Frelsi foreldra eða forsjárhyggja ríkisins? Bergþór Ólason skrifar 27. apríl 2026 09:33 Það er merkilegt hvernig sumir stjórnmálamenn tala um frelsi – svo lengi sem það er frelsi til að velja það sem þeim sjálfum þykir réttast. En þegar foreldrar vilja ráða eigin lífi, eigin tíma og skipuleggja sig með hagsmuni barns og fjölskyldu í huga, þá breytist tónninn. Þá verður frelsið skyndilega að „snákaolíu“. Undirritaður hefur ítrekað lagt fram þingmál á Alþingi sem snýst um einfalt og sanngjarnt markmið: að færa foreldrum aukið svigrúm til að ráðstafa fæðingarorlofi sínu sjálfir. Ekki til að skipa þeim fyrir, heldur til að treysta þeim. Ekki til að ýta undir eitt lífsmynstur, heldur til að opna fyrir fjölbreytni. Í grunninn er spurningin þessi: treystum við foreldrum – eða ekki? Í pistli dómsmálaráðherra, Þorbjargar Sigríðar Gunnlaugsdóttur, sem birtist á Facebook síðu hennar í gær, má lesa kunnuglegan boðskap. Hún varar við heimgreiðslum*, talar um tekjutap kvenna og dregur upp mynd af samfélagi þar sem konur hverfa af vinnumarkaði um árabil ef þær fá meira svigrúm. Þetta er klassísk nálgun Viðreisnar: fólk má gjarnan velja – svo lengi sem það velur það sem Viðreisn telur rétt. En hér er lykilatriði sem gleymist viljandi: frelsi er ekki skipun. Það að heimila foreldrum að verja meiri tíma með börnum sínum þýðir ekki að þeir geri það allir. Það þýðir einfaldlega að þeir sem vilja – fá að gera það – án þess að vera refsað af kerfinu. Ráðherrann talar um „skilaboð út í atvinnulífið“. En hvaða skilaboð eru það þegar ríkið segir foreldrum að eina rétta leiðin sé að koma barni sem fyrst inn í kerfi? Að heimilið sé síðri kostur? Að umönnun foreldra sé eitthvað sem þurfi að lágmarka? Slík skilaboð eru ekki framsækin hugsun. Slík skilaboð eru gamaldags miðstýring í nýjum umbúðum. Það er vissulega rétt að leikskólakerfið þarf að vera öflugt. En það er ekki annaðhvort–eða. Það er ekki þannig að annað útiloki hitt. Það er vel hægt að byggja upp leikskóla á sama tíma og stjórnvöld treysta foreldrum til að taka eigin ákvarðanir. Sú hugmynd að foreldrar – og þá sérstaklega mæður – séu svo veikburða gagnvart eigin aðstæðum að ríkið þurfi að vernda þær fyrir eigin vali er í senn niðrandi og úrelt. Kannski er „snákaolían“ ekki fólgin í því að treysta foreldrum. Kannski er hún fólgin í þeirri trú að stjórnmálamenn viti alltaf betur. Höfundur er þingmaður Miðflokksins. P.s. Til gamans og upp á samhengið að gera er rétt að halda því til haga að snákaolíu-viðbrögð dómsmálaráðherra eru tilkomin vegna klásúlunnar hér að neðan, sem birtist í áherslum framboðs Miðflokksins í Kópavogi: * „Auka þarf stuðning að fæðingarorlofi loknu og vill Miðflokkurinn efla heimgreiðslur til foreldra til að brúa bilið á milli fæðingarorlofs og pláss í leikskóla. Miðflokkurinn leggur til að greiðslurnar nemi allt að helmingi þess sem Kópavogsbær greiðir með hverju leikskólaplássi. Margir foreldrar vilja vera lengur heima og er það staðreynd að yngstu börnin krefjast fleiri starfsmanna. Heimgreiðslur ýta bæði undir valfrelsi foreldra og létta á þrýstingi um leikskólapláss að fæðingarorlofi loknu.“ Meira þarf ekki til. