Að skattleggja fjarlægðir og búsetu fólks Jón Bjarnason skrifar 9. október 2026 12:46 Ísland er land fjarlægðanna. Efnahagur og velferð þjóðarinnar byggir ekki hvað síst á dreifðri búsetu, verndun og nýtinga hinna fjölbreyttu auðlinda til lands og sjávar. Skattlagning og þjónustuskerðing landsbyggðarinnar takmarkar virðisauka í hagkerfi þjóðarinnar sem byggir hvað mest á grunnauðlindum og búsetu hinna dreifðu byggða. Nú stendur landsbyggðin frammi fyrir stöðugt skertri þjónustu og aukinni skatlagningu á fjarlægðir frá höfuðborgarsvæðinu. Hækkun kílómetragjalds og álögut á olíur, bensin og faratæki Ég reyndi að berjast gegn þessum viðhorfum á þingi. "En refurinn bítur sjaldnast nálægt greni sínu", eins og sagt var. Freistingin er að senda reikninguinn fyrst á þá sem fjærst höfuðborginni búa. Þessi upplifun fólks um tvískiptingu þjóðarinnar kom skýrt fram í nýafstaðinni þjóðaratkvæðagreiðslu. Umræðan sem á eftir fylgdi lýsti jafnvel hroka í garð landsbyggðarfólks og atvinnugreina þeirra. Skýrsla um aukna skattlagningu bifreiða og fjarlægða. "Bein gjaldheimta ríkisins af ökutækjum, eldsneyti og akstri hefur verið umfram heildarútgjöld ríkisins til vegasamgangna undanfarin ár samkvæmt nýrri greiningu frá Samtökum iðnaðarins. Samkvæmt greiningunni námu beinar tekjur ríkisins á árunum 2019-2025 af þessum gjaldstofnum samtals 338 milljörðum króna samanborið við 255 milljarða í heildarútgjöld til vegasamgangna. Tekjur umfram útgjöld námu því 83 milljörðum á tímabilinu. Bilið farið vaxandi Bilið milli gjaldheimtu og útgjalda hefur farið vaxandi á síðustu árum. Árið 2025 nam bein gjaldheimta um 64,9 milljörðum, samanborið við 43,9 milljarða í heildarútgjöld til vegasamgangna. Mismunurinn var því um 21 milljarður. Samkvæmt horfum fyrir árið 2026 verður munurinn um 23,1 milljarður. Árið 2027 sker sig sérstaklega úr. Þá er bein gjaldheimta áætluð um 83,9 milljarðar, en heildarútgjöld til vegasamgangna um 50,0 milljarðar. Mismunurinn eykst því í tæplega 34 milljarða,“ segir í greiningu Samtaka Iðnaðarins". Skattlagning landsbyggðar og fjarlægða heftir vöxt, velferðar og virðisauka í atvinnulífi þjóðarinnar Rökin fyrir öllum þessum gjöldum voru að þau færu öll til að bæta og styrkja samgöngukerfið. En svo er alls ekki. Þessi endalausa skattheimta á fjarlægðir skerðir búsetu skilyrði á landsbyggðinni og jafnframt tekjur og virðisauka þeirra atvinnugreina sem stundaðar eru vítt og breytt um landið. Höfundur er fyrrv. alþm. og ráðherra. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Mest lesið Hagræðing Hildar á sannleikanum Kári Sigurðsson,Sonja Ýr Þorbergsdóttir Skoðun Keðjusagarstjórnmál Atli Bollason Skoðun Við skorum á ríkisstjórnina að standa við fyrirheitin og tryggja framtíð Skipholts 37 Hópur listafólks Skoðun Skóli án aðgreiningar má missa sín Kristín Kolbrún Waage Kolbeinsdóttir Skoðun Til kall Drífa Snædal Skoðun Krabbameinsmeðferð lokið en hvað svo? Óttinn við að endurgreinast Þorri Snæbjörnsson Skoðun Að taka á móti myrkrinu Þuríður Santos Stefánsdóttir