Hvað verður gert á aðalfundinum á morgun Eiríkur? Björn Sævar Einarsson skrifar 20. maí 2026 09:05 Opið bréf til stjórnarformanns Haga. Ágæti Eiríkur S. Jóhannsson! Á morgun er aðalfundur Haga. Þar verður glatt á hjalla ef marka má dagskrá. Forvarnarsamtökin Fræðsla og forvarnir - félag áhugafólks um forvarnir og heilsueflingu, Foreldrasamtök gegn áfengisauglýsingum, Bindindissamtökin IOGT á Íslandi og SAFF-Samstarf félagasamtaka í forvörnum, vilja gjarnan gefa Högum ráð varðandi fundinn. Forvarnarsamtök ganga út frá því að Hagar muni á fundinum ákveða hvað rétt sé að gera nú þegar netsala áfengis ykkar í gegnum Hagkaup og Hagar Wine - Veigar hefur verið dæmd ólögleg í héraðsdómi 8. apríl sl. Ætla Hagar að vinna gegn niðurstöðu héraðsdóms og ríkisstjórnar? Þá göngum við einnig út frá því að ykkur og öðrum áfengisnetsölum sé kunnugt um að ríkisstjórnin hefur, eins og héraðsdómur, kveðið skýrt upp úr með það að áfengisnetsalan sem þið stundið er ólögleg. Það gerði ríkisstjórnin í svari sínu til Eftirlitsstofnun EFTA (ESA) þann 21. apríl sl. Spurningar ESA voru nokkrar, en svar við spurningu 6 lýtur að ykkur. Hér er svar ríkisstjórnarinnar á ensku og hér er íslensk þýðing á svari ríkisstjórnarinnar. Þarna segir „Íslensk stjórnvöld telja ekki að starfsemi sem felur í sér geymslu áfengis innanlands og síðar afhendingu innanlands teljist einkainnflutningur neytenda. „Innflutningur“ vísar til þess að flytja vörur yfir landamæri frá öðru ríki. Einkainnflutningur krefst því þess að einstaklingurinn sjálfur sé innflytjandi, kaupi vöruna af erlendum seljanda og beri ábyrgð og kostnað af því að flytja hana yfir landamæri til Íslands. Viðskiptamódel þar sem fyrirtæki flytur inn áfengi til Íslands, geymir það í innlendu vöruhúsi og afgreiðir síðan pantanir með afhendingu innanlands úr þeim birgðum telst innlend smásala en ekki einkainnflutningur.” Skýrara getur þetta ekki verið. Þið eruð samkvæmt þessu lögbrjótar og vinnið gegn áfengisstefnunni, lýðheilsustefnu Íslands til 2030 og heilbrigðisstefnu Íslands tii ársins 2030. Mega Hagar hvað sem er? Geta Hagar, sem eru að langmestu leyti, um 80%, í eigu lífeyrissjóða landsins, staðið fyrir ólöglegri sölustarfsemi? Geta Hagar unnið að því að auka neyslu áfengis með þeim vanda sem því tilheyrir? Geta Hagar unnið gegn meginstefnum stjórnvalda á heilbrigðis- og lýðheilsusviði? Geta Hagar kallað gríðarlega há fjárútlát yfir ríkissjóð með því að grafa undan lýðheilsu, vernd barna og ungmenna? Geta Hagar kallað þjáningar, veikindi og félagslegan vanda yfir fjölda manns vegna afleiðinga aukinnar áfengissölu? Mega Hagar að gera hvað sem er til að græða peninga? Lúta Hagar engum mörkum? Nei, það getur ekki verið. Ætlið þið gegn eigin gildum og reglum? Nú í apríl sendu sjóðsfélagar lífeyrissjóðum sínum sem eiga mestanpart Haga erindi til að mótmæla því að sjóðirnir þeirra ættu í fyrirtæki sem stundar ólöglega starfsemi sem grefur undan ofangreindum stefnum sem samþykktar hafa verið á Alþingi og allar helstu heilbrigðisstéttir landsins og forvarnarsamtök hafa fylkt sér um. Kröfðust félagarnir þess að sjóðirnir beittu sér fyrir því að Hagar stöðvi hina ólögmætu áfengissölu strax. Yrðu forsvarsmenn Haga ekki við því ættu lífeyrissjóðirnir að draga allt hlutafé sitt úr Högum. Þar kom einnig fram að framferði Haga gengur þar að auki þvert á yfirlýst gildi og reglur Haga, en í 1. gr. Siðareglna birgja Haga og dótturfélaga segir m.a. “Hagar leggja ríka áherslu á sjálfbærni og samfélagslega ábyrgð í allri starfsemi sinni og vilja láta gott af sér leiða í sátt við umhverfi og samfélag. Siðareglum þessum er ætlað að stuðla að því að samstæðan og birgjar hennar verði í sameiningu hreyfiafl til góðra verka. Siðareglur Haga ná til allra birgja samstæðunnar og er birgjum gert að tryggja framfylgd þeirra gagnvart aðfangakeðju sinni.” Í 3. gr. Sjálfbærnistefnu Haga hf. segir m.a “Hagsmunir neytenda og lýðheilsa eru höfð í fyrirrúmi í starfsemi Haga.” Miðað við stöðu máls þarf að loka áfengissölunni strax Þótt þú hafir ekki svarað fyrra opna