Íbúar funda aftur um stöðu Kaffistofunnar Lovísa Arnardóttir skrifar 27. apríl 2026 14:52 Til stendur að opna Kaffistofuna í húsnæðinu í miðjunni. Vísir/Vilhelm Hópur íbúa í hverfi 108 hefur boðað til opins íbúafundur í kvöld til að ræða stöðu Kaffistofu Samhjálpar. Úrskurðarnefnd umhverfis- og auðlindamála hafnaði nýlega kröfur þeirra um að stöðva framkvæmdir á meðan nefndin fjallar um stjórnsýslukæru íbúanna. Til stendur að opna Kaffistofuna í húsnæði við Grensásveg 46.
Í tilkynningu frá íbúum um fundinn kemur fram að á fundinum muni, meðal annars, koma fram fulltrúi lögreglu, sálfræðingur og sérfræðingur í öryggismálum. Einnig verði kynntar reynslusögur sem geta nýst íbúum og skapað grundvöll fyrir upplýsta umræðu. Þá segir að á fundinum verði einnig kynnt gögn um þann hóp sem sækir þjónustu Kaffistofunnar en hópurinn er afar fjölbreyttur. Hópur íbúa hefur lýst yfir miklum áhyggjum vegna komu Kaffistofunnar í hverfið og þá sérstaklega íbúar sem búa í nálægð við Grensásveg 46 en íbúðir eru að ofan og bak við. Haldinn var fjölmennur íbúafundur í haust þar sem kom fram mikil mótstaða við opnun Kaffistofunnar í hverfinu. Í tilkynningu frá íbúum segir að fundurinn í kvöld sé framhald af þeirri umræðu sem þar fór fram. Fundurinn hefst klukkan 20 í kvöld og er í Hvassaleitisskóla. „Fundinum er ætlað að skapa vettvang fyrir upplýsta og málefnalega umræðu þar sem íbúar geta kynnt sér málið og komið sjónarmiðum sínum á framfæri,“ segir að lokum. Ótti við afbrot og vímuefnaneyslu Íbúar hafa lýst áhyggjum af vímuefnaneyslu gesta Kaffistofunnar og sömuleiðis ótta við fjölgun innbrota og önnur afbrot og telja að starfsemin eigi ekki heima í miðju íbúðahverfi. Í samantekt Lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu um útköll í eða við Kaffistofuna 2023 til 2025 kemur fram að lögregla hafi á tímabilinu verið kölluð til alls 149 sinnum, átján sinnum árið 2023, fimmtíu sinnum árið 2024 og svo 81 sinnum árið 2025. Flestar tilkynningar vörðuðu aðstoð við borgarana eða almenna tilkynningu. Í samantektinni kemur fram að aðstoð við borgarana fól oftast í sér að óvelkomnum var vísað á brott, aðstoð vegna ölvunar eða annarlegs ástands og aðstoð vegna veikinda. Tilkynning var oftast vegna óláta/slagsmála og afbrigðilegrar hegðunar. Tvær stórfelldar líkamsárásir Á þremur árum hafa samtals þrettán líkamsárásir verið skráðar við kaffistofu Samhjálpar við Borgartún og Hátún, þar af tvær stórfelldar. Í samantektinni kemur fram að hún er unnin að beiðni Reykjavíkurborgar og er dagsett 15. apríl á þessu ári. Tekin voru út gögn um öll mál tímabilið 1.1.2023 til 30.9.2025 þar sem vettvangur var Borgartún 1 og frá 1.10.2025 til 31.12.2025 við Hátún 2 þar sem kaffistofan er tímabundið. Fjallað var um það fyrr í mánuðinum að hópur íbúa hefði lagt fram stjórnsýslukæru vegna samþykkis Reykjavíkurborgar á byggingarleyfisumsókn. Í kærunni er meðal annars byggt á því að starfsemin sé ranglega flokkuð og að hún krefjist breytinga á deiliskipulagi. Kröfu íbúanna um stöðvun framkvæmda var hafnað