifar Skoðun SFS, hagsmunir og sannleikurinn Þórólfur Matthíasson skrifar Skoðun Daði í baði Bjarnheiður Hallsdóttir skrifar Skoðun Hégómi Haukur Eggertsson skrifar Skoðun Við getum þetta sjálf – en hver græðir á því? Margrét Högnadóttir skrifar Skoðun Þarf fimm háskólagráður til að segja já? Berglind Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Já, já eða nei Þorsteinn Bergsson skrifar Skoðun Hvar má sleppa taumnum? Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Um sameiginleg verðmæti og veikleika stjórnkerfisins Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Nei við hindrunum - Ákvarðanir um Ísland á Íslandi Guðmundur Fertram Sigurjónsson skrifar Skoðun Ísland á eilífa hagsmuni en ekki eilífa bandamenn Lára Herborg Ólafsdóttir skrifar Skoðun Lífeyrissjóðirnir og aðalfundur Icelandair Kjartan Björgvinsson skrifar Skoðun Ísland og Færeyjar, yfirráð yfir auðlindum og fullveldi Ásgeir Daníelsson skrifar Skoðun Evrópskir hægrimenn eru Evrópusinnar Svavar Halldórsson skrifar Skoðun Evrópa - frá velferð til vígvæðingar Ólöf Benediktsdóttir skrifar Skoðun Ekki láta plata þig þann 29. ágúst Sveinn Atli Gunnarsson skrifar Skoðun Hver á fiskinn – og hvar verða verðmætin til? Baldur Johnsen skrifar Skoðun Gögnin sýna að Evrópa er langmikilvægasta markaðssvæði Íslands Gísli Hjálmtýsson skrifar Skoðun Grænland – áttu við Ísland? Damien Degeorges skrifar Skoðun Skítamixsumarið mikla Hulda Hallgrímsdóttir skrifar Skoðun Vextir, verðbólga, verðtrygging og íslenska veðráttan Árni Rúnar Þorvaldsson skrifar Skoðun 30 dæmi um villandi framsetningu í efnahagsgreiningu Áfram Íslands Gauti B. Eggertsson skrifar Skoðun Já til að sjá – áhættuspil? Guðmundur Edgarsson skrifar Skoðun Það eru breyttir tímar Þóroddur Ingvarsson skrifar Skoðun Er íslensk útgerð og kvótakerfi góð ástæða til að kjósa já 29. ágúst? Arndís Vala Arnfinnsdóttir skrifar Skoðun Ef Ísland gengur í Evrópusambandið flyt ég til Danmerkur Benedikt Jóhannesson skrifar Skoðun ESB hefur styrkt gróðahyggju á kostnað félagshyggju Ögmundur Jónasson skrifar Sjá meira
Skoðun 30 dæmi um villandi framsetningu í efnahagsgreiningu Áfram Íslands Gauti B. Eggertsson skrifar
Skoðun Er íslensk útgerð og kvótakerfi góð ástæða til að kjósa já 29. ágúst? Arndís Vala Arnfinnsdóttir skrifar