Hálf sagan um fjármagnstekjuskatt Björn Brynjúlfur Björnsson skrifar 10. október 2026 09:10 Í umræðum á Samstöðinni sem undirritaður tók nýlega þátt í var því haldið fram að fólk með fjármagnstekjur greiddi ekki sanngjarnan hlut í sameiginlega sjóði. Vísað var til þess að fjármagnstekjuskattur væri aðeins 22%, mun lægri en skattur á launatekjur. Sú skattprósenta segir þó aðeins hálfa söguna. Til að meta skattbyrði á fjármagnstekjur þarf einnig að taka tillit til verðbólgu og þess skatts sem fyrirtæki greiða áður en hagnaður er greiddur út sem arður. Skattur á verðbólgu Fjármagnstekjuskattur leggst á nafnávöxtun, ekki raunávöxtun. Hluti skattstofnsins endurspeglar því einungis hækkun verðlags, án þess að kaupmáttur sparnaðarins hafi aukist. Fólk getur jafnvel greitt skatt þótt sparnaður þess hafi rýrnað að raunvirði fyrir skatt. Tökum dæmi. Sá sem á eina milljón króna og fær 3% raunávöxtun við 5,9% verðbólgu fær rúmar 90 þúsund krónur í nafnávöxtun. Sé frítekjumark þegar fullnýtt fara um 20 þúsund krónur í skatt. Raunávöxtunin fyrir skatt nemur hins vegar aðeins 30 þúsund krónum á verðlagi í upphafi árs. Skattbyrðin er því um tveir þriðju hlutar raunávöxtunarinnar, þótt skatthlutfallið sé 22%. Samanburður við Norðurlöndin á mynd 1 sýnir hvers vegna ekki nægir að bera saman skattprósentur. Miðað við 3% raunávöxtun, skatthlutföll ársins 2026 og meðalverðbólgufrá aldamótum nemur skattur á vaxtatekjur um 59% af raunávöxtun á Íslandi. Hlutfallið er 61% í Danmörku, 49% í Svíþjóð og Finnlandi og 41% í Noregi. Þótt íslenska skattprósentan sé með þeim lægstu verður skattbyrðin því næsthæst í þessum samanburði. Þetta er samræmt reiknidæmi um áhrif verðbólgu og skatthlutfalla, en ekki mæling á skattgreiðslum allra sparifjáreigenda. Skattlagning arðs er 37,6% – ekki 22% Þegar skattlagning arðs er borin saman við skattlagningu launatekna þarf einnig að telja með tekjuskatt fyrirtækisins. Hagnaður hlutafélags ber fyrst 20% tekjuskatt. Af því sem eftir stendur greiðir einstaklingur síðan 22% fjármagnstekjuskatt þegar hagnaðurinn er greiddur út sem arður. Af hverjum 100 krónum í hagnað fara því fyrst 20 krónur í tekjuskatt fyrirtækisins. Eftir standa 80 krónur og af þeim greiðir eigandinn 17,6 krónur í fjármagnstekjuskatt. Samanlögð skattlagning hagnaðar sem greiddur er út sem arður er þannig 37,6%. Þegar áhrif verðbólgu og þessara tveggja skatta leggjast saman getur skattbyrðin orðið meiri en raunávöxtunin sjálf. Mynd 2 sýnir einfalt reiknidæmi þar sem nafnávöxtun ber fyrst tekjuskatt fyrirtækis og síðan fjármagnstekjuskatt við útgreiðslu arðs. Við 3% raunávöxtun fyrir skatta og 5,9% verðbólgu verður raunávöxtun eigandans neikvæð eftir skatta. Jafnvel við 2,5% verðbólgu tekur skattlagningin verulegan hluta raunávöxtunarinnar. Fjármagn kvikari skattstofn en vinnuafl Laun og fjármagn eru ólíkir skattstofnar. Fjármagn er almennt hreyfanlegra milli landa en vinnuafl og ávöxtun eftir skatta hefur áhrif á það hvar fjárfest