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Bergþór Ólason Skoðun: Sveitarstjórnarkosningar 2026 Börn og uppeldi Mest lesið Þjóðin sagði nei – megum við þá ganga frá eftir okkur? Hilmar Kristinsson Skoðun Foreldrar og þjálfarar: Hvar liggja mörkin? Ragna Ingólfsdóttir Skoðun Utanríkisráðherra setur EES-samninginn í uppnám Gunnar Bragi Sveinsson Skoðun Ríkisstjórnin tapaði – og ætti að segja af sér Eldur Smári Kristinsson Skoðun Eigum við ekki bara að taka til heima hjá okkur? Guðjón Idir Skoðun Stríð ESB gegn jöfnuði og velferð Andri Sigurðsson Skoðun Opið bréf til óákveðinna kjósenda Gylfi Zoega Skoðun The EU Referendum Dorrit Moussaieff Skoðun Mun ESB hjálpa við vegagerð á Íslandi? Jón Þorvaldur Heiðarsson Skoðun Halldór 29.08.26 Halldór Skoðun Skoðun Utanríkisráðherra setur EES-samninginn í uppnám Gunnar Bragi Sveinsson skrifar Skoðun Þjóðin sagði nei – megum við þá ganga frá eftir okkur? Hilmar Kristinsson skrifar Skoðun Foreldrar og þjálfarar: Hvar liggja mörkin? Ragna Ingólfsdóttir skrifar Skoðun Ríkisstjórnin tapaði – og ætti að segja af sér Eldur Smári Kristinsson skrifar Skoðun Eigum við ekki bara að taka til heima hjá okkur? Guðjón Idir skrifar Skoðun Hugvekja á Höfuðdaginn Ívar Örn Hauksson skrifar Skoðun Við munum ekki hafa neitt neitunarvald Hjörtur J. Guðmundsson skrifar Skoðun NEI heldur öllu opnu. JÁ er vegferð að lokun Haraldur Ólafsson skrifar Skoðun Hvað græði ég á að segja já? Björn B Björnsson skrifar Skoðun Opið bréf til óákveðinna kjósenda Gylfi Zoega skrifar Skoðun Þyrnirinn sem náði í gegn Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun Stærsta lygin Sverrir Björnsson skrifar Skoðun Hver á þennan bústað, já eða nei? Sigþrúður Ármann skrifar Skoðun Stjórnum okkur sjálf og höfum áhrif í Evrópu Viktor Orri Valgarðsson skrifar Skoðun Hvers virði er velvild Trump? Paal Frisvold skrifar Skoðun Lýðræðisveislan 2026 Birgir Björn Sigurjónsson skrifar Skoðun Ungum Íslendingum er betur borgið utan ESB Jón Gunnar Jónsson skrifar Skoðun Hvaða dyr viljum við hafa opnar? Reynsla Spánar og Portúgals Anna Margrét Bjarnadóttir skrifar Skoðun Veistu hvaða sírenur syngja til þín? Vilbert Gústafsson skrifar Skoðun Það er sitthvað bogið við banana Eggert Gunnarsson skrifar Skoðun Já fyrir íslenskuna! Logi Einarsson skrifar Skoðun Segðu ekki nei, segðu kannski, kannski, kannski Hólmar Örn Finnsson skrifar Skoðun Hverjum treystir þú? María Rut Kristinsdóttir skrifar Skoðun Spænskir strandveiðisjómenn til Íslands Bergþór Ólason skrifar Skoðun Ryksugan hans Halldórs Svanhvít Aðalsteinsdóttir skrifar Skoðun Evrópusambandið byggir ekki á því að aðildarríkin séu sammála. Þvert á móti Martha Árnadóttir skrifar Skoðun Barist fyrir veröld sem var Elías Þórsson skrifar Skoðun Við höfum tekið margar góðar ákvarðanir Hjörtur J. Guðmundsson skrifar Skoðun Kjósum með opnum huga Kristín A. Árnadóttir skrifar Skoðun Um Kanada og Ísland Eliza Reid skrifar Sjá meira
Skoðun Hvaða dyr viljum við hafa opnar? Reynsla Spánar og Portúgals Anna Margrét Bjarnadóttir skrifar
Skoðun Evrópusambandið byggir ekki á því að aðildarríkin séu sammála. Þvert á móti Martha Árnadóttir skrifar