Það gengur svo vel hjá okkur! Kristján Freyr Halldórsson skrifar 9. október 2026 11:01 Ég var svo heppinn að hafa unnið að herferð sem sneri að þjóðarátaki fyrir endurhæfingarmiðstöðina að Reykjalundi í Mosfellsbæ á dögunum. Endurhæfum Reykjalund var yfirskriftin og var einfaldur snúningur á því hvernig þverskurður þjóðar, sem sækir Reykjalund heim, þiggur endurhæfingu eftir áföll hvers konar eða langvinn veikindi - en nú þurftum við þjóðin að snúa taflinu og endurhæfa Reykjalund. Stór landssöfnun átti sér stað í beinni útsendingu í sjónvarpi og við aðstandendur erum full þakklætis og djúpri virðingu gagnvart þjóðinni sem sýndi enn og aftur samtakamátt sinn í verki. Takk! Það sem þó skyggir á þetta allt saman er hversu öfugsnúinn mér finnst svona gjörningur. Er bara eðlilegt að við séum sífellt að leita til þjóðarinnar, fjölskyldufólks um allt land og óska eftir fjárframlagi til þess að halda jafn mikilvægum stofnunum á floti? Kvennaathvarfi, slysavörnum, hjálparsamtökum. Reykjalundur er verulega mikilvægur hlekkur í heilbrigðiskerfi þjóðarinnar. Hvers vegna er þetta ekki partur af kerfinu, á fjárlögum frá ríkinu. Ætlum við bara alltaf að treysta á framlög frá heimilum landsins til að tryggja svona hlutum framhaldslíf? Alltaf skal álíka mikilvægir hlekkir liggja á hakanum þar til við fólkið í landinu tökum þátt í þjóðarátaki. Við kaupum flugelda til að fjármagna hjálparsveitir landsins.Endurhæfing og uppbyggingGengur okkur svona vel? Mér finnst eins og það sé ekki langt síðan að meirihluti þjóðar, í þjóðaratkvæðagreiðslu, hafi kallað í kór að hér væri allt eins og það ætti að vera. Við getum gert þetta sjálf og hér gangi allt svo vel. Ég er þá ekki að tala um Evrópu í þessu samhengi, ég er bara að spyrja hvort okkur gangi virkilega vel? Hvernig gengur okkur fjölskyldum í landinu að sækja heilbrigðiskerfið? Hvar stöndum við í geðheilbrigðismálum? Eru samgöngur mannsæmandi? Menntakerfið? Umönnun aldraðra? Hvar gengur okkur vel? Er það í útgerðinni eða í mótvægisaðgerðum til landbúnaðarins?Jæja, núna er þetta orðið leiðinlegt þras, Kristján! En til að bíta höfuðið af skömminni þá verð ég að nefna hræsnina í mér sjálfum að lokum. Við fyrrgreint þjóðarátak þá talaði ég við fjölda tónlistarfólks sem lagði allt málefninu lið án þess að þiggja krónu. Þetta er ekki í fyrsta skipti sem íslenskt tónlistarfólk sýnir álíka samhug í verki - og mögulega ekki í síðasta sinn (ef ekki er greitt fyrir framkomuna, þá ættum við að koma á fót sérstöku skattaafsláttakerfi). Alltaf mæta þau fyrst á staðinn og leggja hendur á plóg. Á sama tíma sem okkur finnst sjálfsagt, að greiða ekki fólkinu fyrir sína framkomu, þá erum við þjóðin endalaust að skammast yfir fólkinu okkar í menningunni. Þau skuli þiggja verkefnastyrki, við höggvum í grunnstoðirnar, Tónlistarmiðstöð, aðstöðu til æfinga og tónleikahalds - einmitt á meðan íslensk tónlist ber hve hæst hróður lands og þjóðar. Við viljum í raun alltaf bara þiggja. Ekki byggja. Upp. Höfundur er tónlistarmaður og verkefnastjóri. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Mest lesið Kópavogur fjölgar kennurum og fjárfestir í framtíð barna Ásdís Kristjánsdóttir Skoðun Hvernig styðja skal við árangur í Efra-Breiðholti Sæmundur Árni Hermannsson Skoðun Áskorun til stjórnar RÚV: Rekið fréttastjórann Einar Steingrímsson Skoðun Leigubremsan og vönduð lagasetning Gunnar Ármannsson Skoðun Bitna kjarasamningar kennara á börnunum okkar? Sigrún Ólöf Ingólfsdóttir Skoðun Frá gullsöltum til líftæknilyfja Hrönn Stefánsdóttir Skoðun Það gengur svo vel hjá okkur! Kristján Freyr Halldórsson Skoðun 2,5% fyrir alla – nema höfuðstól húsnæðislánanna? Friðrik Björgvinsson Skoðun Tímamót Samúel Guðmundsson Skoðun Hvað fær Ísland fyrir Seyðisfjörð? Ólafur Margeirsson Skoðun Skoðun Skoðun Ertu þroskaheft? Áslaug Þorsteinsdóttir skrifar Skoðun Börn eiga ekki að bera ábyrgð á vandamálum fullorðinna Elísabet Heiða Valdemarsdóttir skrifar Skoðun Hvað fær Ísland fyrir Seyðisfjörð? Ólafur Margeirsson skrifar Skoðun Gerum gott betra – þorum að horfa á allar hliðar Elísabet Reynisdóttir skrifar Skoðun Það gengur svo vel hjá okkur! Kristján Freyr Halldórsson skrifar Skoðun Hver er framtíð litlu hjúkrunarheimilanna á landsbyggðinni? Eydís Inga Sigurjónsdóttir skrifar Skoðun Skammsýni eða skynsemi? Skúli Mogensen skrifar Skoðun Mjúkt net og snjallrassar Unnar Geir Unnarsson skrifar Skoðun Frá gullsöltum til líftæknilyfja Hrönn Stefánsdóttir skrifar Skoðun Orð eiga að hafa merkingu og undirskriftir að skipta máli Guðmundur Halldór Björnsson skrifar Skoðun Hvernig styðja skal við árangur í Efra-Breiðholti Sæmundur Árni Hermannsson skrifar Skoðun 2,5% fyrir alla – nema höfuðstól húsnæðislánanna? Friðrik Björgvinsson skrifar Skoðun Kópavogur fjölgar kennurum og fjárfestir í framtíð barna Ásdís Kristjánsdóttir skrifar Skoðun Hvað kostar stjórnun okkur? Maríanna Magnúsdóttir skrifar Skoðun Forsendubresturinn sem varð að friðarkaupum Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Leigubremsan og vönduð lagasetning Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Leigubremsa er almannahagsmunamál Yngvi Ómar Sigrúnarson skrifar Skoðun Tímamót Samúel Guðmundsson skrifar Skoðun Næsta verðhækkun á ekki að vera sjálfgefin Ingvar Freyr Ingvarsson skrifar Skoðun Börn eftir pöntun Fæðingarorlofssjóðs Bryndís Haraldsdóttir skrifar Skoðun 100 ár af dellu Helgi Tómasson skrifar Skoðun Áskorun til ríkisstjórnarinnar: Ekki fækka borgarfulltrúm úr 23 Í 15! Guðni Freyr Öfjörð skrifar Skoðun Maðurinn sem hringdi í óvininn Einar Bárðarson skrifar Skoðun Samráð sem breytir Karólína Helga Símonardóttir skrifar Skoðun Um bakara og smiði. Hlaðvörp og skráning þeirra hjá Fjölmiðlanefnd Elfa Ýr Gylfadóttir skrifar Skoðun Farsælt framhaldslíf Steinunn Ragnarsdóttir skrifar Skoðun Það sem ég dáist að við íslenskar konur Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Bitna kjarasamningar kennara á börnunum okkar? Sigrún Ólöf Ingólfsdóttir skrifar Skoðun Fíllinn í postulínsbúðinni: Veldisvöxtur breytinganna Árni Sigurðsson skrifar Skoðun Áskorun til stjórnar RÚV: Rekið fréttastjórann Einar Steingrímsson skrifar Sjá meira
Skoðun Börn eiga ekki að bera ábyrgð á vandamálum fullorðinna Elísabet Heiða Valdemarsdóttir skrifar
Skoðun Hver er framtíð litlu hjúkrunarheimilanna á landsbyggðinni? Eydís Inga Sigurjónsdóttir skrifar
Skoðun Orð eiga að hafa merkingu og undirskriftir að skipta máli Guðmundur Halldór Björnsson skrifar
Skoðun Áskorun til ríkisstjórnarinnar: Ekki fækka borgarfulltrúm úr 23 Í 15! Guðni Freyr Öfjörð skrifar
Skoðun Um bakara og smiði. Hlaðvörp og skráning þeirra hjá Fjölmiðlanefnd Elfa Ýr Gylfadóttir skrifar