er. Þessi munur er ein ástæða þess að norræn skattkerfi hafa lengi gert greinarmun á skattlagningu fjármagns og vinnu. Rannsóknir OECD hafa bent til þess að tekjuskattur fyrirtækja sé meðal þeirra skatta sem hafa mest neikvæð áhrif á hagvöxt. Skattlagning hefur áhrif á hvata til fjárfestingar, en fjárfesting stuðlar að aukinni framleiðni og hærri launum til lengri tíma. Hækkun fjármagnstekjuskatts getur því veikt skattstofninn með því að draga úr sparnaði, fjárfestingu og stofnun fyrirtækja. Hærra skatthlutfall skilar ekki sjálfkrafa samsvarandi aukningu skatttekna. Sterkt hagkerfi fjármagnar velferðina Skatthlutfallið 22% gefur því ófullkomna mynd af skattbyrði fjármagns. Verðbólga hækkar skattbyrði sparnaðar, arður er greiddur af hagnaði sem hefur þegar borið tekjuskatt fyrirtækis, og fjármagn leitar þangað sem ávöxtun eftir skatta er best. Þetta þarf að hafa í huga áður en rætt er um að hækka fjármagnstekjuskatt. Markmiðið ætti að vera skattkerfi sem aflar tekna fyrir sameiginlega þjónustu og styður um leið við sparnað, fjárfestingu og verðmætasköpun. Höfundur er framkvæmdastjóri Viðskiptaráðs. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Björn Brynjúlfur Björnsson Mest lesið Norræna módelið: Af hverju refsum við kaupendum en ekki þeim sem selja? Drífa Snædal Skoðun Hægrisveiflan ýkta Egill Ö. Hermannsson Skoðun Þú átt nóg og þú ert nóg Ragnhildur Katla Jónsdóttir Skoðun Ráðherrann sem skiptir litlu máli Arnar Sigurðsson Skoðun Eru andstæðingar þjóðarmorðs í Palestínu sérlegir stuðningsmenn Hamas-samtakanna? Finnur G Olguson Skoðun Þroskahjálp 50 ára: Krefjumst þess að stjórnvöld standi við þau réttindi sem þau hafa sjálf lögfest Bryndís Snæbjörnsdóttir Skoðun Halldór 31.10.26 Halldór Vafasama Viðreisn Júlíus Valsson Skoðun Sundlaugin er ekki vandamálið Unnur Helga Óttarsdóttir Skoðun Hvað hafa börnin gert fyrir okkur? Skoðun Skoðun Skoðun Hvað viltu verða þegar þú verður stór? Jónína Lovísa Kristjánsdóttir skrifar Skoðun Vafasama Viðreisn Júlíus Valsson skrifar Skoðun Þú átt nóg og þú ert nóg Ragnhildur Katla Jónsdóttir skrifar Skoðun Eru jólin hátíð barnanna eða bara þeirra sem hafa efni á þeim? Inga V. Henriksen Bergdal skrifar Skoðun Hægrisveiflan ýkta Egill Ö. Hermannsson skrifar Skoðun Ráðherrann sem skiptir litlu máli Arnar Sigurðsson skrifar Skoðun Þroskahjálp 50 ára: Krefjumst þess að stjórnvöld standi við þau réttindi sem þau hafa sjálf lögfest Bryndís Snæbjörnsdóttir skrifar Skoðun Norræna módelið: Af hverju refsum við kaupendum en ekki þeim sem selja? Drífa Snædal skrifar Skoðun Hvað hafa börnin gert fyrir okkur? skrifar Skoðun Hugmyndakassinn Perla Hafþórsdóttir skrifar Skoðun Losun Íslands á jarðefnaeldsneyti og ómarkviss og ósanngjörn skattheimt Aðalsteinn Júlíus Magnússon skrifar Skoðun Hvar endar ráðaleysið? Þegar sveitarfélögin eru komin í gildru skammtímaniðurskurðar Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Hvers virði er verndarskyldan ef upplýsingagjöfin skapar