Skoðun Hvað verður um vinnuna eftir uppsagnir? Ragnhildur Bjarkadóttir Skoðun Telur Samfylkingin að Mette Frederiksen sé rasisti? Elliði Vignisson Skoðun Við eigum matreiðslumenn í fremstu röð Þórir Erlingsson Skoðun Skoðun Skoðun Nokkur orð um röflritun Kristján Logason skrifar Skoðun Alnetið er dautt! Lengi tóri lýðræðið! Geir Sigurður Jónsson skrifar Skoðun Til hvers ætlum við að virkja? Andrés Kristjánsson skrifar Skoðun Ríkið ákveður – sveitarfélögin borga – skólarnir framkvæma Sævar Helgason skrifar Skoðun Hagræðing Hildar á sannleikanum Kári Sigurðsson,Sonja Ýr Þorbergsdóttir skrifar Skoðun Að taka á móti myrkrinu Þuríður Santos Stefánsdóttir skrifar Skoðun Ábyrg sýn í málefnum útlendinga Eiríkur Björn Björgvinsson skrifar Skoðun Við skorum á ríkisstjórnina að standa við fyrirheitin og tryggja framtíð Skipholts 37 Hópur listafólks skrifar Skoðun Þjóðarátak í uppbyggingu hjúkrunarheimila Jónína Björk Óskarsdóttir skrifar Skoðun Krabbameinsmeðferð lokið en hvað svo? Óttinn við að endurgreinast Þorri Snæbjörnsson skrifar Skoðun Keðjusagarstjórnmál Atli Bollason skrifar Skoðun Hvað verður um vinnuna eftir uppsagnir? Ragnhildur Bjarkadóttir skrifar Skoðun Til kall Drífa Snædal skrifar Skoðun Skóli án aðgreiningar má missa sín Kristín Kolbrún Waage Kolbeinsdóttir skrifar Skoðun Reykjavíkurborg pissar í skóinn sinn – og kallar það hagræðingu Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Atlaga að fátækt Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir skrifar Skoðun Starfsfólk Reykjavíkurborgar er ekki tilraunaverkefni Brynhildur Heiðar- og Ómarsdóttir,Þorkell Heiðarsson skrifar Skoðun Loftbrú og Ölfusárbrú eru mikilvægari en börn Grímur Atlason skrifar Skoðun Hvernig tala ég við barnið mitt um netið? Skúli Bragi Geirdal skrifar Skoðun Ríkið þrengir að frelsi og samkeppni á fjölmiðlamarkaði Gísli Stefánsson skrifar Skoðun Árangursrík stjórnsýsla – Heilsa eldri borgara – nýtum það sem virkar Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Öll börn eru hluti af liðinu Thelma Dögg Grétarsdóttir skrifar Skoðun Heljarhestar um veturnætur Ása Hlín Benediktsdóttir skrifar Skoðun Grafið undan faglegu starfi – Skipulagsbreytingar á starfi félagsmiðstöðva frá sjónarhorni starfsmanns Ari Orrason skrifar Skoðun Telur Samfylkingin að Mette Frederiksen sé rasisti? Elliði Vignisson skrifar Skoðun Við eigum matreiðslumenn í fremstu röð Þórir Erlingsson skrifar Skoðun Verum duglegri að sjá hvert annað Valdimar Víðisson skrifar Skoðun Málshraðasögur Dvalarleyfi Eva Hauksdóttir skrifar Skoðun Þátttaka skiptir máli – alþjóðlegur dagur iðjuþjálfunar Þóra Leósdóttir skrifar Skoðun Hugsjónasvelta Reykjavík Líf Magneudóttir ,Sanna Magdalena Mörtudóttir skrifar Sjá meira