af nefndinni en samkvæmt svörum frá nefndinni er hennar viðmið að afgreiða mál innan þriggja mánaða frá því að hún móttekur þau. Engar óafturkræfar breytingar Í úrskurði nefndarinnar segir að í ljósi þess að ekki er um óafturkræfar breytingar á húsnæði að ræða sé ekki talin knýjandi þörf á því að stöðva þær á meðan málið er til meðferðar hjá úrskurðarnefndinni. „Þá má og líta til þess að þrátt fyrir að framkvæmdir séu hafnar á grundvelli byggingarleyfis hefur hin umdeilda starfsemi sem fyrirhuguð er í húsnæðinu ekki hafist. Reikna má með að úrskurður nefndarinnar í máli þessu muni liggja fyrir áður en framkvæmdum lýkur. Verður kröfu kærenda þar um því hafnað,“ segir að lokum í bráðabirgðaúrskurðinum. Framkvæmdir hafnar Guðrún Ágústa Guðmundsdóttir framkvæmdastýra Samhjálpar segir framkvæmdir hafnar í húsnæðinu. Samhjálp tók það upphaflega á leigu í haust en hafa frá því að þau misstu húsnæði sitt í Borgartúni sinnt starfseminni í kjallara í húsnæði Fíladelfíusöfnuðarins. Guðrún Ágústa segir að hún vonist til þess að geta opnað nýja Kaffistofu á Grensásvegi um mánaðarmótin maí júní.
Kaffistofa Samhjálpar Fíkn Veitingastaðir Geðheilbrigði Efnahagsmál Fjármál heimilisins Tengdar fréttir Harma að áhyggjur íbúa séu hundsaðar Fulltrúar Viðreisnar, Framsóknar og Sjálfstæðisflokks í umhverfis- og skipulagsráði samþykktu ekki umsókn Samhjálpar um breytingar á húsnæði sem þau hafa tekið á leigu við Grensásveg og segja í bókunum að þau hafi áhyggjur af ósætti íbúa við opnun kaffistofunnar. Þau harma að áhyggjur íbúa séu hundsaðar. 27. mars 2026 17:02 Mánudagsmorgunn í Kaffistofu Samhjálpar Það er mánudagsmorgunn í Kaffistofu Samhjálpar, klukkan er tíu og það er nýbúið að opna. Það er matarlykt og kliður í loftinu. Það er verið að bera fram morgunmat og setið við flest borð. Kaffistofan er tímabundið staðsett í sal Fíladelfíusöfnuðarins, á neðri hæð í Hátúni. Það er bjart inni og líklega um 40 til 50 manns í salnum. 16. febrúar 2026 06:30 Skora á borgina að virða íbúalýðræði og koma í veg fyrir „þrálátar deilur“ Hópur íbúa í hverfi 108 í Reykjavík hafa sent frá sér yfirlýsingu í kjölfar íbúafundar sem haldinn var í síðustu viku vegna fyrirhugaðar opnunar kaffistofu Samhjálpar við Grensásveg þar sem þess er krafist að borgaryfirvöld finni starfseminni aðra og meira viðeigandi staðsetningu. Um tvö hundruð manns hafi mætt á fundinn og það hafi verið augljós skoðun íbúa á fundinum að staðsetningin sé óheppileg. Því sé skorað á Reykjavíkurborg að „virða íbúalýðræði og koma í veg fyrir þrálátar deilur í framtíðinni,“ eins og það er orðað í yfirlýsingunni. 10. febrúar 2026 09:05 Mest lesið Íslendingurinn var nemandi í lýðháskóla Innlent Furðar sig á þögn yfir „einu helsta áhyggjuefni Íslands“ Innlent Maðurinn fannst látinn í gilinu Innlent Ísland kunni að kreista veski ríkra ferðamanna Innlent Inga vill ekki setja „tugi milljarða í loftslagsmál“ Innlent „Við búum í brjáluðum heimi“ Erlent Barist gegn lúsmýinu: „Einhvers staðar eru þær að fjölga sér“ Innlent Konan ákærð fyrir manndráp á Edition Innlent Handteknu hafa komið áður við sögu hjá lögreglu Innlent Eden Mining vill ekki sjá málið fyrir dómstólum Innlent Fleiri fréttir Jón Pétur segir enga feðraveldisrembu í „árþúsunda náttúruvali“ Heimilt að nota rafrænt eftirlit í nálgunarbannsmálum Virðist vefjast fyrir mönnum að eyða ekki um efni fram „Var þetta einhver skets?