hættuna? Herdís Ósk Sveinbjörnsdóttir skrifar Skoðun Óðinn heldur fyrir heila augað Hrafnkell Tumi Kolbeinsson skrifar Skoðun Hneykslan og hræsni: Hvers vegna sum hatursorðræða er ásættanleg en önnur ekki Ian McDonald skrifar Skoðun Samstaða um Suðurnesin sem drifkraft vaxtar skrifar Skoðun Eru andstæðingar þjóðarmorðs í Palestínu sérlegir stuðningsmenn Hamas-samtakanna? Finnur G Olguson skrifar Skoðun Sundlaugin er ekki vandamálið Unnur Helga Óttarsdóttir skrifar Skoðun Það er ekki nóg að hækka róminn Þorgrímur Sigmundsson skrifar Skoðun Má manneskja skipta um trú — og halda lífi? Hilmar Kristinsson skrifar Skoðun Tilkoma gervigreindar – kötturinn í Undralandi? Ólafur Aron Sveinsson skrifar Skoðun Veistu hvaða netvíti á að varast? Vilhjálmur Alvar Þórarinsson skrifar Skoðun Borgarnesréttlætið – saga úr umferðinni Guðmundur H Guðjónsson skrifar Skoðun Viðskiptaráð og Láki jarðálfur Andri Snær Magnason skrifar Skoðun Fertugt félag sem ætlar ekki að setjast í helgan stein Guðrún Barbara Tryggvadóttir skrifar Skoðun Ráðherra innviða tók af skarið: Reglugerð um vanhæfismörk við stjórn ökutækis loks gefin út Vilhjálmur Hjálmarsson skrifar Skoðun Um fóbíu og hatur á Íslam Sverrir Agnarsson skrifar Skoðun Gerast enn kraftaverk á Íslandi? Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Viðey – perla í dvala Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Er öryggi barna sökkvandi skip? Alfa Jóhannsdóttir skrifar Sjá meira
Eru andstæðingar þjóðarmorðs í Palestínu sérlegir stuðningsmenn Hamas-samtakanna? Finnur G Olguson Skoðun
Þroskahjálp 50 ára: Krefjumst þess að stjórnvöld standi við þau réttindi sem þau hafa sjálf lögfest Bryndís Snæbjörnsdóttir Skoðun
Skoðun Eru jólin hátíð barnanna eða bara þeirra sem hafa efni á þeim? Inga V. Henriksen Bergdal skrifar
Skoðun Þroskahjálp 50 ára: Krefjumst þess að stjórnvöld standi við þau réttindi sem þau hafa sjálf lögfest Bryndís Snæbjörnsdóttir skrifar
Skoðun Norræna módelið: Af hverju refsum við kaupendum en ekki þeim sem selja? Drífa Snædal skrifar
Skoðun Losun Íslands á jarðefnaeldsneyti og ómarkviss og ósanngjörn skattheimt Aðalsteinn Júlíus Magnússon skrifar
Skoðun Hvar endar ráðaleysið? Þegar sveitarfélögin eru komin í gildru skammtímaniðurskurðar Sigurður Sigurðsson skrifar
Skoðun Hvers virði er verndarskyldan ef upplýsingagjöfin skapar hættuna? Herdís Ósk Sveinbjörnsdóttir skrifar
Skoðun Hneykslan og hræsni: Hvers vegna sum hatursorðræða er ásættanleg en önnur ekki Ian McDonald skrifar
Skoðun Eru andstæðingar þjóðarmorðs í Palestínu sérlegir stuðningsmenn Hamas-samtakanna? Finnur G Olguson skrifar
Skoðun Ráðherra innviða tók af skarið: Reglugerð um vanhæfismörk við stjórn ökutækis loks gefin út Vilhjálmur Hjálmarsson skrifar
Eru andstæðingar þjóðarmorðs í Palestínu sérlegir stuðningsmenn Hamas-samtakanna? Finnur G Olguson Skoðun
Þroskahjálp 50 ára: Krefjumst þess að stjórnvöld standi við þau réttindi sem þau hafa sjálf lögfest Bryndís Snæbjörnsdóttir Skoðun