Ísland er land fjarlægðanna. Efnahagur og velferð þjóðarinnar byggir ekki hvað síst á dreifðri búsetu, verndun og nýtinga hinna fjölbreyttu auðlinda til lands og sjávar. Skattlagning og þjónustuskerðing landsbyggðarinnar takmarkar virðisauka í hagkerfi þjóðarinnar sem byggir hvað mest á grunnauðlindum og búsetu hinna dreifðu byggða. Nú stendur landsbyggðin frammi fyrir stöðugt skertri þjónustu og aukinni skatlagningu á fjarlægðir frá höfuðborgarsvæðinu. Hækkun kílómetragjalds og álögut á olíur, bensin og faratæki Ég reyndi að berjast gegn þessum viðhorfum á þingi. "En refurinn bítur sjaldnast nálægt greni sínu", eins og sagt var. Freistingin er að senda reikninguinn fyrst á þá sem fjærst höfuðborginni búa. Þessi upplifun fólks um tvískiptingu þjóðarinnar kom skýrt fram í nýafstaðinni þjóðaratkvæðagreiðslu. Umræðan sem á eftir fylgdi lýsti jafnvel hroka í garð landsbyggðarfólks og atvinnugreina þeirra. Skýrsla um aukna skattlagningu bifreiða og fjarlægða. "Bein gjaldheimta ríkisins af ökutækjum, eldsneyti og akstri hefur verið umfram heildarútgjöld ríkisins til vegasamgangna undanfarin ár samkvæmt nýrri greiningu frá Samtökum iðnaðarins. Samkvæmt greiningunni námu beinar tekjur ríkisins á árunum 2019-2025 af þessum gjaldstofnum samtals 338 milljörðum króna samanborið við 255 milljarða í heildarútgjöld til vegasamgangna. Tekjur umfram útgjöld námu því 83 milljörðum á tímabilinu. Bilið farið vaxandi Bilið milli gjaldheimtu og útgjalda hefur farið vaxandi á síðustu árum. Árið 2025 nam bein gjaldheimta um 64,9 milljörðum, samanborið við 43,9 milljarða í heildarútgjöld til vegasamgangna. Mismunurinn var því um 21 milljarður. Samkvæmt horfum fyrir árið 2026 verður munurinn um 23,1 milljarður. Árið 2027 sker sig sérstaklega úr. Þá er bein gjaldheimta áætluð um 83,9 milljarðar, en heildarútgjöld til vegasamgangna um 50,0 milljarðar. Mismunurinn eykst því í tæplega 34 milljarða,“ segir í greiningu Samtaka Iðnaðarins". Skattlagning landsbyggðar og fjarlægða heftir vöxt, velferðar og virðisauka í atvinnulífi þjóðarinnar Rökin fyrir öllum þessum gjöldum voru að þau færu öll til að bæta og styrkja samgöngukerfið. En svo er alls ekki. Þessi endalausa skattheimta á fjarlægðir skerðir búsetu skilyrði á landsbyggðinni og jafnframt tekjur og virðisauka þeirra atvinnugreina sem stundaðar eru vítt og breytt um landið. Höfundur er fyrrv. alþm. og ráðherra.
Við skorum á ríkisstjórnina að standa við fyrirheitin og tryggja framtíð Skipholts 37 Hópur listafólks Skoðun
Skoðun Við skorum á ríkisstjórnina að standa við fyrirheitin og tryggja framtíð Skipholts 37 Hópur listafólks skrifar
Skoðun Krabbameinsmeðferð lokið en hvað svo? Óttinn við að endurgreinast Þorri Snæbjörnsson skrifar
Skoðun Reykjavíkurborg pissar í skóinn sinn – og kallar það hagræðingu Sigurður Sigurðsson skrifar
Skoðun Starfsfólk Reykjavíkurborgar er ekki tilraunaverkefni Brynhildur Heiðar- og Ómarsdóttir,Þorkell Heiðarsson skrifar
Skoðun Árangursrík stjórnsýsla – Heilsa eldri borgara – nýtum það sem virkar Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar
Skoðun Grafið undan faglegu starfi – Skipulagsbreytingar á starfi félagsmiðstöðva frá sjónarhorni starfsmanns Ari Orrason skrifar
Við skorum á ríkisstjórnina að standa við fyrirheitin og tryggja framtíð Skipholts 37 Hópur listafólks Skoðun