bréfi mínu frá ágúst 2024 er vonast eftir að Hagar þiggi ráð forvarnarsamtaka. Miðað við stöðu þessa máls og reglur og gildi Haga er einungis ein rétt leið í stöðunni. Hún er sú að Hagar loki fyrir netsölu áfengis í gegnum Hagkaup og Hagar Wine - Veigar strax og láti þannig af starfsemi sem héraðsdómur hefur komist að niðurstöðu um að sé ólögmæt þann 8. apríl og ríkisstjórn hefur staðfest að sé einnig hennar niðurstaða þann 21. apríl. Miðað við stöðu málsins er þetta hin eina rétta leið. Hagar eiga líka að sjálfsögðu að fara eftir eigin siðareglum og gildum. Að öðrum kosti er fyrirtækið Hagar siðlaust og óábyrgt. Höfundur er formaður IOGT á Íslandi. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Mest lesið Ef Ísland gengur í Evrópusambandið flyt ég til Danmerkur Benedikt Jóhannesson Skoðun Skítamixsumarið mikla Hulda Hallgrímsdóttir Skoðun Gætum við haft það betra? Eydís Ásbjörnsdóttir Skoðun 30 dæmi um villandi framsetningu í efnahagsgreiningu Áfram Íslands Gauti B. Eggertsson Skoðun Þessir þröngsýnu ungu bændur Sunna Þórarinsdóttir Skoðun Ísland á eilífa hagsmuni en ekki eilífa bandamenn Lára Herborg Ólafsdóttir Skoðun Það eru breyttir tímar Þóroddur Ingvarsson Skoðun Þarftu að vita mikið um ESB til að kjósa 29. ágúst? Árný Elínborg Ásgeirsdóttir Skoðun Já við fleiri verkfærum fyrir byggðir landsins Arna Lára Jónsdóttir Skoðun Samningaviðræður um Evrópusambandsaðild, já eða nei? Magnús Tumi Guðmundsson Skoðun Skoðun Skoðun Því er ekki betur vandað til verka? Fanný Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Hvaða samningsrammi gildir? Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Gullasninn Guðjón Þórir Sigfússon skrifar Skoðun Samningaviðræður um Evrópusambandsaðild, já eða nei? Magnús Tumi Guðmundsson skrifar Skoðun SFS, hagsmunir og sannleikurinn Þórólfur Matthíasson skrifar Skoðun Daði í baði Bjarnheiður Hallsdóttir skrifar Skoðun Hégómi Haukur Eggertsson skrifar Skoðun Við getum þetta sjálf – en hver græðir á því? Margrét Högnadóttir skrifar Skoðun Þarf fimm háskólagráður til að segja já? Berglind Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Já, já eða nei Þorsteinn Bergsson skrifar Skoðun Hvar má sleppa taumnum? Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Um sameiginleg verðmæti og veikleika stjórnkerfisins Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Nei við hindrunum - Ákvarðanir um Ísland á Íslandi Guðmundur Fertram Sigurjónsson skrifar Skoðun Ísland á eilífa hagsmuni en ekki eilífa bandamenn Lára Herborg Ólafsdóttir skrifar Skoðun Lífeyrissjóðirnir og aðalfundur Icelandair Kjartan Björgvinsson skrifar Skoðun Ísland og Færeyjar, yfirráð yfir auðlindum og fullveldi Ásgeir Daníelsson skrifar Skoðun Evrópskir hægrimenn eru Evrópusinnar Svavar Halldórsson skrifar Skoðun Evrópa - frá velferð til vígvæðingar Ólöf Benediktsdóttir skrifar Skoðun Ekki láta plata þig þann 29. ágúst Sveinn Atli Gunnarsson skrifar Skoðun Hver á fiskinn – og hvar verða verðmætin til? Baldur Johnsen skrifar Skoðun Gögnin sýna að Evrópa er langmikilvægasta markaðssvæði Íslands Gísli Hjálmtýsson skrifar Skoðun Grænland – áttu við Ísland? Damien Degeorges skrifar Skoðun Skítamixsumarið mikla Hulda Hallgrímsdóttir skrifar Skoðun Vextir, verðbólga, verðtrygging og íslenska veðráttan Árni Rúnar Þorvaldsson skrifar Skoðun 30 dæmi um villandi framsetningu í efnahagsgreiningu Áfram Íslands Gauti B. Eggertsson skrifar Skoðun Já til að sjá – áhættuspil? Guðmundur Edgarsson skrifar Skoðun Það eru breyttir tímar Þóroddur Ingvarsson skrifar Skoðun Er íslensk útgerð og kvótakerfi góð ástæða til að kjósa já 29. ágúst? Arndís Vala Arnfinnsdóttir skrifar Skoðun Ef Ísland gengur í Evrópusambandið flyt ég til Danmerkur Benedikt Jóhannesson skrifar Skoðun ESB hefur styrkt gróðahyggju á kostnað félagshyggju Ögmundur Jónasson skrifar Sjá meira
Skoðun 30 dæmi um villandi framsetningu í efnahagsgreiningu Áfram Íslands Gauti B. Eggertsson skrifar
Skoðun Er íslensk útgerð og kvótakerfi góð ástæða til að kjósa já 29. ágúst? Arndís Vala Arnfinnsdóttir skrifar