“ Inga kemur Ingó til varnar Íbúar funda aftur um stöðu Kaffistofunnar Konan ákærð fyrir manndráp á Edition Eden Mining vill ekki sjá málið fyrir dómstólum Ísland kunni að kreista veski ríkra ferðamanna Íslendingurinn var nemandi í lýðháskóla „Mér finnst þetta ákaflega dapurleg framganga“ Sjö þúsund störf gætu verið unnin af gervigreind Vill hætta veiðum en græna ljós Bjarna gildi Hitafundur í utanríkismálanefnd og ráðherra boðar breytingar á hvalveiðilögum Inga vill ekki setja „tugi milljarða í loftslagsmál“ Beitir sér ekki sérstaklega fyrir því að spurningunni verði breytt Stjórnarþingmaður segir Hafró í bullandi pólitík Handteknu hafa komið áður við sögu hjá lögreglu Bein útsending: Kristrún svarar spurningum um þjóðaratkvæðagreiðslu Tveir handteknir í tengslum við stórfellda líkamsárás Furðar sig á þögn yfir „einu helsta áhyggjuefni Íslands“ Krónu kastað fyrir aurinn í fjármögnun skóla Maðurinn fannst látinn í gilinu Sást til einstaklings ofan í gili við Háafoss Skrítið að dómsmálaráðherra blandi sér í umræðuna Barist gegn lúsmýinu: „Einhvers staðar eru þær að fjölga sér“ Fallhlífin byrjaði að snúast eftir opnun Stál í stál og sammála um fátt á fundi um ESB Muni vitanlega gera kröfu um sæti í meirihluta Segir Miðflokkinn selja snákaolíu Sjá meira
Harma að áhyggjur íbúa séu hundsaðar Fulltrúar Viðreisnar, Framsóknar og Sjálfstæðisflokks í umhverfis- og skipulagsráði samþykktu ekki umsókn Samhjálpar um breytingar á húsnæði sem þau hafa tekið á leigu við Grensásveg og segja í bókunum að þau hafi áhyggjur af ósætti íbúa við opnun kaffistofunnar. Þau harma að áhyggjur íbúa séu hundsaðar. 27. mars 2026 17:02
Mánudagsmorgunn í Kaffistofu Samhjálpar Það er mánudagsmorgunn í Kaffistofu Samhjálpar, klukkan er tíu og það er nýbúið að opna. Það er matarlykt og kliður í loftinu. Það er verið að bera fram morgunmat og setið við flest borð. Kaffistofan er tímabundið staðsett í sal Fíladelfíusöfnuðarins, á neðri hæð í Hátúni. Það er bjart inni og líklega um 40 til 50 manns í salnum. 16. febrúar 2026 06:30
Skora á borgina að virða íbúalýðræði og koma í veg fyrir „þrálátar deilur“ Hópur íbúa í hverfi 108 í Reykjavík hafa sent frá sér yfirlýsingu í kjölfar íbúafundar sem haldinn var í síðustu viku vegna fyrirhugaðar opnunar kaffistofu Samhjálpar við Grensásveg þar sem þess er krafist að borgaryfirvöld finni starfseminni aðra og meira viðeigandi staðsetningu. Um tvö hundruð manns hafi mætt á fundinn og það hafi verið augljós skoðun íbúa á fundinum að staðsetningin sé óheppileg. Því sé skorað á Reykjavíkurborg að „virða íbúalýðræði og koma í veg fyrir þrálátar deilur í framtíðinni,“ eins og það er orðað í yfirlýsingunni. 10. febrúar 2026 09:05